Kristrún í formannsframboð: „Samfylkingin þarf að ná virkari tengingu við venjulegt fólk“

Kristrún Frosta­dóttir ætlar sér að verða næsti for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún ætlar að leggja áherslu á kjarna­mál jafn­að­ar­manna, jákvæða póli­tík, meiri sam­kennd og minni ein­stak­lings­hyggju. „Ég veit að það er hægt að stjórna land­inu betur.“

Kristrún Frostadóttir tilkynnti um formannsframboð sitt í Iðnó í dag.
Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð sitt í Iðnó í dag. Mynd: Baldur Kristjánsson

„Ég hef tekið ákvörðun. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér og bjóða mig fram til for­manns í Sam­fylk­ing­unni, jafn­að­ar­manna­flokki Íslands.“ Þetta sagði Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á opnum fundi í Iðnó sem hún boð­aði til og hófst klukkan 16 í dag.

Í ræðu sinni sagð­ist hún ætla að leggja áherslu á kjarna­málin í jafn­að­ar­manna­stefn­unni. Þau séu hús­næð­is­mál, heil­brigð­is­mál, sam­göngur, góð atvinna og kjör fólks.

[links]Það sé lyk­ill­inn að breið­ari og stærri flokki og trú­verð­ug­leika. „Við eigum enga ann­arra kost á völ að mínu mati, því vand­inn sem við stöndum frammi fyrir er þessi: Kannanir hafa sýnt að kjós­endur eiga erfitt með að festa hönd á það fyrir hvað Sam­fylk­ingin stendur. Ég vil að það sé alveg á hreinu fyrir hvað flokk­ur­inn stendur og af hverju hann á erindi við fólkið í land­inu.“

Það muni þurfa sjálfs­traust og aga til að ein­beita sér að kjarna­málum, frekar en að týn­ast í fínni blæ­brigðum þjóð­mála­um­ræð­unnar. „Þetta verður að birt­ast í okkar verk­lagi. Og þetta þarf að birt­ast í því hvernig við tölum við fólk, hvernig tengj­umst ósköp venju­legu fólki. Trú­verð­ug­leiki okkar byggir nefni­lega á því að fólk tengi við okkur. Og ég ætla að leyfa mér að segja það eins og ég sé það: Sam­fylk­ingin þarf að ná virk­ari teng­ingu við venju­legt fólk á Íslandi, hinn almenna launa­mann. Og það verður ekki gert öðrum hætti en maður á mann. Það er hægt að vera vel les­inn, í reglu­legu sam­bandi við sér­fræð­inga, flytja öfl­ugar ræður á þingi og skrifa fjöld­ann allan af greinum í blöðin. En eina leiðin til að kynn­ast fólk­inu í land­inu, sækja stuðn­ing­inn og inn­blástur fyrir þing­starfið, sem fyrir jafn­að­ar­mann á þingi er starf í þágu fólks­ins, er forð­ast það að ein­angra sig og mæta ein­fald­lega fólki. Nákvæm­lega þar sem það er, taka því eins og það er, og hlusta.“

Meiri samkennd, minni einstaklingshyggja

Kristrún sagði að hún gæti ekki ímyndað sér meiri heiður en að leiða flokka jafn­að­ar­manna, og að hún gerði sér fulla grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir.

[adspot]Hún væri þó ekki að bjóða sig fram til for­ystu nema að því að hún telur sig vita að hægt sé að stjórna land­inu betur en nú sé gert. Áratugur óbreytts stjórn­ar­fars væri lið­inn, og annar slíkur mætti ekki líða. Tími væru kom­inn á nýja kyn­slóð og nýju teg­und for­ystu. „Við verðum að fara að byggja meira á sam­stöðu og sam­kennd í póli­tík­inni, fyrir sam­fé­lagið. Við þurfum á sam­stöðupóli­tík að halda því ofurá­herslan und­an­farin ár á ein­stak­lings­hyggj­una, hún gerir okkur ekki gott. Við verðum að hugsa hlut­ina á breið­ari grunni.“

Kristrún vill gera Sam­fylk­ing­una að afli í stjórn­málum sem veiti efna­hags­málum trú­verð­uga for­ystu. Þannig sé hægt að bjóða fram trú­verð­ugan val­kost við efna­hag­spóli­tík rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem bitnað hafi á vel­ferð­ar­þjón­ustu í land­inu.

Jafnaðarmenn þurfi að stunda jákvæða pólitík

Kristrún sagði að jafn­að­ar­menn eigi að stunda jákvæða póli­tík og tala fyrir lausnum á áskor­unum sem þeir standi frammi fyrir. „Það er spilað mikið inn á póli­tík óhjá­kvæmi­leika þessa dag­ana hér á landi. Af orð­ræðu ráða­manna mætti halda að sé ein­fald­lega ekki hægt að gera betur í hús­næð­is­málum, heil­brigð­is­málum, sam­göngum, gagn­vart fólki sem reiðir sig á almanna­trygg­ingar. En fólkið í land­inu veit að það er hægt að leysa þessi mál, og fólk treystir sér til þess, þetta heyri ég í sam­tölum um allt land. Það er skortur á jákvæðri póli­tík og fólki í póli­tík sem er með jákvæð­ari hug­myndir um fram­tíð­ina – að fólk upp­lifi að þetta sé í okkar höndum. Þessa umræðu, þessa jákvæðu póli­tík eigum við jafn­að­ar­menn auð­vitað að leiða.“

Því þurfi að sam­ein­ast um full­fjár­magnað heil­brigð­is­kerfi, að ríkið taki ábyrgð á hús­næð­is­mark­aðnum, sam­ein­ast um að fólk á lágum tekjum og ungt fólk beri ekki hit­ann og þung­ann af verð­bólg­unni, sam­ein­ast um að styrkja almanna­þjón­ust­una og grunn­inn­viði sam­fé­lags­ins um land allt og sam­ein­ast um að verð­mæta­sköpun byggi á fram­lagi margra þátta.

Þyngsli, neikvæðni og úrræðaleysi í núverandi stjórnarfari

Undir lok ræðu sinnar sendi Kristrún út ákall til jafn­að­ar­manna í land­inu og hvatti þá til að koma með í það verk­efni sem væri framundan. „Því jafn­að­ar­menn þurfa að kom­ast til áhrifa við stjórn lands­ins. Það kemur ekk­ert annað til greina“

Hún sagði að end­ur­vekja þyrfti von og trú fólks á að það sé hægt að ​​breyta og reka sam­fé­lagið betur, þannig að það virki sem best fyrir sem flesta. Núver­andi stjórn­ar­far, sem hafi ein­kennt landið í ára­tug, beri í auknum mæli með sér þyngsli og nei­kvæðni og úrræða­leysi. „For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar telja fólki ítrekað trú um að það sé ekki hægt að gera hlut­ina öðru­vísi. Það stendur ekki á fólk­inu sem hér býr að leysa stór sam­fé­lags­leg verk­efni, heldur á stjórn­mála­mönnum að trúa á sam­taka­mátt fólks. Það er ein­fald­lega þannig að stærstu áskor­anir okkar tíma verða aðeins leystar með sam­stöðu fólks­ins í land­inu og þar þarf rík­is­stjórn að veita for­ystu. Ala á ábyrgð gagn­vart sam­borg­ur­unum.“

„Þurfum að draga línu í sandinn“

Kristrún sagði að það væri gíf­ur­lega jákvætt að verða vitni að efn­is­legri vel­gengni margra hér á landi. En að sama skapi væri mik­il­vægt að gleyma því ekki að það væri sam­fé­lagið hér í heild sem hafi staðið við bakið á fólki sem skarar fram úr. „Það fer eng­inn neitt einn. Sama á við um fyr­ir­tæki sem skara fram úr í íslensku sam­fé­lagi. Að baki þeirra liggur fjöld­inn allur af fólki sem hefur unnið að sam­fé­lags­gerð sem styrkir for­sendur umræddra fyr­ir­tækja til að sækja fram. Það eiga ekki allir að vera eins, og útkoma fólks getur verið mis­jöfn. En ábyrgðin á góðu sam­fé­lagi er allra. Breiðu bökin þurfa að finna til ábyrgðar og vera stolt af fram­lagi sínu til sam­fé­lags­ins. Við þurfum að draga línu í sand­inn um hvað við munum ekki líða og leggja af mörkum til sam­eig­in­legra sjóða til að tryggja fólki gott líf, þora að beita rík­inu í þágu fólks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár