Kristrún boðar til fundar– Telur að Samfylkingin geti náð aftur vopnum sínum

Kristrún Frosta­dóttir mun til­kynna um fram­boð sitt til for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar á fundi í dag. Þar ætlar hún að segja frá því hvernig hún telur að end­ur­vekja megi „von og trú fólks á að það sé hægt að breyta og reka sam­fé­lagið okkar betur.“

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Aðsend

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mun Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar til­kynna um fram­boð til for­manns flokks­ins á opnum fundi sem hún hefur boðað til í Iðnó og hefst klukkan 16 síð­degis í dag.

Kristrún hefur verið orðuð við fram­boð til for­manns nán­ast frá því að hún til­kynnti um stjórn­mála­þátt­töku í fyrra, en hún var kjörin á þing í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Hún hefur legið undir feldi í sumar og sagst vera íhuga for­manns­fram­boð og að tíð­inda yrði að vænta í ágúst.

Í til­kynn­ingu sem Kristrún sendi út í morgun kom fram að hún hafi notað sum­arið í íhugun og sam­töl um stöð­una í stjórn­mál­unum. „Nú vil ég segja frá hvernig ég tel að megi end­ur­vekja von og trú fólks á að það sé hægt að breyta og reka sam­fé­lagið okkar betur. Og hvernig ég tel að Sam­fylk­ingin geti náð aftur vopnum sínum með því að leggja ofurá­herslu á kjarna­málin og með því að ná aftur virk­ari teng­ingu við fólkið í land­inu.“

Þar er haft eftir Kristrúnu að frá því að hún var kjörin á Alþingi hafi hún haldið alls 37 fundi með fólki í heima­byggð þess undir yfir­skrift­inni „Samræða um fram­tíð­ina“. „Ég vil sækja mér efni­við og inn­blástur beint til fólks­ins sem ég starfa fyrir. Það er ekki gert úr ræðu­stól heldur með sam­tölum í augn­hæð.“

[adspot]Frá því að Logi Ein­ars­son, núver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, til­kynnti að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í byrjun sum­ars hafa ein­ungis tveir verið orð­aðir af ein­hverri alvöru við for­manns­fram­boð: Kristrún og, Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 8. júlí að nær engar líkur væru á því að Dagur ætl­aði sér að taka slag­inn og hann stað­festi það opin­ber­lega í gær í við­tali við Frétta­blaðið. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Ég hef auð­vitað skynjað mik­inn stuðn­ing. Fólk hefur kallað eftir nýrri rík­is­stjórn sem yrði mynduð frá vinstri yfir á miðj­una svipað og í Reykja­vík. En ég er að hefja nýtt kjör­tíma­bil í borg­inni og á ekki sæti á þingi. Þess vegna var lang­sótt að ég byði mig fram til for­mennsku í flokkn­um.“

Verður yngsti for­maður flokks­ins frá upp­hafi

Kristrún er 34 ára hag­fræð­ingur og hóf fyrst stjórn­mála­þátt­töku í fyrra, þegar hún ákvað að gefa kost á sér til að leiða annað Reykja­vík­ur­kjör­dæmið fyrir Sam­fylk­ing­una í þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber. Áður hafði hún starfað í fjár­mála­geir­an­um.

[links]Kristrún hefur sér­stak­lega vakið athygli und­an­farið ár fyrir að gefa jafn­að­ar­manna­stefn­unni dýpt í umræðum um efna­hags­mál.

Raunar var byrjað að tala Kristrúnu upp sem næsta for­­mann Sam­­fylk­ing­­ar­innar nán­­ast sam­­stundis og hún gekk í flokk­inn til að bjóða fram fyrir hann í Reykja­vík í aðdrag­anda kosn­­ing­anna í fyrra. Meðal ann­­ars vegna þessa þrýst­ings fór Kristrún ein í hring­­ferð um landið fyrr á þessu ári og hélt opna fundi með fólki í þeirra heima­­byggð, á sama tíma og aðrir þing­­menn nýttu kjör­­dæma­daga til að ferð­­ast saman um landið til að hitta kjós­­end­­ur.

Verði Kristrún næsti for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­innar verður hún lang yngst til að gegna því emb­ætti. Það met átti Árni Páll Árna­­son áður, en hann var 46 ára við emb­ætt­is­­töku (Mar­grét Frí­­manns­dótt­ir, sem var tals­­maður flokks­ins í árdaga hans var reyndar yngri, 44 ára).

Í síð­ustu könnun Gallup á fylgi stjórn­mála­flokka mæld­ist Sam­­fylk­ingin með 13,7 pró­­sent fylgi, eða 3,8 pró­­sent­u­­stigum meira en flokk­­ur­inn fékk í fyrra­haust. Það myndi þýða að flokkur yrði fjórði stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag á eftir Sjálf­stæð­is­flokki, Fram­sókn­ar­flokki og Píröt­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár