Með óbragð í munni – Mikilvægt að framkvæmd kosninga sé með réttum hætti

Þor­gerður Katrín segir að end­ur­taln­ingin í Norð­vest­ur­kjör­dæmi dragi fram umræðu um jafnt atkvæða­vægi. „Það er nauð­syn­legt að fá hið rétta fram í þessu máli.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í leiðtogaumræðum fyrir kosningar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, í leið­togaum­ræðum fyrir kosn­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar seg­ist í sam­tali við Kjarnann treysta kjör­stjórnum, bæði lands­kjör­stjórn og yfir­kjör­stjórn að gera það sem þarf að gera varð­andi skoðun á end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. „Rétt skal vera rétt,“ segir hún.

„Maður fær ákveðið óbragð í munn­inn þegar maður skoðar og horfir yfir þetta. Eitt af því sem við höfum talið okkur til tekna og sem hefur verið fram­lag okkar á alþjóða­vett­vangi er þunga­vigt okkar í jafn­réttis- og mann­rétt­inda­málum. Hluti af mann­rétt­indum er að lýð­ræð­is­legar kosn­ingar fari rétt fram og eins og þetta blasir við núna þá eru ein­hver ónot vegna þessa í manni.“

Hún seg­ist jafn­framt vona að málið rýri ekki ásýnd Íslend­inga í málum sem þessum. „Það má ekki vera í þessu eitt­hvað vina­hygli eða annað – eða slöpp fram­kvæmd. Það bara má ekki vera slök fram­kvæmd á umgjörð kosn­inga.“

Nauðsynlegt að fá hið rétta fram

Þor­gerður Katrín segir að málið dragi fram umræðu um jafnt atkvæða­vægi. Í grein sem þing­menn Við­reisnar rit­uðu í októ­ber 2020 kom fram sú skoðun að kosn­ing­ar­réttur manna mætti ekki vera skipti­mynt á hinu póli­tíska sviði. Atkvæða­vægi lands­manna ætti að vera hið sama hvar sem þeir búa á land­inu. Aðeins þannig yrðu þing­menn raun­veru­lega þing­menn allra lands­manna. Það yki sam­kennd, skiln­ing, sam­starf og yfir­sýn og ýtti undir að þeir ynnu að fram­fara­málum fyrir landið allt.

[links]Hún nefnir í þessu sam­hengi umræðu um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá. „Í stjórn­ar­skrár­vinn­unni voru stjórn­ar­flokk­arnir ófá­an­legir til að ræða að jafnt vægi atkvæða í stjórn­ar­skrá. Það sýnir sig að þó að þetta snerti í dag ein­ungis ein­hverjar kenni­tölur ein­stak­linga á milli kjör­dæma þá dregur þetta líka fram að það væri mikið ein­fald­ara að hafa landið eitt kjör­dæmi – og þannig sjálf­krafa hefði einn maður eitt atkvæði.“

Hún ítrekar að þau í Viðreisn líti svo á að nauð­syn­legt sé að fá hið rétta fram í þessu máli.

„Náttúrulega ótrúlegt að upplifa þetta“

Guð­mundur Gunn­ars­son, odd­viti fram­boðs­lista Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sagði í við RÚV í gær að kanna þyrfti betur hverskyns mis­tök hefðu orðið í taln­ingu atkvæða í hans kjör­dæmi. Samkvæmt fyrstu nið­ur­stöðum kosn­ing­anna var Guð­mundur inni á þingi sem jöfn­un­ar­þing­maður en eftir end­ur­taln­ingu í gær komst hann ekki á þing.

„Þetta er nátt­úru­lega ótrú­legt að upp­lifa þetta sem nýliði í þessu“ segir Guð­mundur við RÚV. „Við vorum við­stödd þarna þegar úrslitin voru kunn­gjörð eftir end­ur­taln­ingu. Þá kemur í ljós að þessi hringekja jöfn­un­ar­þing­manna fer að stað með þessum afleið­ingum sem við höfum séð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár