42,1 prósent innflytjenda greiddu atkvæði í síðustu alþingiskosningum

Kosn­inga­þátt­taka inn­flytj­enda í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum var 42,1 pró­sent, um helm­ingi minni en kosn­inga­þátt­taka í heild­ina, sem var 80,1 pró­sent. Enginn inn­flytj­andi á sæti á þingi en 3,2 pró­sent vara­þing­manna eru inn­flytj­endur.

Kosningaþátttaka í síðustu alþingiskosningum var mest á meðal kosningabærra einstaklinga sem hafa engan erlendan bakgrunn, 83 prósent, en minnst meðal innflytjenda, 42,1 prósent.
Kosn­inga­þátt­taka í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum var mest á meðal kosn­inga­bærra ein­stak­linga sem hafa engan erlendan bak­grunn, 83 pró­sent, en minnst meðal inn­flytj­enda, 42,1 pró­sent. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kosn­inga­þátt­taka í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, 25. sept­em­ber 2021, var mest á meðal kosn­inga­bærra ein­stak­linga sem hafa engan erlendan bak­grunn, 83 pró­sent, en minnst meðal inn­flytj­enda, 42,1 pró­sent.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum Hag­tíð­indum Hag­stof­unnar þar sem fjallað er um alþing­is­kosn­ing­arnar á síð­asta ári. Hagstofa Íslands vinnur kosn­inga­skýrslur eftir hverjar kosn­ingar en þetta er í fyrsta sinn sem gerð er grein­ing á bak­grunni þeirra sem taka þátt í alþing­is­kosn­ingum, auk fram­bjóð­enda.

Í alþing­is­kosn­ing­unum 25. sept­em­ber 2021 greiddu 203.898 atkvæði eða 80,1 pró­sent kjós­enda, sem er lægri kosn­inga­þátt­taka en árið 2017 þegar hún var 81,2 pró­sent. Kosn­inga­þátt­taka kvenna var ívið meira en karla, 81,5 pró­sent sam­an­borið við 78,7 pró­sent.

Nokkur breyt­ing varð á fylgi stjórn­mála­sam­taka í alþing­is­kosn­ing­unum 2021 miðað við alþing­is­kosn­ingar 2017. Fram­sókn­ar­flokkur, Flokkur fólks­ins og Viðreisn bættu við fylgi sitt en fimm flokkar sem voru með þing­menn kjörna 2017 töp­uðu fylgi, þ.e. Mið­flokk­ur­inn, Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð, Sam­fylk­ingin, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar. Einn flokkur, Sós­í­alista­flokkur Íslands, var nálægt því að fá þing­menn kjörna 2021 en þau hlutu 4,1% fylgi.

Rík­is­stjórnin hélt í síð­ustu kosn­ingum og bætti við sig tveimur þing­mönnum, þrátt fyrir að sam­an­lagt heild­ar­fylgi hennar hafi ekki vaxið mikið. Önnur rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við í lok nóv­em­ber og hefur nú starfað í rúmt ár.

Kosn­inga­þátt­takan var breyti­leg eftir aldri og var hún minni á meðal yngri en eldri kjós­enda. Kosn­inga­þátt­takan var mest hjá körlum á aldr­inum 65-79 ára, þar sem hún var á bil­inu 90,2-90,6 pró­sent og konum á aldr­inum 60-74 ára þar sem hún var á bil­inu 90,1-90,8 pró­sent.

Kosningaþátttaka mest hjá þeim sem hafa engan erlendan bakgrunn

Samkvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unnar er inn­flytj­andi ein­stak­lingur sem fæddur er erlendis og á for­eldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis.

[links]Inn­flytj­end­ur á Íslandi voru 52.541 tals­ins, eða 14,6 pró­sent af heild­ar­mann­fjölda, sam­kvæmt mann­tali árs­ins 2021. Alls bjuggu 24.160 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­vík um síð­ustu ára­mót, eða rúm­lega 44 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem skráðir eru til heim­ilis á Íslandi. Þeir eru nú tæp­lega 18 pró­sent allra íbúa höf­uð­borg­ar­innar en þar búa 36 pró­sent allra lands­manna.

Ef bak­grunnur kjós­enda er skoð­aður sést að kosn­inga­þátt­takan var mest á meðal kosn­inga­bærra ein­stak­linga sem engan erlendan bak­grunn hafa, eða 83,0 pró­sent. Næst mesta þátt­taka var hjá þeim sem eru fæddir erlendis en báðir for­eldrar fædd­ust á Íslandi, 76,1 pró­sent.

Kosn­inga­þátt­takan var 69,6 pró­sent hjá ein­stak­lingum sem fæddir eru á Íslandi með annað for­eldri sem fædd­ist erlendis og 55,3 pró­sent hjá þeim sem fæddir eru erlendis, með annað for­eldri erlent.

Minnst var kosn­inga­þátt­takan hjá þeim sem fædd­ust á Íslandi en með báða for­eldra sem fædd­ust erlendis, 49,2 pró­sent og, sem fyrr segir var þátt­takan minnst meðal inn­flytj­enda eða 42,1 pró­sent.

Innflytjendur 3,8 prósent frambjóðenda

Enginn inn­flytj­andi á sæti á Alþingi en ef bak­grunnur fram­bjóð­enda og kjör­inna þing­manna í Alþing­is­kosn­ing­unum 2021 er skoð­aður sést að inn­flytj­endur voru 3,8 pró­sent fram­bjóð­enda.

Enginn inn­flytj­andi náði kjöri en 3,2 pró­sent vara­þing­manna eru inn­flytj­endur og hlut­fallið er 1,6 pró­sent ef litið er til alþingis- og vara­þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár