Erlendir ríkisborgarar eru 18 prósent íbúa í Reykjavík en fimm prósent íbúa í Garðabæ

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um tæp­lega 34 þús­und á ára­tug, eða 162 pró­sent. Reykja­vík verður nýtt heim­ili lang­flestra þeirra og fjórði hver íbúi í Reykja­nesbæ er nú erlendur.

Nær allir sem flytja til Íslands koma með flugi og fara þar af leiðandi um Leifsstöð.
Nær allir sem flytja til Íslands koma með flugi og fara þar af leið­andi um Leifs­stöð. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Alls bjuggu 24.160 erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­vík um nýliðin ára­mót, eða rúm­lega 44 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem skráðir eru til heim­ilis á Íslandi. Þeir eru nú tæp­lega 18 pró­sent allra íbúa höf­uð­borg­ar­innar en þar búa 36 pró­sent allra lands­manna.

Þetta má lesa úr nýjum mann­fjölda­tölum sem Hagstofa Íslands birti í síð­ustu viku.

Til sam­an­burðar búa 950 erlendir rík­is­borg­arar í Garðabæ, sem gera þá að rétt rúm­lega fimm pró­sent allra íbúa í því sveit­ar­fé­lagi. Í Mos­fellsbæ eru þeir 1.120, eða níu pró­sent íbúa, og á Sel­tjarn­ar­nesi eru þeir 450, eða tæp­lega tíundi hver íbúi.

Í næst stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, Kópavogi, eru erlendu rík­is­borg­ar­arnir 4.260, eða um ell­efu pró­sent íbúa, og í Hafn­ar­firði eru þeir 3.630, eða rúm­lega tólf pró­sent íbúa.

Fjórði hver íbúi Reykjanesbæjar er erlendur ríkisborgari

Á ára­tug hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér­lendis fjölgað um 33.840 alls, eða 162 pró­sent. Rúmlega 44 pró­sent þeirra sett­ist að í Reykja­vík og tæp­lega 12 pró­sent í Reykja­nesbæ, en þar hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um úr 1.220 í 5.130 á ára­tug, eða um 320 pró­sent.

[adspot]Á sama tíma fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum í Garðabæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi sam­an­lagt um 1.590. Það þýðir að tæp­lega fimm pró­sent þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem fluttu til Íslands frá árs­lokum 2011 hafa sest að í þeim sveit­ar­fé­lögum.

Erlendum rík­is­borg­urum í Kópavogi hefur fjölgað um 2.500 á síð­ustu tíu árum, sem þýðir að rúm sjö pró­sent þeirra sem hingað fluttu sett­ust að í því sveit­ar­fé­lagi. Í Hafn­ar­firði er þró­unin svipuð, útlend­ing­unum hefur fjölgað um 1.890. Það þýðir að tæp­lega sex pró­sent aukn­ing­ar­innar frá árs­lokum 2011 hefur komið sér fyrir í Hafn­ar­firði.

Alls búa 63 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem eru með heim­il­is­festi á Íslandi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 37 pró­sent utan þess. Það er í takti við hlut­fall allra íbúa lands­ins sem búa á því svæði, sem er 64 pró­sent. Fjórð­ungur allra erlendra rík­is­borg­ara sem búa á lands­byggð­inni búa í Reykja­nesbæ en þar er hlut­fall aðfluttra af heild­ar­fjölda íbúa komið yfir 25 pró­sent. Í lok árs 2011 voru erlendir rík­is­borg­arar undir níu pró­sent íbúa þar.

Fóru ekki þegar kreppan kom

Lands­­­mönnum öllum hefur fjölg­að um 56.440 síð­ast­lið­inn ára­tug og eru nú 376.000. Það þýðir að 60 pró­sent fjölg­unar lands­manna á síð­ast­liðnum ára­tug hefur verið vegna aðflutn­ings fólks hingað til lands sem er af erlendu bergi brot­ið.

Mest var fjölg­unin á árunum 2017 og 2018, þegar ferða­þjón­ustu­geir­inn var í mestum vexti, en á þeim tveimur árum fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér um 13.930 alls. Á sama tíma fjölg­aði lands­mönnum öllum um 18.600. Því voru inn­flytj­endur ábyrgir fyrir 75 pró­sent af mann­fjölda­aukn­ingu á þessum tveimur árum.

[links]Á Þjóð­­ar­­spegli Háskóla Íslands, sem fór fram haustið 2019, voru mál­efni erlends starfs­­fólks á Íslandi til umræðu. Á meðal þeirra sem sátu þar í pall­­borði var Gissur Pét­­ur­s­­son, ráðu­­neyt­is­­stjóri í félags- og barna­­mála­ráðu­­neyt­inu og fyrr­ver­andi for­­stjóri Vinn­u­­mála­­stofn­un­­ar. Hann sagði þar að það væri mik­ill kostur að á Íslandi væri svo ein­falt að „losa sig“ við erlent vinn­u­afl um leið og sam­­dráttur byrj­­aði í efna­hags­líf­inu. Það hefði eng­inn beð­ið er­­lenda verka­­­menn um að koma til lands­ins til að vinna og því væri það ekki á ábyrgð Íslenska rík­­­is­ins að hjálpa fólk­inu við að koma undir sig fót­unum með nokkrum hætti.

Ljóst má vera af þróun á fjölda þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi að þessi útlegg­ing ráðu­neyt­is­stjór­ans hefur ekki gengið eft­ir. Gríð­ar­legur sam­dráttur hefur verið í hag­kerf­inu frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á sem skil­aði því að áætlað er að rík­is­sjóður verði rek­inn í mörg hund­ruð millj­arða króna halla sam­an­lagt árin 2020 og 2021.

Samt sem áður fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi um 5.270 frá byrjun árs 2020 og út síð­asta ár.

Atvinnu­leysi eykst hjá erlendu fólki

Í lok síð­­asta mán­aðar var atvinn­u­­leysi hér­­­lendis komið niður fyrir fimm pró­­sent, og er hlut­falls­lega nán­ast það sama og það var í febr­­úar 2020, áður en kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn skall á. Í apríl 2020, þegar fjöldi fyr­ir­tækja setti starfs­­fólk sitt á hluta­bætur, mæld­ist atvinn­u­­leysið 17,8 pró­­sent en 10,3 pró­­sent­u­­stig féllu til vegna þeirra sem voru tíma­bundið sett á hluta­bætur.

[adspot]Almennt atvinn­u­­leysi mæld­ist mest í jan­úar í fyrra, 11,6 pró­­sent, og heild­­ar­at­vinn­u­­leysi að með­­­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­­sent.

Þetta atvinnu­leysi bitn­aði mest á erlendum rík­is­borg­ur­um. Í jan­úar 2021 var atvinnu­leysi á meðal þeirra 24 pró­sent og í lok des­em­ber mæld­ist það enn 11,6 pró­sent, eða langt umfram almennt atvinnu­leysi.

Í lok des­em­ber 2021 voru rúm­lega 42 pró­sent allra atvinnu­lausra á Íslandi erlendir rík­is­borg­arar og þeim fjölg­aði í hópi atvinnu­lausra í jóla­mán­uð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár