Kórónuveirufaraldurinn skilaði Íslendingum aftur heim

Tvö ár í röð hafa fleiri íslenskir rík­is­borg­arar flutt heim en burt frá land­inu. Fjöldi þeirra sem það gerðu hefur ekki verið meiri síðan á níunda ára­tugnum. Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað um 33 þús­und á rúmum ára­tug.

Á árinu 2021 fluttu alls 780 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar aftur til Íslands en fluttu frá land­inu. Árið áður var sá fjöldi 550. Því hafa sam­an­lagt 1.330 íslenskir rík­is­borg­arar flutt heim umfram þá sem hafa flutt út á þeim árum sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur geisað.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um mann­fjölda­þróun á Íslandi.

Þetta er mik­ill við­snún­ingur frá því sem áður var og mesti fjöldi íslenskra rík­is­borg­ara sem skilað hefur sér heim umfram þá sem hafa flutt burt. Frá árinu 2010 og út árið 2019 voru brott­fluttir alltaf fleiri innan hvers ár en aðfluttir að árinu 2017 und­an­skildu. Það ár var mikið góð­ær­isár og þá fluttu 360 fleiri Íslend­ingar til lands­ins en frá því.

Sú þróun sner­ist við á árunum fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Á árunum 2018 og 2019 fluttu sam­tals 265 fleiri Íslend­ingar frá land­inu en til þess.

Mesta aukning síðan á níunda áratugnum

Þegar tölur fyrir árið 2020 voru teknar saman í fyrra sagði í frétt Hag­stof­unnar að fjöldi þeirra íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu til lands­ins á því ári umfram þá sem fluttu frá því væri sá mesti frá 1987. Fjöldinn í fyrra var meiri.

[adspot]Ástæðan liggur í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum með öllum sínum sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum og ferða­tak­mörk­unum. Hann hefur til að mynda gert það að verkum að færri lands­menn sækja nám erlendis og Íslend­ingar sem búsettir voru erlendis sóttu heim þar sem var á tíðum meira athafna­frelsi en í mörgum öðrum löndum og hægt að eiga sam­veru með sínum nán­ustu. Þá hefur stór­aukin heima­vinna, án til­lit til stað­setn­ingar, gert það að verkum að margir Íslend­ingar geta sinnt vinnu sinni í öðrum landi héðan.

Sú óvissa sem fylgir þróun heims­far­ald­urs hefur einnig dregið úr áætl­unum um utan­för af ýmsum ástæðum. Reglur á landa­mærum og sótt­varn­ar­ráð­staf­anir hafa til að mynda á stundum breyst skyndi­lega til að takast á vöxt í útbreiðslu.

Útlendingum fjölgað um rúman Hafnarfjörð

Alls voru aðfluttir umfram brott­flutta 4.620 í fyrra. Lang­flestir þeirra voru erlendir rík­is­borg­arar, eða 3.860 tals­ins. Þeir eru nú 14,5 pró­sent lands­manna.

Eðl­is­breyt­ing hefur orðið á fjölda erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis á und­an­förnum rúma ára­tug. Snemma árs 2010 voru þeir 21.610 en um síð­ustu ára­mót voru þeir orðnir 54.770 tals­ins. Þeim hafði því fjölgað um 33.160 á umræddum tíma­bili, eða um 153 pró­sent. Það er 3.400 fleiri ein­stak­lingar en búa í Hafn­ar­firði, þriðja stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, og fleiri en búa í Garðabæ og Mos­fellsbæ sam­an­lagt.

Á sama tíma hefur íbúum lands­ins fjölgað um 58.090, en þeir voru 376 þús­und alls í lok síð­asta árs. Það þýðir að 57 pró­sent allrar fólks­fjölg­unar á Íslandi frá 2010 er vegna aðflutn­ings erlendra rík­is­borg­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár