Ásmundur Einar Daðason staðið sig best allra ráðherra – Bjarni Benediktsson langverst

Mun meiri óánægja er með störf ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins en störf ann­arra ráð­herra í rík­is­stjórn sam­kvæmt nýrri könnun. Óánægjan er aðal­lega með Bjarna Bene­dikts­son og Jón Gunn­ars­son. Mennta- og barna­mála­ráð­herra er sá sem flestir eru ánægðir með.

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur hefur starfað síðan í nóvember 2021.
Annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur hefur starfað síðan í nóv­em­ber 2021. Mynd: Stjórnarráðið

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, er sá ráð­herra sem flestir lands­menn telja að hafi staðið sig best á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Alls nefndu 13,8 pró­sent hann. Í öðru sæti er Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, en 9,7 pró­sent svar­enda telja að hún hafi staðið sig best. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er í þriðja sæti með átta pró­sent. Það er meiri ánægja með hana á meðal almenn­ings en nokkurn annan ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Lang­flestir, alls 26,8 pró­sent aðspurðra, telja að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi staðið sig verst allra ráð­herra á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Einungis einn annar ráð­herra fær þann dóm að hafa staðið sig verst hjá hlut­falli lands­manna sem nær tveggja stafa tölu. Það er Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra og flokks­bróðir Bjarna, en 16,3 pró­sent segja hann hafa staðið sig illa. Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er í þriðja sæti yfir þá sem hafa staðið sig verst að mati svar­enda, en 7,9 pró­sent nefndu hana. Katrín Jak­obs­dóttir er svo í fjórða sæti. Alls 7,3 pró­sent telja hana hafa staðið sig verst.

Athygl­is­vert er að óánægja með ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins er afger­andi meiri meðal svar­enda en ráð­herra hinna stjórn­ar­flokk­anna. Þannig nefndu 48,6 pró­sent svar­enda ráð­herra úr Sjálf­stæð­is­flokknum þegar þeir svör­uðu hvaða ráð­herra þeir teldu hafa staðið sig verst. 14,5 pró­sent nefndu ráð­herra úr Vinstri grænum og 12,1 pró­sent úr Framsókn. Þar skipta afger­andi óvin­sældir Bjarna og Jóns miklu máli.

Munurinn milli flokka er allt annar þegar kemur að því að nefna hver hefur staðið sig best. Flestir, alls 27,4 pró­sent, nefndu ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins en skammt á hæla þeirra koma ráð­herrar Fram­sóknar með 25,1 pró­sent. Lestina reka ráð­herrar minnsta stjórn­ar­flokks­ins, Vinstri grænna, með 13,6 pró­sent.

[adspot]Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá, á net­inu. Alls voru svar­endur 967, en þeir eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð sam­kvæmt Þjóðskrá. Könnunin fór fram dag­ana 16. til 20. des­em­ber 2022.

Samfylkingin bætt miklu við sig

Þrjár nýlegar kann­anir, frá Gallup, Maskínu og Prósent, sýna að rík­is­stjórnin er tölu­vert frá því að mæl­ast með nægj­an­legt fylgi til að halda meiri­hluta á þingi. Allir stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn minnst, og í sumum til­vikum er hann nán­ast við kjör­fylgi, sem var 24,4 pró­sent. Vinstri græn og Framsókn hafa hins vegar tapað miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Í könnun Gallup, sem birt var í vik­unni, mæld­ist fylgi Vinstri grænna til að mynda í fyrsta sinn undir sjö pró­sentum. Flokk­ur­inn, sem nú mælist sá sjötti stærsti á þingi, og mögu­lega sá næst minnsti, hefur aldrei mælst með minna fylgi og eng­inn flokkur hefur tapað jafn miklu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og Vinstri græn.

[adspot]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk sömu­leiðis lægstu mæl­ingu sína á kjör­tíma­bil­inu, eða 12,1 pró­sent. Hann hefur því tapað 5,2 pró­sentu­stigum frá því í kosn­ing­unum haustið 2021.

Sam­an­lagt mæld­ist fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna þriggja 11,6 pró­sent hjá Gallup.

[links]Á sama tíma sýndu allar þrjár áður­nefndar kann­anir að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar væri komið yfir 20 pró­sent, en flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Í könnun Maskínu mæld­ist Sam­fylk­ingin stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Gallup mældi flokk­inn stærstan, með 23,6 pró­sent fylgi, sem var ein­ungis 0,2 pró­sentu­stigi undir Sjálf­stæð­is­flokknum. Samkvæmt Gallup könn­un­inni hefur Sam­fylk­ingin því bætt við sig 13,7 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu, eða sem nemur tvö­földu fylgi Vinstri grænna.

Einungis einn annar flokkur á þingi hefur bætt við sig fylgi frá því að síð­ast var kosið sam­kvæmt mæl­ingum Gallup, Píratar. Auk þeirra hefur Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem náði ekki inn í síð­ustu kosn­ingum, bætt lít­il­lega við sig en þó innan skekkju­marka. Hinir sex flokk­arnir sem mæl­ast með stuðn­ing hafa tapað fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár