Samfylkingin hefur næstum tvöfaldað fylgið og andar ofan í hálsmálið á Sjálfstæðisflokki

Rík­is­stjórnin er fallin sam­kvæmt nýrri könnun og fjöl­margir mögu­leikar í kort­unum. Þrír and­stöðu­flokkar hafa bætt við sig einum Fram­sókn­ar­flokki það sem af er kjör­tíma­bili en rík­is­stjórnin tapað yfir tíu pró­sentu­stigum.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Eyþór Árnason

Sam­fylk­ingin mælist með 19,1 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Prósents sem birt er í Frétta­blað­inu í morgun. Fylgi flokks­ins hefur auk­ist um 5,6 pró­sent síðan í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í júní. Í milli­tíð­inni hefur Sam­fylk­ingin kosið sér nýjan for­mann, Kristrúnu Frosta­dóttur, en í Frétta­blað­inu í gær var greint frá því að sam­kvæmt könnun Prósents treystu flestir kjós­endur henni af leið­togum stjórn­mála­flokka.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist áfram stærsti flokkur lands­ins og er nú með 21,1 pró­sent fylgi, en hann hefur alla jafna mælst með minni stuðn­ing í könn­unum Prósents en hjá öðrum könn­un­ar­fyr­ir­tækjum. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist yfir 20 pró­sent hjá fyr­ir­tæk­inu.

Þessir tveir flokkar skera sig úr í íslenskum stjórn­málum, miðað við nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá 15 þing­menn sam­kvæmt henni en Sam­fylk­ingin 14.

Fimm flokkar með yfir tíu prósent fylgi

Þrír aðrir flokkar ná tveggja stafa tölu í fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem styrkti stöðu sína veru­lega í þing­kosn­ing­unum fyrir rúmu ári og aftur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor, mælist með 14,6 pró­sent stuðn­ing sem myndi tryggja flokknum tíu þing­menn. Píratar myndu fá 11,8 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og átta þing­menn og Viðreisn 10,6 pró­sent og sjö þing­menn.

[adspot]Fjórir flokkar mæl­ast svo með undir tíu pró­sent fylgi. Þar ber fyrst að nefna Vinstri græn, sem sitja í rík­is­stjórn og í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, en fylgi flokks­ins mælist nú ein­ungis átta pró­sent sem myndi skila fimm þing­mönnum. Flokkur fólks­ins mælist með 6,4 pró­sent og fjóra þing­menn kjörna en hvorki Sós­í­alista­flokkur Íslands né Mið­flokkur næði manni inn. Báðir mæl­ast með 4,2 pró­sent fylgi.

Hafa bætt við sig einum Framsóknarflokki á kjörtímabilinu

Samkvæmt könnun Prósents hafa þrír flokkar bætt við sig fylgi síðan í kosn­ing­unum í fyrra­haust, einn stendur nokkurn veg­inn í stað en fimm tapað fylgi.

Sam­fylk­ingin hefur bætt lang­mestu við sig, eða 9,2 pró­sentu­stigum. Fylgi flokks­ins hefur nán­ast tvö­fald­ast. Þar á eftir koma Píratar sem hafa bætt við sig 3,2 pró­sentu­stigum af fylgi og Viðreisn sem hefur bætt við sig 2,3 pró­sentu­stigum. Sam­an­lagt hafa þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar því aukið fylgi sitt um 14,7 pró­sent á fyrsta rúma árinu sem liðið er af kjör­tíma­bil­inu. Það er sam­an­lagt meira en allt fylgi þriðja stærsta flokks lands­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Vinstri græn hafa tapað mestu fylgi, eða 4,6 pró­sentu­stigum. Alls hafa tæp­lega 37 pró­sent kjós­enda flokks­ins yfir­gefið hann á því rúma ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ingum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað 3,3 pró­sentu­stigum og Framsókn 2,7 pró­sentu­stigum. Saman hafa flokk­arnir þrír sem mynda rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur því misst 10,6 pró­sentu­stig af fylgi síðan í lok sept­em­ber í fyrra og njóta nú ein­ungis stuðn­ings 43,8 pró­sent lands­manna.

Ríkisstjórnin kolfallin

Rík­is­stjórnin er kol­fallin sam­kvæmt þess­ari könnun. Flokk­arnir sem að henni standa myndu fá 30 þing­menn en eru með 38 í dag. Ýmis stjórn­ar­mynstur gætu verið í kort­unum miðað við þessa stöðu. Þeir fjórir flokkar sem í dag sitja í stjórn­ar­and­stöðu, og ná inn sam­kvæmt könnun Prósents eru Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólks­ins. Þeir mæl­ast sam­an­lagt með 33 þing­menn. Þessi staða myndi þó breyt­ast hratt ef annað hvort Mið­flokk­ur­inn eða Sós­í­alista­flokkur Íslands bættu lít­il­lega við sig og færu yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn. Það myndi senni­leg­ast þýða að þrír þing­menn hið minnsta myndu fær­ast yfir á þann flokk.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Framsókn gætu losað sig við Vinstri græn og tekið Viðreisn inn í rík­is­stjórn sem væri með minnsta mögu­lega meiri­hluta, 32 þing­menn gegn 31. Afar ósenni­legt verður að telj­ast að Sam­fylk­ing eða Píratar myndu ganga inn í slíka rík­is­stjórn sem þriðji flokkur og því yrði það eini raun­hæfi mögu­leik­inn á þriggja flokka rík­is­stjórn með aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks.

Ef Sam­fylk­ingin ætl­aði að mynda stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks þá væri mögu­leiki á því að mynda þriggja flokka stjórn, miðað við nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar, með Framsókn og Pírötum. Hún myndi einnig hafa minnsta mögu­lega meiri­hluta.

Nokkrir mögu­leikar væru hins vegar á fjög­urra flokka stjórnum. Í slíkum væri til dæmis hægt að skilja bæði Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk eftir í stjórn­ar­and­stöðu en saman eru Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn með 34 þing­menn.

Flestir treysta Kristrúnu

Frétta­blaðið birti í gær könnun Prósents sem sýndi traust til for­manna stjórn­mála­flokka lands­ins. Þar kom fram að Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, nyti mest trausts slíkra en 25,4 pró­sent aðspurðra sögð­ust treysta henni best.

[links]Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, kom þar næst en alls 17,5 pró­sent sögð­ust treysta henni. Hún hefur vana­lega mælst sá stjórn­mála­maður sem flestir Íslend­ingar treysta og vin­sældir hennar náðu lengi langt út fyrir flokk­inn sem hún stýrir. Þær hafa þó verið á hröðu und­an­haldi, sér­stak­lega á þessu kjör­tíma­bili.

Þá sögð­ust 15,4 pró­sent treysta Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, best allra for­manna flokk­anna. 11,3 pró­sent treysta Sig­urði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, mest og 9,7 pró­sent treysta Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, for­manni Við­reisn­ar, best.

Katrín segir við Frétta­blaðið í dag að kann­anir hreyfi ekki sér­stak­lega við henni. „Eins og allir vita, sem vita eitt­hvað um póli­tík, er það hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra að halda saman rík­is­stjórn. Það er flókið verk­efni.“

Kristrún segir á sama stað að mæl­ingin sé ánægju­leg en að hún sé með­vituð um að veg­ferð hennar sé rétt að hefj­ast, og að hún verði löng. „Ég er þakk­lát fyrir að hafa náð eyrum fólks en ég held að það verði að setja þessa mæl­ingu í sam­hengi við atburði síð­ustu vikna. Traust til stjórn­mála og Alþingis er mjög vand­með­farið.“ Könnunin var net­könnun fram­kvæmd 14. til 17. nóv­em­ber. Úrtakið var 2.600 og svar­hlut­fallið 51,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár