Talið aftur í Suðurkjördæmi

Yfir­kjör­stjórn í Suð­ur­kjör­dæmi hefur ákveðið að verða við beiðnum sem bár­ust frá nokkrum stjórn­mála­flokkum um að telja öll atkvæðin í Suð­ur­kjör­dæmi aftur.

Ákveðið hefur verið að telja atkvæðin í Suðurkjördæmi að nýju.
Ákveðið hefur verið að telja atkvæðin í Suð­ur­kjör­dæmi að nýju. Mynd: Bára Huld Beck

Yfir­kjör­stjórn Suð­ur­kjör­dæmis ákvað á fundi sínum í dag að verða við beiðnum um að öll atkvæði í Suð­ur­kjör­dæmi verði talin að nýju. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­manni yfir­kjör­stjórnar í kjör­dæm­inu, Þóri Har­alds­syni.

Taln­ingin fer fram í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands á Selfossi í kvöld og hefst kl. 19.

Umboðs­menn allra fram­boðs­lista verða boð­aðir til fundar með yfir­kjör­stjórn á sama stað kl. 18:30. Taln­ingin mun fara fram fyrir opnum tjöldum, í sam­ræmi við lög.

Í gær sagði for­maður yfir­kjör­stjórn­ar­innar í kjör­dæm­inu fjöl­miðlum frá því að farið hefði verið yfir um 10 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­inu og engin villa komið í ljós við þá yfir­ferð. Því hefði verið afráðið að ekki væri þörf á að telja öll atkvæðin aftur.

Hann sagði við Kjarnann í dag að sá háttur hefði verið hafður á við taln­ingu í kjör­dæm­inu á kosn­inga­nótt að hverju ein­asta atkvæði hefði verið raðað og það talið að minnsta kosti fjórum sinnum, af minnsta kosti tveimur taln­ing­ar­mönnum.

Skekkja í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni

Ákveðin óvissa ríkir enn um nið­ur­röðun jöfn­un­ar­þing­manna fimm flokka, eftir að skekkja kom fram í taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í gær sem setti hringekju jöfn­un­ar­manna af stað á milli kjör­dæma.

Um miðjan dag í gær sögðu fjöl­miðlar frá því að öll atkvæði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi yrðu talin aftur vegna þess hversu lít­ill munur var á jöfn­un­ar­þing­mönnum á milli kjör­dæma.

[adspot]

Ingi Tryggva­son, yfir­maður kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sagði þá að kjör­stjórn hefði ákveðið að telja atkvæðin aftur vegna lít­ils mun­ar. Eng­inn flokkur hefði farið fram á end­ur­taln­ingu.

Eftir end­ur­taln­ing­una færð­ust jöfn­un­ar­sæti flokka á milli kjör­dæma og þannig viku fimm ein­stak­lingar sem töldu sig vera inni á þingi í gær­morgun fyrir öðrum fimm seinni part­inn.

Þegar þessi staða var orðin ljós varð svo ljóst að lítil hreyf­ing á fjölda atkvæða í Suð­ur­kjör­dæmi gæti haft áhrif á það hvort nið­ur­staðan myndi breyt­ast að nýju, en aðeins munar sjö atkvæðum á því hvort jöfn­un­ar­þing­sæti falli til Vinstri grænna eða Mið­flokks­ins.

Fjórar stjórn­mála­hreyf­ingar ósk­uðu eftir því að atkvæði yrðu talin að nýju og yfir­kjör­stjórnin í kjör­dæm­inu hefur sem áður segir ákveðið að verða við því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár