Konur enn færri en karlar á Alþingi

Í morgun leit út fyrir að Alþingi Íslend­inga yrði í fyrsta skipti í sög­unni skipað fleiri konum en körlum á því kjör­tíma­bili sem nú fer í hönd. Eftir end­ur­taln­ingu er staðan allt önnur: 30 konur náðu kjöri en 33 karlar.

Þær voru víst 30 en ekki 33, konurnar sem náðu kjöri. Píratar missa eina konu, Samfylking eina og Vinstri græn eina.
Þær voru víst 30 en ekki 33, kon­urnar sem náðu kjöri. Píratar missa eina konu, Sam­fylk­ing eina og Vinstri græn eina. Mynd: Skjáskot: RÚV

Leið­rétt­ing: End­ur­taln­ing í Norð­vest­ur­kjör­dæmi nú undir kvöld hefur leitt í ljós mis­ræmi í taln­ingu atkvæða. Síðdegis var ákveðið að telja þar aftur og nið­ur­staðan breytir miklu: Konur eru ekki meiri­hluti þing­manna.

Þrjátíu konur náðu kjöri til Alþingis í kosn­ing­unum í gær og 33 karlar. Í níu klukku­stundir leit út fyrir að nið­ur­staðan væri einmitt öfug og að konur hefðu í fyrsta sinn í sög­unni náð meiri­hluta á þing­inu. Konur eru einnig innan við helm­ingur þing­manna stjórn­ar­flokk­anna þriggja, eða átján af þeim 37 sem sam­an­lagt náðu kjöri en voru nítján fyrir end­ur­taln­ing­una. Engin gler­þök voru því brotin í morgun líkt og talið var.

Á þing fyrir stærsta flokk lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokk, setj­ast sjö konur en flokk­ur­inn fékk sextán þing­menn kjörna. Framsókn fékk þrettán þing­menn kjörna, þar af sex konur. Vinstri græn náðu átta þing­mönnum og af þeim eru fimm konur.

Af sex þing­mönnum Sam­fylk­ingar eru fjórar konur. Af sex þing­mönnum Pírata eru þrjár konur og þrjár eru sömu­leiðis í fimm manna þing­manna­hópi Við­reisnar. Tvær konur munu setj­ast á þing fyrir Flokk fólks­ins af sex þing­mönnum sem náðu kjöri. Mið­flokk­ur­inn náði þremur inn á þing. Engin kona er í þeim hópi.

[adspot]

Konur leiddu 28 af 61 fram­boðs­lista þeirra ell­efu stjórn­mála­flokka sem voru í kjöri fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar eða tæp 46 pró­sent þeirra. Af þeim 305 sem raðað var í efstu fimm sæti allra þess­ara lista voru 147 skipuð konum eða rúm 48 pró­sent.

Á þeim 99 árum sem liðin eru frá því að fyrsta konan, Ingi­björg H. Bjarna­son, var kosin til setu á Alþingi, hefur fjöldi þing­kvenna verið allt frá engri upp í 33 og höfðu þær aldrei, fyrr en nú, náð að verða fleiri en karlar. Fyrir þessar kosn­ingar höfðu konur sam­tals verið um fimmt­ungur allra þing­manna. Eftir kosn­ing­arnar í gær eru þær hins vegar orðnar tæp 24,5 pró­sent þing­manna á þess­ari tæpu öld.

Fyrir komu Kvenna­list­ans hafði hlut­fall kvenna á Alþingi verið um eða undir 5 pró­sent í yfir 60 ár. Með til­komu fram­boðs­ins varð fjöldi kvenna á Alþingi í fyrsta sinn yfir 10 pró­sent og aðeins fjórum árum síðar var hlut­fallið orðið 20 pró­sent. Því hlut­falli héldu konur í 12 ár og náði það í fyrsta sinn yfir 30 pró­sent árið 1999. Síðan þá hefur hlut­fall kvenna á þingi ávallt verið yfir 30 pró­sent og hefur nú þrí­vegis náð yfir 40 pró­sentin; árin 2009, 2016 og 2021 en 47,6 pró­sent þeirra sem náðu kjöri í gær eru konur.

Eftir alþing­is­kosn­ing­arnar árið 2016 hlutu konur einnig 47,6 pró­sent þing­sæta og höfðu aldrei verið fleiri. Ári síðar urðu stjórn­ar­slit og kosið var að nýju. Í þeim kosn­ingum náðu 24 konur kjöri, hlutu því um 38 pró­sent þing­sæta sem var þá lægsta hlut­fall kjör­inna kvenna á Alþingi í ára­tug. Á kjör­tíma­bil­inu sagði einn karl af sér þing­mennsku og í hans stað kom kona. Þar með urðu þing­konur 25 og hlut­fall þeirra á þingi 39,6 pró­sent.

Ingi­björg H. Bjarna­son var lands­kjörin í kosn­ingum 8. júlí árið 1922 og sat hún á þingi til árs­ins 1930 og var allan þann tíma eina þing­konan. Guðrún Lár­us­dóttir var lands­kjörin árið 1930 og árið 1934 varð hún fyrsta konan til að vera kjörin á Alþingi í almennum þing­kosn­ingum. Hún lést árið 1938 og engin kona sat á Alþingi frá 1938 til 1946. Þremur árum síðar, 1949, voru í fyrsta skipti tvær konur kjörnar. Þær sátu báðar til árs­ins 1953 en í kosn­ingum það ár náði engin kona kjöri. Næstu árin voru því ýmist engin, ein eða tvær konur á Alþingi Íslend­inga. Fyrsta konan sem varð ráð­herra var Auður Auðuns árið 1970.

Árið 1971 var komið að tíma­mótum er þrjár konur voru í fyrsta skipti kjörnar: Auður Auðuns, Ragn­hildur Helga­dóttir (sem hafði setið á þingi frá 1956) og Svava Jak­obs­dóttir. Árið 1978 sett­ist Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir á Alþingi og sat þar allt til árs­ins 2013 eða í tæp 35 ár, lengst allra kvenna.

Stórt stökk varð í kosn­ing­unum vorið 1983 er Kvenna­list­inn bauð fram í þremur kjör­dæmum. Fram­boðið hafði einnig þau áhrif að aðrir flokkar fjölg­uðu einnig konum á fram­boðs­listum sínum. Kvenna­list­inn hlaut 5,5 atkvæða á lands­vísu og þrjá full­trúa inn á Alþingi. Sex aðrar konur hlutu þing­sæti í þessum kosn­ingum, tvær fyrir Bandalag jafn­að­ar­manna, ein fyrir Alþýðu­banda­lagið, tvær fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og ein fyrir Alþýðu­flokk­inn. Konur á Alþingi urðu níu tals­ins og hlut­fall þeirra hækk­aði úr 5 í 15 pró­sent. Á næsta kjör­tíma­bili varð enn mikil fjölgun og sautján konur sett­ust á þing. Enn ein tíma­mótin urðu svo í lok kjör­tíma­bils­ins sem hófst árið 1995 er nítján konur sátu sam­tímis á þingi og voru þá í fyrsta sinn 30 pró­sent allra þing­manna. Á þessu sama kjör­tíma­bili var kona svo einnig kjörin for­maður stjórn­mála­flokks beggja kynja í fyrsta sinn, Margrét Frí­manns­dóttir, sem varð for­maður Alþýðu­banda­lags­ins árið 1995.

Þrír kven­ráð­herrar voru svo í fyrsta sinn í rík­is­stjórn sem mynduð var eftir kosn­ing­arnar 1999 er 22 konur náðu kjöri (35 pró­sent þing­sæta): Ingi­björg Pálma­dóttir heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra, Siv Frið­leifs­dóttir umhverf­is­ráð­herra og Sólveig Pét­urs­dóttir dóms- og kirkju­mála­ráð­herra. Val­gerður Sverr­is­dóttir tók svo við emb­ætti iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra 31. des­em­ber 1999 og kven­ráð­herrar þá orðnir fjórir.

Hlutfall kvenna á Alþingi lækk­aði eftir alþing­is­kosn­ing­arnar 2003, í fyrsta sinn síðan að Kvenna­list­inn bauð fram, tveimur ára­tugum fyrr. Þeim átti reyndar eftir að fjölga er leið á kjör­tíma­bilið og urðu að end­ingu 23.

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók fyrst kvenna við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í febr­úar 2009. Í þess­ari minni­hluta­stjórn með Vinstri grænum, sem sat þar til í maí þetta ár, voru tíu ráð­herrar, þar af helm­ing­ur­inn konur í fyrsta skipti í stjórn­mála­sög­unni. 27 konur voru kjörnar á þing í kosn­ing­unum vorið 2009 en þeim fækk­aði svo lít­il­lega eftir kosn­ing­arnar árið 2013 eða í 25. Við lok kjör­tíma­bils­ins hafði þeim hins vegar fjölgað, voru orðnar 29 og þar með 46 pró­sent þing­manna.

Enn ein jákvæðu tíma­mótin urðu svo í kosn­ing­unum haustið 2016 er sá sögu­legi við­burður átti sér stað að 30 konur voru kjörnar á Alþingi Íslend­inga. Þær skip­uðu því 47,6 pró­sent þing­sæta.

Ekki tókst að mynda rík­is­stjórn fyrr en í jan­úar 2017. Í henni voru ell­efu ráð­herrar, þar af fjórar konur. Upp úr þessu stjórn­ar­sam­starfi slitn­aði hins vegar sama haust og kosið var að nýju í lok októ­ber. Þá kom enn eitt bakslagið og aðeins 24 konur náðu kjöri og fækk­aði um sex frá hinum sögu­legu kosn­ingum árið áður. Ellefu ráð­herrar tóku sæti í rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, þar af fimm konur. Ein kona vék úr ráð­herra­stóli á kjör­tíma­bil­inu, Sigríður Andersen, og í stað hennar kom Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir. Áslaug er yngsti kven­ráð­herra sög­unnar en hún var 28 ára er hún tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

Sam­an­tekt um sögu þing­kvenna er m.a. fengin af vef Alþingis og úr BA-rit­gerð Ásdísar Bjargar Björg­vins­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár