Listar yfir nýkjörna þingmenn sendir á yfirkjörstjórnir

Þeir fimm fram­bjóð­endur sem duttu skyndi­lega inn á þing sem jöfn­un­ar­menn eftir end­ur­taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi á sunnu­dag munu verða þing­menn á næsta kjör­tíma­bili, nema Alþingi ákveði annað.

Þau fimm sem duttu inn á þing sem jöfnunarmenn síðdegis á sunnudag verða að óbreyttu þingmenn.
Þau fimm sem duttu inn á þing sem jöfn­un­ar­menn síð­degis á sunnu­dag verða að óbreyttu þing­menn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Úthlutun jöfn­un­ar­þing­sæta á nýju þingi mun, nema Alþingi kom­ist að ein­hverri annarri nið­ur­stöðu, verða í sam­ræmi við nið­ur­stöður end­ur­taln­ingar atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sem setti mikla jöfn­un­ar­manna­hringekju af stað á sunnu­dag­inn.

Þetta má ráða af orðum Krist­ínar Edwald, for­manns lands­kjör­stjórnar, sem segir að lands­kjör­stjórn hafi enga heim­ild til þess að óska eftir end­ur­taln­ingu atkvæða í ein­staka kjör­dæmum. „Við getum ekki tekið þá ákvörðun,“ segir Kristín og bætir við við að ákvarð­anir um slíkt séu alfarið á ábyrgð yfir­kjör­stjórna.

Hún stað­festir að í morgun hafi lands­kjör­stjórn sent yfir­kjör­stjórnum í öllum kjör­dæmum lista yfir þá þing­menn sem eru inni í hverju kjör­dæmi á grunni þess­ara nið­ur­staðna. Nú fara yfir­kjör­stjórn­irnar yfir listana og færa inn breytt atkvæði – útstrik­anir – og athuga hvort þær hafi ein­hver áhrif.

Landskjörstjórn fundar í dag

Stefnt er á að lands­kjör­stjórn fundi kl. 16:30 í dag, en þá ætti kjör­stjórnin að vera búin að fá í hendur grein­ar­gerðir yfir­kjör­stjórna vegna taln­ingar atkvæða í bæði Suð­ur­kjör­dæmi og Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sem réð­ust bæði í end­ur­taln­ingu atkvæða.

Í sam­tali við Kjarnann sagði Laufey Helga Guð­munds­dóttir, rit­stjóri og rit­ari lands­kjör­stjórnar, að búist sé við báðum skýrslum síðar í dag.

[adspot]

Öll atkvæði voru talin á ný í Suð­ur­kjör­dæmi í gær­kvöldi og þar kom nið­ur­staðan heim og saman við þær loka­tölur sem gefnar voru út til fjöl­miðla á sunnu­dags­morgun. Engu skeik­aði.[links]

Eins og frægt hefur orðið átti hið sama ekki við í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en þar voru skekkjur í fjölda atkvæða hvers ein­asta flokks og einnig hvað auða og ógilda seðla varðar, á milli talna sem voru kynntar fjöl­miðlum ann­ars vegar á sunnu­dags­morgun og hins vegar síð­degis þann sama dag, eftir að ákveðið hafði verið að telja á ný. Fram hefur komið að með­ferð kjör­gagna á taln­ing­ar­stað þeirra í Borg­ar­nesi var ekki í sam­ræmi við lög.

Skýrslu­skilin í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafa dreg­ist, en yfir­kjör­stjórnin í kjör­dæm­inu fékk frest til að skila vegna per­sónu­legra ástæðna for­mann yfir­kjör­stjórn­ar­innar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var hann við jarð­ar­för í gær og gat yfir­kjör­stjórnin því ekki komið saman til fundar fyrr en í gær­kvöldi til þess að ljúka við grein­ar­gerð sína.

Kærur til lögreglu og Alþingis

Tveir fram­bjóð­endur til Alþingis hafa þegar boðað að fram­kvæmdin í Norð­vest­ur­kjör­dæmi verði kærð.

Karl Gauti Hjalta­son fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi sagð­ist í gær ætla að beina kæru til lög­reglu til að fá rann­sókn á með­ferð kjör­gagna í kjör­dæm­inu og Magnús Davíð Norð­dahl fram­bjóð­andi Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi seg­ist ætla sér að leggja fram kæru til kjör­bréfa­nefndar Alþing­is, sem er eini aðil­inn sem getur ógilt þær nið­ur­stöður sem yfir­kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis hefur sett fram.

Fimm inn – fimm út

Þær manna­breyt­ingar sem urðu þegar skekkjan í taln­ing­unni í Borg­ar­nesi kom í ljós á sunnu­dag­inn snerta jöfn­un­ar­þing­menn fimm flokka.

Hjá Viðreisn verður Guð­mundur Gunn­ars­son ekki þing­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis, heldur verður Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis. Mið­flokks­mað­ur­inn Karl Gauti Hjalta­son verður ekki þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis og í stað hans kemur Bergþór Ólason inn sem þing­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar fer ekki inn á þing fyrir Reykja­vík suður, heldur verður Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður. Hjá Pírötum verður Lenya Rún Taha Karim ekki þing­maður í Reykja­vík norður, heldur verður Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis.

Hjá Vinstri grænum verður Orri Páll Jóhanns­son síðan þing­maður Reykja­víkur norður, en Hólm­fríður Árna­dóttir odd­viti flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi fer ekki inn á þing.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár