Hólmfríður Árnadóttir leiðir VG í Suðurkjördæmi

Hólm­fríður Árna­dóttir skóla­stjóri í Sand­gerði skaut bæði sitj­andi þing­manni og upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar ref fyrir rass í for­vali VG í Suð­ur­kjör­dæmi. Raunar röð­uð­ust konur í þrjú efstu sætin í for­val­inu.

Hólmfríður Árnadóttir varð hlutskörpuð í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi.
Hólm­fríður Árna­dóttir varð hlut­skörpuð í for­vali Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi. Mynd: Aðsend mynd

Hólm­fríður Árna­dóttir skóla­stjóri í Sand­gerði hlaut efsta sætið í for­vali Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs í Suð­ur­kjör­dæmi, en atkvæða­greiðsl­unni lauk kl. 17 í dag. Hólm­fríður hlaut 165 atkvæði í efsta sæti list­ans.

Í öðru sæti í for­val­inu varð Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir með 188 atkvæða í 1.-2. sæti list­ans og í þriðja sæti varð Sigrún Birna Stein­ars­dóttir með 210 atkvæði í 1.-3. sæti.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, sem í dag er þing­maður flokks­ins í Reykja­vík, hafn­aði í fjórða sæti í for­val­inu og fékk 176 atkvæði í 1.-4. sæti. Í fimmta sæti varð Helga Tryggva­dóttir, en hún fékk 264 atkvæði í 1.-5. sæti.

Viðbúið að leiðrétta þurfi hlut karla

Einungis einn karl er því í efstu fimm sæt­unum í for­val­inu. Samkvæmt Sæmundi Helga­syni, sem er for­maður kjör­stjórnar Vinstri grænna í kjör­dæm­inu, er við­búið að ein­hverjar til­fær­ingar verði á röð efstu fram­bjóð­enda áður en list­inn komi fram, til þess að jafna hlut karla og kvenna, í sam­ræmi við lög og stefnu VG.

Óljóst er þó nákvæm­lega hvernig það verður gert, en Sæmundur segir við Kjarnann að fyrst verði að koma í ljós hvernig vinnst úr þess­ari nið­ur­stöðu flokks­manna og hverjir hygg­ist þiggja sæti á lista.

Það verður í höndum kjör­stjórnar að leggja fram end­an­legan 20 manna lista til sam­þykktar á kjör­dæm­is­þingi.

[adspot]

Alls voru átta manns í fram­boði og fimm manns sótt­ust eftir trausti félaga sinna til að leiða list­ann til kom­andi alþing­is­kosn­inga.

Auk Hólm­fríðar, Heiðu Guðnýjar og Kolbeins sótt­ust þeir Róbert Marshall, fyrr­ver­andi þing­maður og upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og Almar Sig­urðs­son eftir því að leiða lista flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Kosn­inga­þátt­taka í for­val­inu var 68 pró­sent, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá flokknum, en alls greiddu 456 manns af 671 á kjör­skrá atkvæði í for­val­inu.

Gaf kost á sér þegar Ari Trausti sagðist ekki ætla fram á ný

Hólm­fríður gaf það út snemma að hún hygð­ist gefa kost á sér til þess að leiða list­ann, eða ein­ungis degi eftir að Ari Trausti Guð­munds­son þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu gaf það út að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir þing­sæti að nýju. Það var í lok nóv­em­ber.

Hún hefur hefur verið virk í starfi VG und­an­farin ár og er for­maður svæð­is­fé­lags flokks­ins á Suð­ur­nesj­u­m.

Er hún til­kynnti um fram­boð sitt sagði hún að það skipti miklu að „íbúi af fjöl­menn­asta og fjöl­breyttasta svæði kjör­dæm­is­ins leiði list­ann með jafn­rétti, jöfn­uð, lýð­ræði, sjálf­bærni, fjöl­menn­ingu og rétt­læti að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár