Steingrímur J. Sigfússon hættir

Forseti Alþingis mun ekki vera í fram­boði í næstu þing­kosn­ingum. Það verður í fyrsta sinn frá 1978 sem hann verður ekki í fram­boði til Alþingis.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis og fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, mun ekki gefa kost á sér í þing­kosn­ing­unum á næsta ári. Þar með mun nýr odd­viti leiða fram­boð Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi haustið 2021.

Þetta kom fram í máli Stein­gríms á fundi kjör­dæm­is­ráðs Norð­aust­ur­kjör­dæmis í dag. Í til­kynn­ingu frá Vinstri grænum segir að Stein­grímur hætti sáttur og mjög stoltur af árangri hreyf­ing­ar­innar. Þá kveðst hann vera bjart­sýnn á fram­tíð Vinstri grænna í lands­mál­unum, hún hefði verið til góðs fyrir sam­fé­lagið og þannig yrði það áfram.

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, tjáði sig um vænt brott­hvarf Stein­gríms af hinu póli­tíska sviði í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Þar sagði hún: „Félagi minn, Stein­grímur J. Sig­fús­son, til­kynnti í dag að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram í næstu alþing­is­kosn­ingum. Þetta gerði hann á fjar­fundi kjör­dæm­is­ráðs Norð­aust­ur­kjör­dæmis. Sjaldan hefur mér fund­ist jafn leið­in­legt að vera ekki á stað­fundi því við þetta tæki­færi langar mann svo sann­ar­lega að standa upp og klappa fyrir merki­legum stjórn­mála­manni. Ég hef setið með honum á þingi, þó ekki nema um það bil þriðj­ung af hans þing­tíma 😊, bæði á erf­iðum tímum í rík­is­stjórn­inni 2009-2013 þar sem hann vann mikið þrek­virki sem fjár­mála­ráð­herra og einnig eftir að hann lét af for­mennsku en tók að sér marg­háttuð verk­efni í þing­inu enda svo reynslu­mik­ill að það gilti einu hvaða nefndum hann sat í. Það skemmti­leg­asta við þessa sam­veru hafa þó verið funda­ferðir út um land, ekki síst um hans kjör­dæmi þar sem hann þekkir hverja þúfu og hverja kind. Meira ætla ég ekki að segja að sinni, ég fæ betra tæki­færi til að reifa feril Stein­gríms síðar, og við eigum heilan þing­vetur eftir saman. Og von­andi fæ ég tæki­færi til að ganga með honum um Langanes næsta sumar, ég veit að drengirnir mínir von­ast til þess!”

Stein­grímur er fæddur á Gunn­ars­stöðum í Þistil­firði 4. ágúst 1955, hefur setið á Alþingi fyrir Norð­ur­lands­kjör­dæmi eystra og síðan Norð­aust­ur­kjör­dæmi frá því 1983 og er með lengsta þing­reynslu allra núver­andi þing­manna.

Hann hefur leitt fram­boðs­lista í síð­ustu 11 alþing­is­kosn­ingum og verið í fram­boði í öllum kosn­ingum síðan 1978. Hann sat fyrst á þingi fyrir Alþýðu­banda­lagið, var for­maður þing­flokks Alþýðu­banda­lags­ins um tíma.

Stein­grímur stofn­aði Vinstri Græn ásamt fleiri félögum árið 1999. Stein­grímur hefur á sínum þing­ferli verið land­bún­aðar- og sam­göngu­ráð­herra, fjár­mála, sjáv­ar­út­vegs og land­bún­að­ar­ráð­herra, efna­hags og við­skipta­ráð­herra og atvinnu­vega og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Þá hefur Stein­grímur verið leið­andi í nor­rænu sam­starfi bæði í Norð­ur­landa­ráði og Vest­nor­ræna ráð­inu. Hann hefur verið for­seti Alþingis, fyrst í stuttan tíma 2016 og fram í jan­úar 2017 og síðan aftur frá því eftir kosn­ingar 2017 og er enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár