Sigríður Andersen segir til umhugsunar hvort Vinstri græn séu stjórntækur flokkur

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir að það hafi verið horft í for­undran á það innan Sjálf­stæð­is­flokks að hluti þing­manna sam­starfs­flokks styddu ekki rík­is­stjórn­ina. Þeir væru oft með óbragð í munni vegna ýmissa mála sem hafi samt fengið fram­gang.

Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Sigríður Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: RÚV/Skjáskot

Sigríður Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að það sé til umhugs­unar hvort að Vinstri gær séu „stjórn­tæk yfir höfuð í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.“ Þetta sagði hún í Silfrinu í dag.

Þar var Sigríður að ræða um brott­hvarf Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur úr Vinstri grænum og benti á að í bæði skiptin sem að flokk­ur­inn hefði setið í rík­is­stjórn þá hefðu þing­menn hans sagt sig úr flokknum eða þing­flokknum. Í fyrra skiptið sem Vinstri græn mynd­uðu rík­is­stjórn, með Sam­fylk­ing­unni eftir kosn­ing­arnar 2009, þá hefðu fimm þing­menn horfið á braut á meðan að á kjör­tíma­bil­inu sem lauk 2013 stóð. Nú hafi tveir þing­menn, Rósa Björk og Andrés Ingi Jónsson, sagt sig úr Vinstri grænum á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, en hvor­ugt þeirra studdi rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk þegar til þess var stofnað eftir kosn­ing­arnar 2017, og kusu gegn stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur.

Sigríður sagði að innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi verið horft á það„í for­undran“ frá upp­hafi að tveir þing­menn sam­starfs­flokks styddu ekki rík­is­stjórn­ina. Það hafi líka komið þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks á óvart hversu mikil áhrif and­stöðu­öflin innan þing­flokks Vinstri grænna hefðu haft þar þrátt fyrir þessa afstöðu, og ein­hvers­konar stjórn á málum.

[adspot]Þingmenn í Sjálf­stæð­is­flokknum væru með óbragð í munni vegna ýmissa mála sem hafi samt fengið fram­gang vegna rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins. Þeim væri ljóst að gera þyrfti mála­miðl­anir í slíku sam­starfi.

Að hennar mati ætti ásýnd Vinstri grænna í þing­inu að vera áhyggju­efni fyrir flokk­inn.

Útlendingamálin erfið

Rósa Björk sendi frá sér yfir­lýs­ingu 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hún greindi frá því að þann hefðu hún átt fund með Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manni Vinstri grænna, og til­kynnt henni um úrsögn sína úr þing­flokki Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs og úr hreyf­ing­unn­i. „Nýlegir atburðir er varða brott­vísun stjórn­valda á barna­fjöl­skyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mán­uði og við­brögð rík­is­stjórnar sem VG er í for­ystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn end­an­lega að ég á ekki lengur sam­leið með þing­flokki VG.“

Rósa var einnig gestur í Silfrinu í dag og sagði þar að útlend­inga­mál hefðu reynst Vinstri grænum sem hreyf­ingu mjög erfið. „Það er bara búið að taka ákvörðum um það að fylgja harð­ari línu í þessum mála­flokki en áður, og við því get ég ekki setið undir.“

Rósa Björk er annar þing­maður Vinstri grænna sem segir sig úr þing­flokknum á þessu kjör­tíma­bili. Í lok nóv­em­ber í fyrra sagð­i Andrés Ingi sig úr honum og greindi frá því að hann myndi starfa sem óháður þing­maður út kjör­tíma­bil­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár