Hvað er að gerast á hlutabréfamarkaðnum?

Nýliðin vika var tíð­inda­mikil í Kaup­höll­inni, en þrjú fyr­ir­tæki birtu afkomu­við­vörun og vísi­tala mark­að­ar­ins lækk­aði tölu­vert. Er ástæða til að hafa áhyggjur af hluta­bréfa­mark­aðnum á Íslandi?

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands. Mynd: Nasdaq Iceland

Hart er í ári á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum, en þrjár afkomu­við­var­anir hafa birst á vef Kaup­hall­ar­innar frá byrjun vik­unnar. Staðan virð­ist ekki heldur góð þegar til lengri tíma er litið, en meg­in­vísi­tala OMX á Íslandi hefur lækkað um tæp átta pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Hvers vegna gengur íslenskum skráðum hluta­fé­lögum jafnilla og raun ber vitni á tímum upp­gangs í efna­hags­líf­inu?

Ris og fall í hlutabréfum

Árið fór vel af stað í Kaup­höll­inni með um 7,7 pró­senta hækkun OMX vísi­töl­unnar í jan­ú­ar­mán­uði í kjöl­far nokk­urrar lægðar fyrri mán­aða. Hækkunin var sú mesta sem Kaup­höllin hafði séð í hálft ár, en mark­að­ur­inn átti undir högg að sækja á síð­ari hluta árs­ins 2017. Samkvæmt grein Eggerts Þórs Aðal­steins­sonar í Vís­bend­ingu í fyrra mátti helst rekja minnk­andi mark­aðs­verð­mæti íslensku fyr­ir­tækj­anna til óstöð­ug­leika í geng­is­málum, breyt­inga í sam­keppn­isum­hverfi fyr­ir­tækja og póli­tíska óvissu.

Í jan­úar tók svo að birta til á mark­aðnum, en í sam­tali Kjarnans við grein­ing­ar­að­ila voru helstu ástæður hækk­unar á Kaup­hall­ar­vísi­töl­unni í jan­úar gott gengi Marels og dvín­andi áhrif inn­komu Costco á Haga. Hækkunin hélst út allan fyrsta árs­fjórð­ung­inn með heilt yfir jákvæðri nið­ur­stöðu úr upp­gjörum félag­anna og auk­ins áhuga erlendra fjár­fest­ing­ar­sjóða á íslenska mark­aðnum, þá helst í trygg­ingar-og fjar­skipta­fé­lögum.

Annar árs­fjórð­ungur hefur ekki verið eins gæfu­ríkur, en frá marslokum hefur nær öll hækkun OMX-vísi­töl­unnar á fyrsta árs­fjórð­ungi gengið til baka. Hröðust var lækk­unin í nýlið­inni viku, en Icelandair sendi frá sér afkomu­við­vörun síð­ast­lið­inn sunnu­dag þar sem afkomu­spá félags­ins fyrir annan árs­fjórð­ung var lækkuð um 30%. Í kjöl­farið féll hluta­bréfa­verð flug­fé­lags­ins um fjórð­ung á einum degi, en trygg­inga­fyr­ir­tækin VÍS og TM minnk­uðu svo einnig afkomu­spá sína seinna í vik­unni vegna slæmrar þró­unar á hluta­bréfa­mark­aði.

Fasteignafélög á niðurtúr

Fast­eigna­fé­lögin fjögur í Kaup­höll­inni, Reitir, Eik, Reginn og Heima­vellir, hafa öll lækkað umtals­vert á síð­ustu þremur mán­uðum eftir ágætan fyrsta árs­fjórð­ung, en sam­kvæmt grein­ing­ar­að­ilum gæti helsta skýr­ingin á lækk­andi gengi þeirra verið sú að vænt­ingar um lækkun vaxta Seðla­bank­ans hafi ekki gengið eftir.

Tryggingafyrirtækin fylgja

Ef litið er á trygg­inga­fé­lögin þrjú, Sjóvá, VÍS og TM, má sjá svip­aða þróun á öðrum árs­fjórð­ungi, þótt lækk­unin hafi ekki verið jafn­mikil hjá Sjóvá og TM. Hluta­bréf í VÍS hafa hins vegar tekið skarpa dýfu á síð­ustu vikum, eða allt frá því félagið ákvað að minnka hlutafé sitt og greiða fyrir það með bréfum í Kviku. Trygg­inga­fyr­ir­tækin eru einnig við­kvæm fyrir gengi ann­arra félaga í Kaup­höll­inni, en í afkomu­við­vör­unum sínum nefndi bæði VÍS og TM slæma þróun á hluta­bréfa­mark­aði sem eina af meg­in­á­stæðum verri afkomu á öðrum árs­fjórð­ungi.

Sameining N1 og Festa ókláruð

Gengi olíu­fé­lag­anna N1 og Shell hækk­aði tals­vert í byrjun árs, en verð á bréfum fyr­ir­tækj­anna hefur fallið nokkuð á síð­ustu tveimur vikum. Þann 26. Júní kall­aði Sam­keppn­is­eft­ir­litið eftir sjón­ar­miðum um fyr­ir­huguð kaup N1 á Festi, en N1 hafði von­ast til þess að geta komið þeim í gegn á öðrum árs­fjórð­ungi. Svo varð ekki og enn er óvíst hvort kaupin nái í gegn yfir­höfuð.

Arion stærri úti

Fyrstu dagar Arion banka í Kaup­höll­inni hafa ekki verið sér­lega gjöf­ulir, en hluta­bréfa­verð bank­ans hefur lækkað um tæp átta pró­sent frá því hann kom á markað fyrir tæpum mán­uði síðan. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans ríkti nokkur eft­ir­vænt­ing um að skrán­ing bank­ans myndi dýpka íslenska hluta­bréfa­mark­að­inn, en hingað til hafa stærstu við­skipti hans átt sér stað í Kaup­höll­inni í Stokk­hólmi.

Hækkandi olíuverð og aukin samkeppni

Stærsta dags­breyt­ing síð­asta árs­fjórð­ungs á einu fyr­ir­tæki í Kaup­höll­inni átti sér hins vegar stað hjá Icelandair síð­asta mánu­dag, morg­un­inn eftir birt­ingu afkomu­við­vör­unar félags­ins. Flug­fé­lagið segir meg­in­á­stæðu lækk­un­ar­innar vera hækk­andi olíu­verð auk harð­ari sam­keppni sem leiði til þess að flug­far­gjöld hafi ekki hækkað nógu mikið. Ljóst er að kreppt hafi að hjá flug­fé­lögum síð­ustu mán­uði, en WOW air greindi einnig frá miklum tekju­sam­drætti vegna olíu­verð­hækk­unar og auk­innar sam­keppni árið 2017 í til­kynn­ingu félags­ins síð­asta föstu­dag.

Ekki allt neikvætt

Margir ein­stakir þættir virð­ast hafa lagt til mik­illar lækk­unar á vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar und­an­farnar vikur og afkomu­við­var­ana þriggja fyr­ir­tækja á stuttum tíma. En þrátt fyrir slæmt gengi fjöl­margra félaga á síð­ustu vikum er ekki ein­ungis slæmar fréttir af íslensku Kaup­höll­inni. Til að mynda hefur hluta­bréfa­verð í Marel ekki enn misst flugið síðan það tók að hækka í byrjun árs og bréf Haga hafa einnig farið stig­hækk­andi frá því í jan­úar. Að sögn grein­ing­ar­að­ila er ekki ástæða til að örvænta vegna lækk­unar á OMX-vísi­töl­unni, þar sem verð­lagn­ingin á hluta­bréfum sé mjög góð heilt yfir mark­að­inn og mörg félög enn að skila góðri arð­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár