24% lækkun á bréfum Icelandair

Verð á hluta­bréfum Icelandair hefur lækkað um nær fjórð­ung í kjöl­far lækk­unar á afkomu­spá félags­ins í gær­kvöldi.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.
Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair. Mynd: Kjarninn.

Hluta­bréfa­verð Icelandair hefur lækkað um 24,02% það sem af er dags í Kaup­höll­inni, en félagið birti til­kynn­ingu í gær­kvöldi þar sem afkomu­spá þeirra fyrir 2018 var lækkuð um 30%.

Í til­kynn­ingu sinni sagði Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri félags­ins, töl­urnar vera „tals­verð von­brigði.“ Verð­þróun á mik­il­vægum áfanga­stöðum hafi ekki verið eins og áætl­anir þeirra gerðu ráð fyrir, en það hafi sér­stak­lega nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­spá.

Félagið hafði gert ráð fyrir hækkun á flug­far­gjöldum á síð­ari hluta árs­ins, en þær hafi hingað til ekki gengið eftir þrátt fyrir um helm­ings­hækkun á olíu­verði á síð­ustu 12 mán­uðum. Icelandair nefnir einnig að tölu­verðar afbók­anir hafi verið hjá hópum hjá Iceland Travel vegna minnk­andi sam­keppn­is­hæfni Íslands sem muni valda lak­ari afkomu í þeim rekstri á þessu ári

Laust fyrir hádegi hafði verið keypt fyrir 226 millj­ónir í félag­inu í dag, en hluta­bréfa­verðið lækk­aði um 24,02% vegna þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár