PLAY verður að hluta til í eigu erlendra aðila

Eign­ar­hald lággjalda­flug­fé­lags­ins PLAY verður að hluta til erlent en félagið verður þó að lang­mestu leyti í eigu Íslend­inga, sam­kvæmt núver­andi eig­anda.

Skúli Skúlason, eigandi PLAY.
Skúli Skúlason, eig­andi PLAY. Mynd: Bára Huld Beck

Skúli Skúlason eig­andi flug­fé­lags­ins PLAY segir erlendan aðila munu eiga tölu­verðan hluta af flug­fé­lag­inu í fram­tíð­inni. Þó verði eig­enda­hóp­ur­inn að lang­mestu leyti íslenskur. Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali Kjarnans við Skúla og Arnar Má Magn­ús­son, for­stjóra flug­fé­lags­ins.

[links]Í við­tal­inu segir Skúli að þrír hópar fjár­festa muni standa að félag­inu, en svo verði öðrum fjár­festum boðið að fylgja með: “Við erum komin langt með að loka við­ræðum við einn hóp og erum síðan í við­ræðum við nokkra aðra sem gætu verið hugs­an­legur þriðji aðili í þessum kjarna.”

Aðspurður hvaðan þessir hópar koma segir Skúli að eig­end­urnir muni að lang­mestu leyti verða íslenskir. “Það er erlendur aðili sem er með ágætis hlut samt, en kemur með mikil verð­mæti að borð­inu fyrir rekst­ur­inn og fyrir félagið,” bætir hann við.

[adspot]Skúli fer fyrir hópi fjár­festa sem á félagið FEA ehf, en það félag varð eig­andi alls hluta­fjár Play í byrjun maí, þegar flug­fé­lagið gat ekki greitt til­baka brú­ar­lán sem FEA veitti því í fyrra­vetur.

Í við­tal­inu sagði Arnar Már að eig­enda­skiptin hafi einnig falið í sér stefnu­breyt­ingu, þar sem fjár­mögn­unin kæmi nú að öllu leyti frá eig­endum félags­ins, en ekki frá lán­tak­endum. Flug­fé­lagið hafði áður tryggt sér vil­yrði um lán frá breska fjár­fest­ing­ar­sjóðnum Athene Capital í fyrra að and­virði rúmra 5,5 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár