Áratuga sviptingar í flugbransanum

Mörg flug­fé­lög eiga nú í erf­ið­leikum vegna afleið­inga kór­óna­veirunnar. Erf­ið­leikar, gjald­þrot og sam­ein­ing eru þó ekki ný bóla í flug­rekstri og dæmin eru mýmörg.

20. öldin hefur stundum verið kölluð öld flugsins. Öldin sem hinn nýi ferðamáti festi sig í sessi.
20. öldin hefur stundum verið kölluð öld flugs­ins. Öldin sem hinn nýi ferða­máti festi sig í sessi. Mynd: Unsplash/Suhyeon Choi

Flestir kann­ast við Wow, Primera, Iceland Express og Arn­ar­flug. Allt fyrr­ver­andi íslensk flug­fé­lög þar sem lagt var upp með fögur fyr­ir­heit og bjart­sýni að leið­ar­ljósi. Félög þar sem bjart­sýnin var kannski ekki í takt við raun­veru­leik­ann og til­vist þess­ara félaga heyrir sög­unni til. En fyrr­ver­andi flug­fé­lög er ekki íslenskur einka­klúbbur, öðru nær. Félögin sem farið hafa í þrot á und­an­förnum árum og ára­tugum skipta tugum, lík­lega frekar hund­ruðum. Canadian Airlines, Air Italy, EuroLOT, Sterling, Pan Am, Ansett Australia, Monarch Airlines, Air Berlin, Germania eru aðeins örfá nöfn á löngum lista flug­fé­laga sem ekki eru lengur til.

Öld flugsins

20. öldin hefur stundum verið kölluð öld flugs­ins. Öldin sem hinn nýi ferða­máti festi sig í sessi. Tækni­fram­far­irnar voru næsta ótrú­legar, flug­vél­arnar urðu sífellt full­komn­ari og hrað­fleyg­ari, og jafn­framt stærrri. Hér áður fyrr var elds­neyt­iseyðsla og útblástur ekki aðal­at­riði en nú er spar­neytni, og minni kolefn­islosun, eitt helsta leið­ar­ljós fram­leið­enda. Og þró­unin er sjálf­sagt ekki á enda.

Þjóðarstolt

Framan af síð­ustu öld voru starf­andi mörg flug­fé­lög sem með réttu mætti kalla þjóð­ar­flug­fé­lög. Sumum þeirra hafði bein­línis verið komið á fót fyrir til­stilli rík­is­ins, eða með mynd­ar­legri aðstoð hins opin­bera í hverju landi.

Þótt við Íslend­ingar séum fámenn þjóð áttum við lengi vel tvö flug­fé­lög sem með réttu mátti kalla þjóð­ar­flug­fé­lög, Loft­leiðir og Flug­fé­lag Íslands. Starf­semi þeirra byggð­ist á mik­illi bjart­sýni og dugn­aði en þar kom að allir gerðu sér ljóst að ekki væri rekstr­ar­grund­völlur fyrir tvö milli­landa­flug­fé­lög í land­inu og árið 1973 voru félögin tvö sam­einuð undir nafn­inu Flug­leiðir en erlenda heitið var Icelandair. Bæði eldri nöfnin voru þó til áfram og inn­an­lands­flugið bar lengi nafn Flug­fé­lags Íslands. Þessi saga verður ekki frekar rakin hér að öðru leyti en því að nafnið Flug­leiðir virð­ist algjör­lega horfið, nema í minn­ing­unni, og fyr­ir­tækið heitir nú Icelandair.

Mörg „þjóð­ar­flug­fé­lag­anna“ nutu for­rétt­inda í sínum heima­löndum, nutu for­gangs og aðstöðumunar á flug­völlum og í flug­stöðvum. Strangar reglur giltu um margt varð­andi flugið, hverjir máttu fljúga, hvert þeir máttu fljúga o.s.frv.

Breytingar

Á tíunda ára­tug síð­ustu aldar urðu miklar breyt­ingar í flug­málum. Evr­ópu­sam­bandið, og fyr­ir­renn­ari þess Efna­hags­banda­lag Evrópu, hafði lengi unnið að breyt­ingum í frjáls­ræð­isátt á þessu sviði. Árið 1991 urðu miklar breyt­ingar á reglum varð­andi vöru­flutn­inga og í árs­byrjun 1993 var síð­ustu tak­mörk­unum í milli­landa­flugi með far­þega rutt úr vegi. Jafn­framt þessu breytt­ust reglur varð­andi notkun flug­stöðva og flug­valla, þar sem heima­fé­lögin höfðu notið for­rétt­inda.

Þessar breyt­ingar höfðu mikil áhrif á „þjóð­ar­flug­fé­lögin“, og mörg þeirra lifðu ekki af. Hin svo­nefndu lággjalda­fé­lög, Norwegian, EasyJet, Ryan Air og fleiri urðu æ fyr­ir­ferð­ar­meiri. Mörg Evr­ópu­ríki völdu að styrkja „þjóð­ar­flug­fé­lögin til að tryggja áfram­hald­andi til­vist þeirra. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur á und­an­förnum árum fjallað um ótal kærur vegna ólög­legra rík­is­styrkja til „þjóð­ar­flug­fé­lag­anna“, ekki síst eftir að flug lagð­ist að veru­legu leyti af vegna kór­óna­veirunnnar. Lággjalda­fé­lögin hafa ekki siglt lygnan sjó, ef svo má segja, und­an­farin ár. Minnstu mun­aði að Norwegian færi í þrot en á síð­ustu stundu tókst að forða því. Ryan Air lenti líka í miklum ólgu­sjó en nú eru lággjalda­fé­lögin, að því er virð­ist, komin yfir mestu erf­ið­leik­ana, enda blússandi gangur í ferða­þjón­ust­unni.

Eins og áður sagði hafa á síð­ustu ára­tugum orðið miklar svipt­ingar í flug­brans­anum, félög horfið eða sam­ein­ast öðrum. Flug­rekstur er mjög sveiflu­kenndur, hagn­aður fljótur að breyt­ast í tap, og öfugt.

Eitt kemur þá annað fer

Hér verður greint frá örlögum nokk­urra félaga en list­inn er langt í frá tæm­andi.

Fyrsta nóv­em­ber árið 2001 lenti flug­vél frá belgíska flug­fé­lag­inu Sabena á Zaventem flug­vell­inum við Brussel. Vélin var að koma frá Cotonou í Benín, en lend­ingin tákn­aði enda­lok Sabena. Stjórn félags­ins hafði gert allt sem hugs­an­legt var til að bjarga því frá gjald­þroti en allt kom fyrir ekki. Sabena hafði starfað í 78 ár og var næstelsta flug­fé­lag í Evrópu. Á rústum félags­ins var til nýtt félag, SN Brussels Airlines. Nokkrum árum síðar sam­ein­að­ist nýja félagið breska flug­fé­lag­inu Virgin Express og fékk þá nafnið Brussels Airlines.

Swissair var stofnað árið 1931 og var lengi umtalað sem eitt traustasta flug­fé­lag í heimi, jafn­vel kallað „fljúg­andi banki“. Í kjöl­far hryðju­verk­anna í Banda­ríkj­unum 11. sept­em­ber 2001 stöðv­að­ist rekst­ur­inn um skeið en sviss­neska rík­is­stjórnin hljóp þá tíma­bundið undir bagga. Sögu Swissair lauk í lok mars 2002, með gjald­þroti. Til varð félagið Swiss, sem síðar varð hluti Luft­hansa félags­ins þýska. Sviss­nesk stjórn­völd tryggðu Swiss félag­inu nafnið Swissair, til að tryggja að það lenti ekki í ann­arra höndum.

Ókyrrð í lofti hjá Alitalia og Iberia í mótvindi

Þeir sem ferð­ast flug­leiðis þekkja flestir til­kynn­ingar um ókyrrð í lofti og ráð­legg­ingar um örygg­is­belti. Í rekstri ítalska flug­fé­lags­ins Alitalia hefur nán­ast frá stofnun árið 1946 ríkt ann­ars konar ókyrrð. Ítalska ríkið yfir­tók félagið árið 1961. Haft var á orði að vinnu­fatn­aður áhafna og starfs­fólks Alitalia væri sá flott­asti í brans­anum og þegar tísku­fröm­uð­ur­inn Georgio Armani fór að láta að sér kveða hann­aði hann bún­inga flug­á­hafna Alitalia, og inn­rétt­ingar flug­vél­anna. Bann Evr­ópu­sam­bands­ins við rík­is­styrkjum, árið 2006, gerði Alitalia erfitt fyrir og á árunum 2007-2008 var reynt að selja félagið en samn­inga­við­ræður við Air France- KLM sigldu í strand á síð­ustu stundu. Útlitið var dökkt og ítalska ríkið hélt félag­inu á floti með neyð­ar­lánum, í trássi við reglur ESB. Árið 2009 urðu eig­enda­skipti á félag­inu, Air France-KLM eign­uð­ust 25 pró­senta hlut í félag­inu. Rekst­ur­inn var áfram erf­iður og 2013 bjarg­aði ítalska ríkið félag­inu fyrir horn. Árið 2015 keypti Etihad Airways 49 pró­senta hlut í félag­inu, og til­kynnt var um miklar sparn­að­ara­gerðir. Í mars 2020 þjóð­nýtti ítalska ríkið félagið en félagið fór í þrot í októ­ber í fyrra. Nýtt félag, ITA, var stofnað á rústum hins gamla, að fullu í eigu ítalska ríks­ins. Nýja félagið keypti Alitalia nafnið.

Spænska rík­is­flug­fé­lagið Iberia var stofnað árið 1927. Félagið hefur ekki alla tíð haft byr undir vængjum og gengið á ýmsu í rekstr­inum. Árið 2010 samdi stjórn félags­ins við British Airways um sam­ein­ingu, sem varð að veru­leika í árs­byrjun 2011, móð­ur­fé­lagið heitir International Airlines Group, IAG. Þrátt fyrir sam­ein­ing­una fljúga bæði British Airways og Ibera áfram undir sínum gömlu nöfnum.

Air France-KLM

Árið 2003 gengu franska flug­fé­lagið Air France og hol­lenska KLM félagið í eina sæng. KLM, stofnað 1919 er elsta starf­andi flug­fé­lag í heimi. Air France var stofnað 1933, við sam­ein­ingu nokk­urra franskra félaga. Samruni Air France og KLM var stað­festur árið 2004 og þá flaug hið sam­ein­aða félag, sem er meðal þeirra stærstu í Evrópu, til 225 áfanga­staða víða um heim.

Eins og nefnt var hér framar er list­inn yfir félög sem hafa logn­ast út af, skipt um nafn eða sam­ein­ast öðrum félögum, ekki tæm­andi. Miklar svipt­ingar hafa á und­an­förnum árum orðið í banda­rískum flug­rekstri, sama gildir um Asíu og Suður-Ameríku, þar hafa ótal félög skotið upp koll­inum og önnur horfið. Allt þetta væri efni í annan pistil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár