Svíar út um neyðarútganginn

SAS flug­fé­lagið hefur lengi átt í rekstr­ar­erf­ið­leikum. Útlitið hefur aldrei verið dekkra og félagið sár­vantar rekstr­arfé. Svíar ætla ekki að opna budd­una og vilja draga sig út úr SAS. Framtíð félags­ins er í óvissu og nú boða flug­menn félags­ins verk­fall.

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 7. júní, boð­aði sænski atvinnu­mála­ráð­herr­ann, Karl-Petter Thorwaldsson til frétta­manna­fundar, með skömmum fyr­ir­vara. Á fund­inum til­kynnti ráð­herr­ann að Svíar væru ekki til­búnir að leggja SAS flug­fé­lag­inu til aukið fjár­magn. „SAS verður að leita annað eftir fjár­magni, sænski pen­inga­kass­inn er lok­aður,“ sagði ráð­herr­ann. Þessi yfir­lýs­ing ráð­herr­ans vakti athygli og verður ekki til að draga úr erf­ið­leikum SAS sem voru þó ærnir fyrir.

Nokkrum dögum fyrir frétta­manna­fund sænska ráð­herr­ans til­kynnti stjórn SAS að áætlun félags­ins sem sett var fram fyrr á þessu ári, nefnd SAS forward, um nið­ur­skurð og sparnað gengi ekki eftir. Nú þarf félagið nauð­syn­lega á auknu fé að halda, að mati stjórn­enda þess 6,8 millj­arða danskra króna (127 millj­arða íslenska) til að halda rekstr­inum gang­andi og SAS forward áætl­unin gangi upp. Nú virð­ist ljóst að þeir pen­ingar komi ekki úr sænska rík­is­kass­anum. En í orðum sænska atvinnu­mála­ráð­herr­ans lá fleira.

[adspot]

Vilja draga sig út úr SAS

Karl-Petter Thorwaldsson sagði á áður­nefndum frétta­manna­fundi að þótt sænska stjórnin styddi neyð­ar­á­ætlun SAS stefndi stjórnin jafn­framt að því að draga úr eign­ar­haldi sænska rík­is­ins í félag­inu. Sænska ríkið á nú 21.8 pró­senta hlut í SAS, danska ríkið á annað eins og aðrir aðilar afgang­inn. Félagið var skráð á hluta­bréfa­markað árið 2001.

Scandinavian Airlines System, eins og félagið hét upp­haf­lega var form­lega stofnað 1. ágúst 1946. Til­gang­ur­inn með stofnun SAS, eins og félagið hefur frá upp­hafi verið kallað, var að sam­eina milli­landa­flug þriggja félaga: Svensk Interkontinental Luft­trafik, Det Danske Luft­fartselskab og Det Norske Luft­fartsel­skap. Félögin þrjú héldu áfram inn­an­lands­flugi, hvert í sínu landi, næstu árin en eftir 1950 náði starf­semi félags­ins (sem nú heitir Scandinavian Airlines) einnig til inn­an­lands­flugs­ins.

Norðmenn drógu sig út úr SAS árið 2018 og ef Svíar fara sömu leið standa Danir einir stofn­end­anna eftir.

Setur Dani í mikinn vanda

Yfir­lýs­ing Svía kemur á afar óheppi­legum tíma fyrir SAS. Félagið, sem er mjög skuldugt, á í við­ræðum við lána­drottna um að breyta skuldum í hlutafé og ákvörðun Svía auð­veldar ekki þá samn­inga. Jafn­framt á félagið í við­ræðum við stétt­ar­fé­lög um breytt fyr­ir­komu­lag í því skyni að draga úr kostn­aði.

Danska rík­is­stjórnin hefur enn sem komið er lítið vilja segja en Nicolai Wammen fjár­mála­ráð­herra sagði í við­tali við danska útvarpið að stjórnin myndi, um miðjan þennan mánuð, greina frá áætl­unum sínum varð­andi fram­tíð SAS. Í við­tölum við fjöl­miðla hafa margir danskir stjórn­mál­menn lýst þeirri skoðun að mik­il­vægt sé að tryggja rekstur SAS, en áætl­anir þar að lút­andi verði að vera raun­sæjar og lúta ákveðnum skil­yrðum.

Hverjir eru möguleikarnir?

Ljóst er að SAS þarf nauð­syn­lega á auknu fjár­magni að halda til að tryggja áfram­hald­andi rekstur. Spurn­ingin er hvaðan þeir pen­ingar geti komið. Miðað við ummæli danskra stjórn­mála­manna, bæði stuðn­ings­flokka stjórn­ar­innar og stjórn­ar­and­stöð­unnar virð­ist lík­legt að þingið muni sam­þykkja að styðja við bakið á SAS.

Danskir fjöl­miðlar hafa leitað álits fjár­mála­sér­fræð­inga og spurt hverjir gætu hugs­an­leg haft áhuga fyrir að fjár­festa í SAS. Án þess að nefna til­tekna fjár­festa eða fyr­ir­tæki sögðu þeir sem leitað var til að lík­legt væri að kaup­endur fynd­ust að hlut í SAS, eða jafn­vel félag­inu öllu. Vitað er að þýska flug­fé­lagið Luft­hansa hefur lengi rennt hýru auga til SAS og myndi að lík­indum íhuga alvar­lega að kom­ast þar til áhrifa.

Hver yrði staða Kastrup flugvallar?

Í tengslum við hugs­an­legar breyt­ingar á eig­enda­hópi SAS, einkum ef nýir fjár­festar, aðrir en danskir koma til sög­unnar vakna spurn­ingar varð­andi fram­tíð Kastrup flug­vallar. Þingmenn hafa í sam­tölum við fjöl­miðla lagt mikla áherslu á mik­il­vægi flug­vall­ar­ins. Í dag starfa um 14 þús­und manns á flug­vell­inum og fer fjölg­andi, fyrir kór­óna­veiruna vorum starfs­menn um 22 þús­und.

Kaup­manna­höfn er vin­sæll ferða­manna­staður, millj­ónir ferða­manna heim­sækja borg­ina ár hvert, og tekj­urnar vegna þeirra skipta veru­legu máli í danska þjóð­ar­bú­skapnum. Ef erlendir fjár­festar kæmu að rekstri SAS er, að mati danskra sér­fræð­inga, ekki öruggt að Kastrup flug­völlur yrði sama „umferð­ar­mið­stöðin“ og nú er. Troels Lund Poulsen, fyrr­ver­andi atvinnu­mála­ráð­herra og fjár­mála­tals­maður, Venstre, stærsta stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins á danska þing­inu, Fol­ket­inget, sagði í við­tali við danska útvarpið, að allt þetta yrði að taka með í reikn­ing­inn þegar rætt væri um fram­tíð SAS. „Að mati okkar í Venstre má SAS ekki fara í þrot.“

Flugmenn boða verkfall ef ekki semst

Að morgni síð­ast­lið­ins fimmtu­dags, 9. júní, sendi félag flug­manna hjá SAS, Dansk Pilot­for­en­ing, frá sér til­kynn­ingu. Þar kom fram að eftir margra mán­aða samn­inga­við­ræður, sem engu hefðu skilað, væri boðað til verk­falls frá og með 24. júní, ef samn­ingar nást ekki fyrir þann tíma. Um er að ræða þús­und flug­menn, í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Henrik Thyregod, for­maður Dansk Pilot­for­en­ing, sagði í við­tali að flug­menn hefðu lagt sig alla fram en stjórn SAS stæði þversum í öllum samn­inga­málum og verk­fall væri síð­asta úrræði flug­manna.

Ein helsta krafa flug­manna er að SAS stofni ekki ný dótt­ur­fé­lög í því skyni að ráða flug­menn á öðrum og lak­ari kjörum en þeir búa nú við. ,,Þessu hefur SAS ekki viljað lofa“ sagði Henrik Thyregod. Nokkrum klukku­stundum eftir til­kynn­ingu flug­manna sendi yfir­stjórn SAS frá sér yfir­lýs­ingu. Þar segir að hót­anir flug­manna sýni algjört skiln­ings­leysi þeirra á stöðu félags­ins og þeir setji eigin hags­muni ofar öðru. „Verkfall flug­manna gæti orðið bana­biti SAS,“ segir í yfir­lýs­ingu yfir­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár