PLAY tapaði næstum þremur milljörðum króna en ætlar ekki í hlutafjáraukningu

Tekjur flug­fé­lags­ins PLAY voru lægri en áætl­anir gerðu ráð fyrir vegna nei­kvæðra áhrifa COVID-19. Félagið er ekki með neinar elds­neyt­is­varnir og gert er ráð fyrir að hærra olíu­verð muni leiða til kostn­að­ar­auka upp á 1,3 millj­arða króna í ár.

PLAY tap­aði 22,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, rúm­lega 2,9 millj­örðum króna miðað við gengi í lok síð­asta árs, á árinu 2021. Alls námu tekjur flug­fé­lags­ins á árinu 16,4 millj­ónum Banda­ríkja­dala, rúm­lega 2,1 millj­arði króna. Þorri taps­ins kom fram á síð­ast árs­fjórð­ungi árs­ins. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi PLAY sem var birtur í dag.

Í til­kynn­ingu sem send var út vegna birt­ingar hans segir að tekjur hafi verið lægri en von­ast hefði verið til vegna nei­kvæðra áhrifa COVID-19 en kostn­aður hafi samt verið sam­kvæmt áætl­unum. „Fjár­hags­leg afkoma félags­ins á árinu var í sam­ræmi við að félagið er enn í upp­bygg­ing­arfasa og ekki var gert ráð fyrir hagn­aði á fyrsta ári þar sem starf­semin hófst ekki fyrr en á miðju ári.“

Ætla ekki í hlutafjáraukningu en hækkandi olíuverð bítur fast

Stjórn­endur PLAY segj­ast gera ráð fyrir rekstr­ar­hagn­aði á síð­ari hluta árs­ins 2022, en félagið verður með sex flug­vélar í rekstri í sumar, starfs­menn verða um 300 tals­ins en áfanga­staðir verða tutt­ugu og sjö. Þrátt fyrir það er til­tekið í til­kynn­ing­unni að blikur séu á lofti í heims­mál­unum vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu en hingað til eru áhrifin á PLAY helst þau að olíu­verð hefur farið hækk­andi. Fram hefur komið í fjöl­miðlum að PLAY er ekki með neina samn­inga til að verja sig fyrir sveiflum í heims­mark­aðs­verði á olíu, en það hefur hækkað gríð­ar­lega það sem af er ári. Það hyggst ekki taka upp olíu­varnir fyrr en meiri fyr­ir­sjá­an­leiki á mark­aði næst.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni segir að gert sé ráð fyrir að hækk­anir á olíu­verði vegna inn­rás­ar­innar muni valda um tíu millj­óna Banda­ríkja­dala, um 1,3 millj­arða króna, kostn­að­ar­auka á þessu ári. „Því verður mætt með auk­inni ráð­deild í kostn­aði og til­komu sér­staks olíu­gjalds ofan á miða­verð líkt og margir stærstu sam­keppn­is­að­ilar PLAY hafa inn­leitt.“

Í til­kynn­ingu PLAY segir að engin áform séu uppi um hluta­fjár­aukn­ingu þar sem lausa­fjár­staða félags­ins sterk, bók­un­ar­staðan góð og fyr­ir­tækið ber engar vaxta­ber­andi skuldir. Eigið fé PLAY var um 67 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 8,7 millj­arðar króna, um síð­ustu ára­mót.

Hlutabréf lækkað skarpt frá því í haust

PLAY, skráði sig á First North mark­að­inn í fyrra. Í hluta­fjár­út­boði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar voru seldir hlutir fyrir 4,3 millj­arða króna. Eft­ir­spurn var átt­föld en alls bár­ust til­boð upp á 33,8 millj­arða króna. Útboðs­­gengið hjá PLAY nam 20 krónum á hlut fyrir til­­­boð yfir 20 millj­­ónum króna og 18 krónum á hlut fyrir til­­­boð undir 20 millj­­ón­um króna.

Á fyrsta við­skipta­degi með bréf félags­ins eftir skrán­ingu hækk­aði virði þeirra um 23 til 37 pró­sent og dagsloka­gengið þann dag, 9. júlí í fyrra, var 24,6 krónur á hlut. Í októ­ber náði hluta­bréfa­verðið því að verða 29,2 krónur á hlut. Síðan þá hefur það hríð­fallið og var 21,5 króna á hlut í lok dags í dag. Virðið hefur því dreg­ist saman um rúm­lega fjórð­ung frá því í haust. Mark­aðsvirðið er um 15 millj­arðar króna sem er 5,4 millj­örðum króna minna en í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár