Segir framkomu Play gagnvart launafólki til skammar

Formaður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands gagn­rýnir flug­fé­lagið Play fyrir að „halda því fram að kostn­aður vegna akst­urs séu laun“.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og 1. vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), skýtur fast á flug­fé­lagið Play í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag en þar segir hann að fram­koma félags­ins gagn­vart launa­fólki sé til skammar.

[links]Vísar hann í frétt Frétta­blaðs­ins þar sem fram kemur að sam­kvæmt kjara­samn­ingi milli Íslenska flug­stétta­fé­lags­ins og Play varð­andi flug­menn nemi byrj­un­ar­laun flug­manna hjá flug­fé­lag­inu 309 þús­und krónum.

Kristján Þórður bendir á að laun flug­freyja og þjóna verði 266.500 krónur á mán­uði. Þessu til við­bótar sé greitt fyrir akstur og segir hann að 25 þús­und krónum meira fari til flug­manna og spyr hann hvort það sé dýr­ara fyrir flug­menn að keyra til Kefla­víkur en flug­freyjur og þjóna. Inni­falið í þessum tölum sé vakta­á­lag auk þess 15 pró­sent meiri vinnu­skylda en hjá „sam­bæri­legu“ fyr­ir­tæki.

Gagn­rýnir hann Play fyrir að reyna „að halda því fram að kostn­aður vegna akst­urs séu laun en stafs­fólk þarf samt að koma sér sjálft til og frá flug­vell­inum, klár­lega ekki laun“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár