10 staðreyndir um deilur ASÍ og PLAY

Alþýðu­sam­band Íslands og lággjalda­flug­fé­lagið PLAY hafa tek­ist á um launa­kjör og birt harð­orðar yfir­lýs­ingar í garð hvors ann­ars síð­ustu daga. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um deil­urnar.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Birgir Jónsson, forstjóri PLAY
Drífa Snædal, for­seti ASÍ, og Birgir Jónsson, for­stjóri PLAY Mynd: Samsett

1: PLAY stefnir að Mið-Evrópukjörum í launamálum

Allt frá stofnun hefur flug­fé­lagið PLAY stefnt að því að halda launa­kostn­aði í lág­marki. Líkt og Kjarninn hefur greint frá inni­hélt fjár­festa­til­kynn­ing sem stofn­endur PLAY birtu í lok árs 2019 áætl­anir um að greiða starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins allt að 37 pró­sent lægri laun en vori í boði hjá lággjalda­flug­fé­lag­inu WOW air.

Í við­tali við Kjarnann í ágúst í fyrra sagði Arnar Már Magn­ús­son, fyrrum for­stjóri PLAY, að flug­fé­lagið vildi vera sam­keppn­is­hæft hvað varðar launa­kjör miðað við önnur evr­ópsk flug­fé­lög. Skúli Skúlason, vara­for­maður stjórnar PLAY og stærsti hlut­hafi félags­ins, sagði það stefna að svoköll­uðum “Mið-Evr­ópu­kjörum”.

2: Segjast munu fylgja öllum reglum á íslenskum vinnumarkaði

Þrátt fyrir áherslu flug­fé­lags­ins um að halda launa­kostn­aði í lág­marki hyggst það ekki ætla að útvista vinnu­afli sínu. Birgir Jónsson, nýr for­stjóri PLAY, sagði í við­tali við RÚV í síð­ustu viku að „allar reglur á íslenskum vinnu­mark­aði verði virtar,“ en að samið yrði við Íslenska flug­stétt­ar­fé­lagið (ÍFF).

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sak­aði PLAY í fyrra um að úthýsa störfum til lág­launa­landa þar sem rétt­indi starfs­fólks eru minni og reiða sig á gervi­verk­töku í gegnum starfs­manna­leigur. Hann var þó fljótur að draga ummæli sín til baka eftir að hafa mætt á fund hjá flug­fé­lag­inu og rætt við for­svars­menn þess um kjör og kjara­samn­inga starfs­fólks félags­ins. Í kjöl­far fund­ar­ins birti Ragnar Facebook-færslu þar sem hann sagð­ist harma það mjög að hafa ályktað að starfs­hættir félags­ins væru vafa­samir. „Play verður vit­an­lega að njóta vafans. Eða þangað til annað kemur í ljós,“ bætti Ragnar við.

3: Hærri föst laun en lægra tímakaup og færri fríðindi

ASÍ og PLAY greinir þó á um raun­veru­leg launa­kjör starfs­manna flug­fé­lags­ins. Í fyrstu ályktun sem ASÍ sendi frá sér í nýlið­inni viku sagði stétt­ar­fé­lagið að lægstu laun starfs­manna PLAY væru 267 þús­und krónur, miðað við 307 þús­und krónur hjá Icelandair. [links]

Við­skipta­blaðið sagði þennan sam­an­burð þó vera vill­andi, þar sem hann byggði á stríp­uðum grunn­launum flug­freyja- og þjóna PLAY, en föstum launum þeirra hjá Icelandair. Samkvæmt frétt­inni eru föst mán­að­ar­laun flug­freyja og flug­þjóna hjá PLAY, sem inni­halda grunn­laun, vakta­á­lag og hand­bók­un­ar­gjald, tæpar 362 þús­und krónur, eða tugum þús­und meira en hjá Icelandair.

Hins vegar eru fleiri flug­tímar inni­faldir í grunn­launum hjá PLAY en hjá Icelandair, auk þess sem greiddir yfir­vinnu­tímar eru færri og dag­pen­ingar og bif­reiða­styrkur er lægri. ASÍ bar saman heild­ar­laun starfs­manna hjá báðum flug­fé­lög­unum á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku, ef miðað væri við sama vinnu­tíma á mán­uði. Samkvæmt þeim sam­an­burði er tíma­kaupið 30 pró­sentum lægra hjá PLAY.

4: ÍFF er sakað um að ganga erinda PLAY

Stétt­ar­fé­lagið sem samdi áður­nefndan kjara­samn­ing við flug­fé­lagið, ÍFF, er þó umdeilt. Samkvæmt ASÍ ber ÍFF þess skýr merki um að vera svo­kallað „gult“ stétt­ar­fé­lag, eða skúffu­stétt­ar­fé­lag, sem gengur frekar erinda flug­fé­lags­ins heldur en fólks­ins sem vinnur fyrir það. ASÍ segir enn fremur það vera ljóst að ÍFF sé fjár­magnað af PLAY.

ÍFF var stofnað árið 2014 og hét þá Íslenska flug­manna­fé­lagið. Félagið var stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW air og er ekki aðild­ar­fé­lag að ASÍ. Í dag er félagið hins vegar orðið lög­gilt stétt­ar­fé­lag flug­manna og flug­freyja og hefur það ein­ungis gert samn­ing við PLAY. Vignir Örn Guðnason, for­maður félags­ins, kall­aði kjara­samn­ing­ana við PLAY „góða og gilda“ og sagð­ist vera sáttur við þá í við­tali við Við­skipta­blaðið í fyrra.

Talsmenn ÍFF tjáðu sig fyrst opin­ber­lega um gagn­rýni ASÍ á félagið fyrr í dag, en sam­kvæmt yfir­lýs­ingu sem það sendi á Vísi furðar það sig á vinnu­brögðum ASÍ og segir sam­tökin vera að reka áróður gegn félag­inu og við­semj­anda þess, flug­fé­lags­ins PLAY.

5: Lögmæti samningsins dregið í efa og ýmis atriði ekki talin með

Í ályktun ASÍ draga sam­tökin lög­mæti kjara­samn­ings­ins í efa, sam­kvæmt lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur. Samtökin segja einnig að ekki sé kveðið á um fram­lög til starfsend­ur­hæf­ingar, í orlofs­sjóð, starfs­mennta­sjóð eða sjúkra­sjóð og enn fremur sé ekki gert ráð fyrir launa­greiðslum vegna veik­inda barna.

Í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni fyrr í dag vék Birgir Jónsson, for­stjóri PLAY, frá spurn­ingu þátta­stjórn­anda um það hvort ekki væri greint frá þessum ákvæðum í samn­ingnum. Samkvæmt honum eiga kjara­við­ræður sér stað og stund innan ákveð­inna ferla á samn­inga­fundum, ekki í fjöl­miðlum.

Þó hefur flug­fé­lagið greint frá því opin­ber­lega að starfs­fólk PLAY fái greitt vegna veik­inda barna sam­kvæmt reglum á almennum vinnu­mark­aði og að mót­fram­lag félags­ins til ÍFF feli í sér fram­lag í sjúkra­sjóð og félags­sjóð stétt­ar­fé­lags­ins.

6: PLAY vill ekki semja við Flugfreyjufélagið

Flug­freyju­fé­lag Íslands, sem er aðild­ar­fé­lag að ASÍ og stóð að baki kjara­samn­inga­gerð flug­freyja hjá Icelandair, sótt­ist eftir því að semja við PLAY í vor. ÍSprengisandi í morgun sagð­ist Birgir Jónsson hafa svarað þeirri beiðni neit­andi, þar sem flug­fé­lagið væri með full­gildan kjara­samn­ing við annað stétt­ar­fé­lag.

Samkvæmt ASÍ er PLAY að segja sig úr sam­fé­lagi hins skipu­lagða vinnu­mark­aðar með því að neita að gera kjara­samn­ing við Flug­freyju­fé­lagið, en með því sé félagið að boða til ófriðar og deilna á vinnu­mark­aði um ófyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð.

Birgir gagn­rýndi hins vegar þrýst­ing ASÍ um að ganga að samn­inga­borð­inu við Flug­freyju­fé­lagið í Sprengisandi. Samkvæmt honum væri það ekki sann­gjarnt að nota kjara­samn­inga við Icelandair, sem væri annað einka­rekið fyr­ir­tæki, til grund­vallar í samn­ingum við starfs­fólk PLAY.

7: PLAY og ASÍ saka hvert annað um að stunda undirboð

Í fyrstu til­kynn­ingu ASÍ um PLAY sök­uðu sam­tökin flug­fé­lagið um að stunda félags­leg und­ir­boð, þar sem grunn­laun starfs­manna þeirra væru tölu­vert undir atvinnu­leys­is­bótum. Í svari PLAY við þeirri yfir­lýs­ingu segir félagið þó að ASÍ ger­ist sjálf sek um að stunda félags­leg und­ir­boð með sömu rökum, þar sem grunn­laun starfs­manna Icelandair séu enn lægri, sam­kvæmt útreikn­ingum Við­skipta­blaðs­ins.

8: Laun nýliða helmingi lægri en meðallaun

Ef tölur Hagstofu um með­al­tal launa árið 2019 eru fram­reikn­aðar til árs­ins 2021 með launa­vísi­tölu Hagstofu má búast við að reglu­leg með­al­laun Íslend­inga nemi 641 þús­undum króna á mán­uði þessa stund­ina. Með­al­laun Íslend­inga í þjón­ustu­störfum eru nokkuð lægri, eða um 484 þús­und krónur á mán­uði.

Samkvæmt útreikn­ingum ASÍ eru heild­ar­laun flug­freyja og flug­þjóna hjá PLAY sem ekki hefur neina reynslu um 364 þús­und krónur á mán­uði, gefið að hann fljúgi í 85 tíma á mán­uði. Það er tæp­lega helm­ingi minna en með­al­laun og fjórð­ungi minna en með­al­laun í þjón­ustu­störfum. Þess má geta að heild­ar­vinnu­tím­inn er lengri en 85 tímar í þessum útreikn­ingum, ein­ungis eru hér taldir tím­arnir sem starfs­fólkið vinnur í loft­inu.

Samkvæmt Við­skipta­blað­inu verður hins vegar eng­inn flug­liði ráð­inn inn sem byrj­andi í upp­hafi hjá PLAY, aðeins fólk með reynslu sem muni fara beint í hærri launa­flokka. Flug­fé­lagið segir sjálft að með­al­tal mán­að­ar­tekna sem almennir flug­liðar PLAY geti vænst séu í kringum 500 þús­und á mán­uði, en það er svipað og með­al­laun Íslend­inga í þjón­ustu­störfum.

9: Launakjör svipuð og hjá British Airways

Blogg­síðan These Gold Wings hefur gert sam­an­burð á heild­ar­launum óreyndra flug­freyja og flug­þjóna nokk­urra alþjóð­legra flug­fé­laga, sem sjá má á mynd hér að neðan. Ef hann er bor­inn saman við útreikn­inga ASÍ sést að heild­ar­launin eru í hærra lagi hér á landi, miðað við Ryanair, British Airways og Qatar Airways.

Mán­að­ar­launin hjá Ryanair eru lang­lægst, en þar geta flug­freyjur án reynslu búist við að fá um 200 þús­und krónur í mán­að­ar­laun. Lægstu launin hjá Qatar Airways eru einnig rétt yfir 200 þús­und krónum, en óreyndar flug­freyjur geta þó fengið allt að 439 þús­und krónur á mán­uði þar. Hjá British Airways geta flug­freyjur búist við 330-400 þús­und krónur á mán­uði, en heild­ar­laun óreyndra flug­freyja hjá PLAY eru þar mitt á milli, sam­kvæmt útreikn­ingum ASÍ.

Heild­ar­laun óreyndra flug­freyja hjá Icelandair eru svo hæst á meðal þess­ara flug­fé­laga, en þau nema 474 þús­undum króna á mán­uði, sam­kvæmt útreikn­ingum ASÍ.

10: ASÍ hvetur sniðgöngu og PLAY hyggst leita réttar síns

Í yfir­lýs­ingu sinni á mið­viku­dag­inn hvatti ASÍ lands­menn til að snið­ganga félagið þangað til það hefði sýnt að það ætli að vera hluti af íslenskum vinnu­mark­aði og bjóða starfs­fólki sínu kaup og kjör sem gilda hér á landi. Sam­bandið hvetur einnig líf­eyr­is­sjóði og aðra fjár­festa til að snið­ganga félagið, sem það segir hafa reynt að gera sig gild­andi gagn­vart þeim með því að stæra sig af óboð­legum launa­kjörum.

Birgir sagð­ist hins vegar ekki trúa öðru en að fólk for­dæmi þessa aðför ASÍ gegn fyr­ir­tæki sem ynni að því að bjóða sam­keppni á íslenskum flug­mark­aði í opin­beru svar við yfir­lýs­ingu sam­tak­anna. Hann sagð­ist einnig vera til­bú­inn til að fyr­ir­gefa ummælin ef ASÍ drægju þau til baka, en að öðrum kosti myndi félagið leita réttar síns til að bæta þann skaða sem ASÍ ylli með því að hvetja til snið­göngu.

Uppfært kl. 20:14: Í fyrri útgáfu frétta­skýr­ing­ar­innar kom fram að ÍFF hefði ekki enn tjáð sig um ásak­anir ASÍ, en það gaf út yfir­lýs­ingu fyrr í dag. Fréttin hefur verið upp­fært sam­kvæmt henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár