Harmar rangfærslur um Play

Formaður VR seg­ist ekki vera haf­inn yfir gagn­rýni og eftir að hafa fundað með for­svars­mönnum Play sjái hann að það hafi verið mis­tök að tengja saman flug­fé­lögin Bláfugl og Play með þeim hætti sem hann gerði fyrir nokkrum dögum.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, seg­ist í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag ekki vera haf­inn yfir gagn­rýni og við­ur­kenna fús­lega þegar hann hleypur á sig eða gerir mis­tök. Hann segir í færsl­unni að eftir að hafa fundað með for­svars­mönnum lággjalda­flug­fé­lags­ins Play hafi honum orðið ljóst að það hafi verið mis­tök að tengja tvö félög, Bláfugl og Play, með þeim hætti sem hann gerði fyrr í vik­unni og harmi hann það mjög. „Play verður vit­an­lega að njóta vafans. Eða þangað til annað kemur í ljós.“

Forsagan er sú að þann 18. maí síð­ast­lið­inn skrif­aði Ragnar Þór færslu á Facebook vegna fréttar Við­skipta­blaðs­ins um að Bláfugl og Play gætu fyllt í skarðið færi svo að Icelandair yrði gjald­þrota.

„Ég velti þeirri spurn­ingu upp hvort þetta væri virki­lega leiðin sem við vildum fara að fá hér flug­fé­lög í skatta­skjóls­braski sem veigri sér ekki við að úthýsa störfum til Indlands eða Fil­ipps­eyja eða hverra landa sem rétt­indi og laun eru lægst fyrir mestu vinn­una. Setja svo rest­ina á gervi­verk­töku í gegnum starfs­manna­leigur? Þó ekki sé út frá flug­ör­yggis sjón­ar­miðum hlyti metn­aður okkar að vera meiri en þetta,“ skrifar hann.

Ragnar Þór segir að reyndar hafi komið í ljós að Icelandair væri að úthýsa störfum til Fil­ipps­eyja á „meðan fólk­inu okkar er sagt upp störfum hér heima“.

[adspot]

Buðu honum í heimsókn

[links]For­svars­menn Play höfðu í kjöl­farið sam­band við hann og gerðu alvar­legar athuga­semdir við að vera kenndir við þá hátt­semi sem ofar er lýst. Þá sér­stak­lega það sem snýr að flug­ör­ygg­is­málum, að því er fram kemur í færslu Ragnars Þórs.

„Ég hafði sett mig nokkuð inn í við­skipta­módel Bláfugls en við­ur­kenni að ég hafði ekki kynnt mér það sama hjá Play enda félagið ekki flogið sína fyrstu ferð og því ein­göngu hægt að álykta að svo stöddu.

Úr varð að for­svars­menn Play buðu mér að koma í heim­sókn og kynn­ast fólk­inu og hug­mynda­fræð­inni á bak­við félagið. Ég að sjálf­sögðu þáði það boð enda ekki annað í boði en að standa fyrir máli sínu sé þess óskað,“ skrifar hann.

Starfsemin kom á óvart

Ragnar Þór segir að þetta hafi verið afar áhuga­verðir tveir klukku­tímar sem þau sátu saman og fóru yfir málin með stjórn­endum og starfs­fólki. Hann seg­ist ekki hafa grunað hversu umfangs­mikil starf­semin væri orðin, metn­að­ur­inn, og kjörin sem félags­menn þeirra væru á.

„Það kom mér á óvart hversu langt þetta er komið en um 40 manns starfa hjá félag­inu, margir með mikla reynslu af flug­rekstri.“

Hann seg­ist enn fremur hafa spurt á fund­inum hvort hægt væri að sann­reyna kjör og kjara­samn­inga starfs­fólks félags­ins í ljósi ýmissa full­yrð­inga sem þau hefðu innan úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni „og var það auð­sótt mál og ekk­ert sem bendir til þess að hægt sé að bendla félagið við þau orð sem voru látin falla í færslu minni þann 18.maí“.

Vonast til að Icelandair haldi velli

Ragnar Þór von­ast til að mark­mið for­svars­manna Play um kjör þeirra sem munu starfa fyrir félagið standi og að eign­ar­hald og fjár­mögnun félags­ins verði opin og gagnsæ og óskar hann „þessu dug­mikla fólki alls hins besta“.

Hann lýkur færsl­unni á því að segj­ast von­ast til að Icelandair haldi velli og að hér á landi muni ríkja heið­ar­leg sam­keppni um flug­sam­göngur, neyt­endum til mik­illa hags­bóta og þús­undum starfa sem undir séu í íslensku sam­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár