Kostnaður vegna starfsfólks Play allt að 37 prósent lægri en hjá WOW

Nýja lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið Play hefur náð samn­ingum um að lækka kostnað við flug­menn og flug­liða um allt að 37 pró­sent miðað við það sem þeir kost­uðu WOW air. Samn­ing­arnir fela líka í sér „betri nýt­ingu“ á starfs­fólki.

Stjórn­endur nýja flug­fé­lags­ins Play hafa náð 27 til 37 pró­sent kostn­að­ar­lækkun á samn­ingum sínum við flug­menn og flug­liða, miðað við þá samn­inga sem WOW air hafði verið með við þær starfs­stéttir. Auk þess ætlar flug­fé­lagið að ná betri nýt­ingu á áhöfnum sínum með þeim samn­ingum sem félagið hefur gert, en í þeim felst að það náist 800 til 900 klukku­stunda nýt­ing á hverja áhöfn á ári. Til sam­an­burðar nái Icelandair 550 klukku­stunda nýt­ingu út úr sinum áhöfnum að með­al­tali.

Því liggur fyrir að starfs­menn Play munu fá minna borgað en starfs­menn WOW air fengu og munu vinna mun meira en sam­bæri­legir starfs­menn Icelandair gera. Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu sem Íslensk verð­bréfa unnu og kynntu fyrir vænt­an­legum fjár­festum í Play í síð­ustu viku. Kynn­ingin, sem Kjarninn hefur undir höndum, er kirfi­lega merkt trún­að­ar­mál.

[adspot]Í henni kemur fram að stjórn­endur hins nýja flug­fé­lags hafi lagt mikla „vinnu til að lækka alla kostn­að­ar­liði félags­ins umfram þau kjör sem Wow air hafði á sínum tíma.“

Sambærilegir samningar og flugfélög gera í Dublin

Þar segir enn fremur að þessir samn­ingar hafi þegar náðst við Íslenska flug­stétt­ar­fé­lagið, ÍFF, sem var áður stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW air. Á kynn­ingu sem for­svars­menn Play héldu á þriðju­dag kom fram að flug­fé­lagið hefði þegar gengið til samn­inga við ÍFF um gerð kjara­samn­inga við bæði flug­menn og flug­liða.

Í kynn­ingu Íslenskra verð­bréfa segir að mikil jákvæðni hefði ríkt beggja megin borðs­ins þegar þessir samn­ingar voru teikn­aðir upp. „Þessir samn­ingar eru sam­bæri­legir við það sem flug­fé­lög eru að gera t.d. í Dublin og á öðrum hag­kvæmum flug­rekstr­ar­stöðum.“

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) sá til­efni til að senda frá sér til­kynn­ingu vegna ofan­greindra áforma þar sem sam­bandið gerði kröfu um að kjara­samn­ingar yrðu frá­gengnir áður en fyrsta flugið yrði flogið. „ASÍ mun ekki láta það yfir íslenskt launa­fólk ganga að félags­leg und­ir­boð og lög­brot fyr­ir­tækja eins og Primera Air verði end­ur­tekin eða látin átölu­laus af stjórn­völd­um.“

Áætla að Play verði verðmætara en Icelandair

Kjarninn greindi frá því í gær­kvöldi að áform Play gerðu ráð fyrir því að innan þriggja ára verði félagið komið með tíu flug­vélar í rekstri og að verð­mið­inn á félag­inu, miðað við rekstr­ar­hagnað fyrir fjár­magnsliði og afskriftir (EBIDT.) upp á 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 12,5 millj­arða króna, geti numið um 630 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 78 millj­örðum króna, í lok árs 2022.

[adspot]Til sam­an­burðar er Icelandair, með verð­miða upp á 40,7 millj­arða króna, miðað við verðið eins og það var við lokun mark­aða í gær.

Play leitar nú við­bótar fjár­magns til þess að hefja rekstur og starf­semi, en nú þegar hefur það tryggt sér 40 millj­ónir evra, jafn­virði um 5,5 millj­arða króna, frá breska fjár­fest­inga­sjóðnum Athene Capital, að því fram kemur í kynn­ing­ar­gögnum fyrir fjár­festa.

Um láns­fjár­mögnun er að ræða sem hægt er að auka upp í 80 millj­ónir evra, eða sem nemur rúm­lega 11 millj­örðum króna.

Unnið að verkefninu í nokkra mánuði

Íslensk verð­bréf koma að því að fjár­magna það sem útaf stend­ur, eins og fram kom á kynn­ing­ar­fund­inum á þriðju­dag, en í máli Arn­ars Más Magn­ús­sonar for­stjóra, kom fram að horft sé til þess að erlendir fjár­festar komi með 80 pró­sent fjár­magns og 20 pró­sent komi frá inn­lendum aðil­u­m.

Auk Arn­­ars Más verða þeir Sveinn Ingi Stein­þór­s­­son, sem verður fjár­­­mála­­stjóri, Bogi Guð­­munds­­son, sem mun halda utan um lög­­fræðis­við­ið, og Þóróddur Ari Þór­odds­­son, sem verður meið­eig­andi, í stjórn­enda­teymi félags­ins.

Unnið hefur verið að stofnun félags­­ins í nokkra mán­uði undir heit­inu WAB Air, en það stóð fyrir „We Are Back“. Lyk­il­­fólk í hópnum á bak­við stofnun félags­­ins eru fyrr­ver­andi stjórn­­endur hjá WOW air. Til að byrja með ætlar Play að gefa eitt þús­und frí flug­­miða til þeirra sem skrá sig á heima­­síðu félags­­ins nú, en vefslóð hennar verð­ur www.flyplay.com.

Í kynn­ing­unni kemur fram að lyk­il­stjórn­endur hafi „aðgang að fyrr­ver­andi starfs­mönnum WOW air, þmt. flug­mönnum og flug­liða. WOW fjár­festi 15m USD í þjálfun starfs­manna á sinni starfsævi. WAB [nú Play] þarf þriggja daga in-house nám­skeið til að áhafnir verði til­búnar í fyrsta flug.“

Fjárfestar eiga að geta margfaldað fjárfestingu sína

Í kynn­ing­unni er miðað við að fjár­festar sem komi inn í félagið í upp­hafi muni geta fengið 12 til 13 földun á fjár­fest­ingu sína á innan við þremur árum, gangi áætl­anir félags­ins eftir og að gefnum for­sendum fyrir verð­mati.

Mögu­legar leiðir út úr fjár­fest­ing­unni, svo­kall­aða „exit“, eru sagðar vera: Bein sala á félag­inu, sam­runi við annað félag í svip­uðum rekstri, arð­greiðslur sem borgi upp fjár­fest­ing­una eða skrán­ing á markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár