Birgir Jónsson nýr forstjóri Play

Flug­fé­lagið Play er sagt hafa tryggt sér yfir fimm millj­arða fjár­mögnun frá nýjum fjár­festum og ráðið Birgi Jónsson í starf for­stjóra.

Birgir Jónsson, fyrrverandi forstjóri Íslandspósts, hefur reynslu úr flugbransanum, en hann var framkvæmdastjóri Iceland Express og einnig aðstoðarforstjóri WOW air.
Birgir Jónsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Íslands­pósts, hefur reynslu úr flug­brans­anum, en hann var fram­kvæmda­stjóri Iceland Express og einnig aðstoð­ar­for­stjóri WOW air. Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

Birgir Jónsson hefur verið ráð­inn nýr for­stjóri flug­fé­lags­ins Play, sem á enn eftir að fara í sína fyrstu flug­ferð. Bæði Túristi og Frétta­blaðið greina frá þessu í dag, en ráðn­ing Birgis hefur verið til umræðu í tengslum við aðkomu nýrra fjár­festa að flug­fé­lag­inu.

Frétta­blaðið segir frá því að yfir fimm millj­arðar króna hafi safn­ast frá inn­lendum fjár­festum í lok­uðu hluta­bréfa­út­boði flug­fé­lags­ins sem lauk fyrir helgi og að stefnt sé að því að safna frekar fjár­magni með skrán­ingu á First North-markað Kaup­hall­ar­innar í sumar.

Túristi segir ráðn­ingu Birgis hafa verið kynnta á starfs­manna­fundi hjá Play í morgun, en félagið hefur verið í start­hol­unum með flug­starf­semi sína í næstum eitt og hálft ár, en félagið kynnti sig til leiks á blaða­manna­fundi í Perlunni undir lok árs 2019.

Birgir var síð­ast for­stjóri Íslands­pósts, en áður starf­aði hann meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri hjá Iceland Express og aðstoð­ar­for­stjóri hjá WOW air.[links]

Samkvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins eign­ast nýir fjár­festar í Play meiri­hluta í félag­inu, en þeir höfðu lagt áherslu á að fá Birgi til starfa, sam­kvæmt fyrri frétt blaðs­ins um hluta­fjár­út­boðið.

FEA ehf., félag í eigu Skúla Skúla­sonar og fleiri fjár­festa, fór áður með allt hlutafé í Play. Skúli og Arnar Már Magn­ús­son, einn stofn­enda og þá for­stjóri Play, ræddu ítar­lega um stöðu og áform flug­fé­lags­ins í sam­tali við Kjarnann síð­asta haust.

Arnar Már ræddi þá um að núver­andi lægð í flug­rekstri vegna heims­far­ald­urs­ins byði í raun upp á gott tæki­færi fyrir flug­fé­lagið til þess að koma inn á mark­að­inn, þar sem leigu­verð flug­véla og allra ann­arra vara tengdum geir­anum hefði þrýsts niður. Enginn COVID-draugur myndi fylgja flug­fé­lag­inu inn í fram­tíð­ina.

Kjarninn hefur hvorki náð sam­bandi við Birgi Jónsson né Arnar Má Magn­ús­son.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár