Tap WOW yfir 2,3 milljörðum

WOW air birti í gær rekstr­ar­nið­ur­stöðu sína frá árinu 2017, en sam­kvæmt honum tap­aði flug­fé­lagið yfir 2,3 millj­örðum íslenskra króna.

Hækkandi olíuverð virðist hafa bitnað töluvert á rekstri WOW air.
Hækkandi olíu­verð virð­ist hafa bitnað tölu­vert á rekstri WOW air. Mynd: Kjarninn.

Tap flug­fé­lags­ins WOW air nam 22 millj­ónum Banda­ríkja­dala, sem sam­svarar um 2,37 millj­örðum íslenskra króna. Rekstr­ar­hagn­aður félags­ins fyrir skatta og afskriftir lækk­aði um 42 millj­ónir Banda­ríkja­dala frá síð­asta ári. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu í dag.

Samkvæmt til­kynn­ingu WOW námu tekjur félags­ins um 486 millj­ónum Banda­ríkja­dala, sem er 58% aukn­ing miðað við árið á undan. Svokölluð EBITDA félags­ins, eða rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­gjöld og tekju­skatt var 4 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sam­an­borið við 46 millj­ónir Banda­ríkja­dala árið 2016.

Tap árs­ins 2017 eftir tekju­skatt var 22 millj­ónir Banda­ríkja­dala miðað við 35,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala hagnað árið áður. Sé miðað við núver­andi gengi jafn­gildir tap WOW 2,37 millj­örðum íslenskra króna. Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var 10,9% í árs­lok.

Hærri kostnaður og meiri samkeppni

Skúli Mogensen, for­stjóri og stofn­andi WOW air, segir afkom­una fyrir 2017 hafa verið von­brigði þar sem vöxtur félags­ins og fjár­fest­ing reynd­ust dýr­ari en búist var við. „Ytri aðstæður hafa reynst félag­inu krefj­andi, svo sem hækk­andi olíu­verð, styrk­ing krón­unnar, dýrt rekstr­ar­um­hverfi á Íslandi og mikil sam­keppni lyk­il­mörk­uðum félags­ins,“ bætir Skúli við.

[links]Kjarninn greindi áður frá versn­andi stöðu Icelandair, en flug­fé­lagið sendi frá sér afkomu­við­vörun síð­asta sunnu­dag þar sem afkomu­spá þeirra fyrir 2018 var lækkuð um 30%. Í við­vör­un­inni sagði Björgólfur Jóhann­son, for­stjóri félags­ins, töl­urnar einnig vera „tals­verð von­brigði“ og nefndi þar hækkun á olíu­verði síð­ustu mán­aða og enga hækkun á flug­far­gjöldum sem helstu ástæður verri afkomu en áður var spáð. Í kjöl­farið lækk­aði hluta­bréfa­verð félags­ins um fjórð­ung á einum degi.

Eftir afkomu­við­vörun Icelandair veltu grein­ing­ar­að­ilar upp stöðu WOW air, en Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, sagði þögn flug­fé­lags­ins um fjár­hags­stöðu sína eina og sér vera umhugs­un­ar­verða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár