Eru flugfélögin kerfislega mikilvæg?

Ný afkomu­spá Icelandair hefur fælt fjár­festa frá félag­inu, en skiptar skoð­anir eru á því hvort rekstr­ar­örð­ug­leikar þess myndu fela í sér kerf­is­lega áhættu fyrir íslenskt efna­hags­líf. Eru íslensku flug­fé­lögin of stór til að geta fallið?

Sér­fræð­ingar og grein­ing­ar­að­ilar eru ekki á einu máli um kerf­is­lægt mik­il­vægi Icelandair og WOW air fyrir íslenskt efna­hags­líf. Margir þeirra benda stóra hlut­deild félag­anna í far­þega­flutn­ingum til lands­ins, en öðrum finnst lang­sótt að kalla þau kerf­is­lega mik­il­væg í ljósi mik­illar sam­keppni á þessum mark­aði. Hins vegar virð­ist rekstur þeirra ekki enn í hættu, þrátt fyrir mikla lækkun hluta­fjár Icelandair.

Ódýrari en Hagar

Kjarninn greindi frá mik­illi verð­lækkun hluta­fjár Icelandair í gær, en mark­aðsvirði félags­ins lækk­aði um tæpan fjórð­ung í kjöl­far afkomu­við­vör­unnar á sunnu­dag­inn. Eftir lokun mark­aða í gær stóð verð­mið­inn á félag­inu í 46 millj­örðum króna og er því kom­inn niður fyrir eigið fé sem var 60 millj­arðar í lok mars. Þannig er verð­miði félags­ins kom­inn undir Haga, en hann nam tæpum 200 millj­örðum króna fyrir fjórum árum. Á þeim tíma var félagið verð­mæt­ara en Marel, en í dag er Marel um það bil fimm sinnum verð­mæt­ara en Icelandair.

80% hlutdeild

Þrátt fyrir lækk­andi hluta­bréfa­verð og minnk­andi hlut­deild á mark­aðnum við­heldur Icelandair stöðu sína sem langstærsta flug­fé­lagið á Íslandi, en um 45% far­þega flugu með þeim frá landi í síð­asta mán­uði. Í öðru sæti var svo WOW air sem flaug 32% allra far­þega úr landi í júní og því var sam­an­lögð hlut­deild flug­fé­lag­anna tveggja á far­þegum úr landi um 77%.

Lands­bank­inn fjall­aði um miklu mark­aðs­hlut­deild íslensku flug­fé­lag­anna tveggja á Ferða­þjón­ustu­ráð­stefnu bank­ans síð­asta haust. Þar sagði Daníel Svav­ars­son, for­stöðu­maður hag­fræði­deildar bank­ans, flug­fram­boð hafa verið aðaldrif­kraft­inn í vexti íslenskrar ferða­þjón­ustu síð­ustu ára, ekki geng­is­breyt­ingar. Þar sem sam­an­lögð hlut­deild Icelandair og WOW air af far­þegum til og frá land­inu sé um 80% sé ljóst að Ísland eigi gríð­ar­lega mikið undir traustri stöðu íslensku flug­fé­lag­anna tveggja.

„Þetta vekur upp spurn­ingar hvort Icelandair og WOW air séu kerf­is­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki fyrir efna­hags­legan stöð­ug­leika á Íslandi í svip­uðum skiln­ingi og stóru við­skipta­bank­arnir þrír eru skil­greindir kerf­is­lega mik­il­vægir fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika,“ bætir Daníel við.

Erindi Daníels á ráð­stefnu Lands­bank­ans síð­asta haust. Talið berst að mik­il­vægi flugs­ins á tíundu mín­útu.

Á ráð­stefn­unni veltir Daníel upp mögu­lega aðkomu stjórn­valda að ferða­þjón­ust­unni ef kreppa fer veru­lega að flug­fé­lög­unum tveimur. Þremur mán­uðum síðar greindi vef­síðan Túristi frá því að for­sæt­is­ráðu­neytið hafi sett af stað gerð við­bragðs­á­ætl­unar sem hægt væri að grípa til ef flug­fé­lögin lenda í vanda.

Í sam­tali Kjarnans við grein­ing­ar­að­ila í efna­hags­málum voru margir sam­mála um kerf­is­lægt mik­il­vægi flug­fé­lag­anna. Konráð S. Guð­jóns­son hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs benti á að áhætta sé fólgin í versn­andi rekstr­ar­skil­yrðum flug­fé­lag­anna þar sem svo gott sem öll ferða­þjón­ustan sé háð flugi til og frá land­inu. Elvar Ingi Möller sér­fræð­ingur í grein­ing­ar­deild Arion banka tekur í sama streng og segir að sam­dráttur í fram­boði frá flug­fé­lög­unum myndi hafa kerf­is­læg áhrif. Þó segir Konráð ekk­ert kalla á sér­stök inn­grip stjórn­valda, aðal­at­riðið sé að hag­stjórnin bregð­ist við og taki mið af breyttum veru­leika til að lend­ing hag­kerf­is­ins verði sem mýkst.

Ekki of mikilvæg

Hins vegar eru skiptar skoð­anir um þetta sjón­ar­mið, en Skúli Mogensen for­stjóri WOW air taldi flug­fé­lögin tvö ekki of stór til að geta fallið í sam­tali við vef Túrista í vor. Hann bætti við að „það yrði þó klár­lega mikið högg ef annað flug­fé­lagið færi og það tæki nokkur ár að ná ein­hverju jafn­vægi.“ Í sam­tali við Kjarnann segir Jón Bjarki Bentsson aðal­hag­fræð­ingur Íslands­banka mik­il­vægi félag­anna hafa minnkað þar sem margir séu um hit­una hvað varðar flutn­inga til og frá land­inu. Hann minnir á að stjórn­völd hafa áður skil­greint starf­semi Icelandair sem kerf­is­lega mik­il­væga þegar þau settu lög á verk­fall flug­virkja félags­ins fyrir fjórum árum síðan. Slík lög yrðu þó erf­ið­ari að setja fram á þessum dögum með sömu rökum.

Hersir Sig­ur­geirs­son, dós­ent í fjár­málum við Háskóla Íslands, finnst það einnig vera ansi lang­sótt að kalla flug­fé­lögin kerf­is­lega mik­il­væg í sama skiln­ingi og íslensku bank­arnir. Mikil sam­keppni ríki á milli flug­fé­lag­anna og lík­legt sé að félag komi í stað ann­ars, fari eitt þeirra af mark­aði.

Lítið vitað um WOW

í til­kynn­ingu sinni um versn­andi afkomu nefnir Icelandair marga ytri þætti sem ástæður minni tekna, eins og helm­ings­hækkun olíu­verðs síð­ustu tólf mán­aða og slæmt veð­ur­far. Samkvæmt Konráði hljóta þessir þættir að bitna á WOW air líka, en minna er vitað um fjár­hags­upp­lýs­ingar þess fyr­ir­tækis þar sem það er ekki skráð á hluta­bréfa­markað. Í frétta­til­kynn­ingu í gær segir WOW frá góðri sæta­nýt­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en engar upp­lýs­ingar hafa enn feng­ist um tekjur þess fyrir sama tíma­bil. Konráð segir þögn WOW air um fjár­hags­stöðu sína eina og sér vera umhugs­un­ar­verða þar sem fyr­ir­tækið hafi áður sent reglu­legar frétta­til­kynn­ingar um árs­fjórð­ungs­upp­gjör.

Raunar er mögu­legt að hækk­andi heims­mark­aðs­verð á olíu bitni enn frekar á WOW air heldur en Icelandair þar sem elds­neytis­kaup fyrr­nefnda félags­ins er ekki varið verð­hækk­unum. Rúmur helm­ingur elds­neytis­kaupa Icelandair er hins vegar var­inn til tólf mán­aða og ættu þeir því að vera betur í stakk búnir til að bregð­ast við hækk­un­unum.

Frá uppvaxtarárum til fullorðinsára

[links]Þegar spurt var um stöðu ferða­þjón­ust­unnar voru sér­fræð­ing­arnir nokkuð jákvæðir. Þótt staða nokk­urra fyr­ir­tækja í grein­inni hefði versnað þá sé hún ekk­ert endi­lega slæm enn sem komið er. Jón Bjarki segir þetta ár verða árið sem reynir á hvort við náum jafn­vægi í geir­anum eða hvort það verði bakslag, en enn séu ágætar líkur á að ferða­þjón­ustan hverfi frá upp­vaxt­ar­árum til full­orð­ins­ára.

Konráð bendir einnig á að sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs hefur farið dvín­andi og tíð­indin um stöðu Icelandair séu bara einn eitt dæmið um það. Það blasi því við að versn­andi sam­keppn­is­hæfni hafi áhrif t.d. á stöðu Icelandair og hún virð­ist þröng þótt það sé ekki endi­lega að sjá að fyr­ir­tækið standi höllum fæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár