Hátt í þúsund starfsumsóknir borist PLAY

Um 26 þús­und manns hafa skráð sig á póst­list­ann hjá PLAY, nýju lággjalda­flug­fé­lagi á Íslandi, og hafa hátt í þús­und starfs­um­sóknir borist félag­inu.

Hátt í þús­und starfs­um­sóknir höfðu borist PLAY í hádeg­inu í dag. Enn eru að ber­ast umsóknir en aðeins er lið­inn sól­ar­hringur síðan til­kynnt var um flug­fé­lagið PLAY. Um 26 þús­und hafa skráð sig á póst­list­ann hjá PLAY.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu í dag.

Nýtt íslenskt lág­far­gjalda­flug­fé­lag var opin­berað í gær en það var mótað undir vinnu­heit­inu WAB Air en mun heita PLAY. Arnar Már Magn­ús­son verður nýr for­stjóri flug­fé­lags­ins.

[links]„Það er ánægju­legt að sjá hversu vel okkur hefur verið tekið. Mikill áhugi er á að starfa hjá fyr­ir­tæk­inu sem er mjög hvetj­andi og ljóst er að fólk vill fá nýjan val­kost í flugi,” segir Arnar Már.

Eins og fram kom í til­kynn­ingu frá PLAY í gær þá stendur til að ráða fjölda starfs­manna á næstu vikum bæði á skrif­stofu og áhafn­ar­með­limi og reiknað er með að starfs­manna­fjöld­inn verði á bil­inu 200 til 300 manns næsta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár