Nýtt íslenskt lágfargjaldaflugfélag heitir Play

Nýtt íslenskt lág­far­gjalda­flug­fé­lag hefur verið opin­berað. Það var mótað undir vinnu­heit­inu WAB Air en mun heita Play.

Arnar Már Magn­ús­son verður nýr for­stjóri flug­fé­lags­ins Play, sem opin­berað var í dag. Auk Arnars Más verða þeir Sveinn Ingi Stein­þórs­son, sem verður fjár­mála­stjóri, Bogi Guð­munds­son, sem mun halda utan um lög­fræðisviðið, og Þóróddur Ari Þór­odds­son, sem verður meið­eig­andi.

Unnið hefur verið að stofnun félags­ins í nokkra mán­uði undir heit­inu WAB Air, en það stóð fyrir „We Are Back“. Lyk­il­fólk í hópnum á bak­við stofnun félags­ins eru fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá WOW air. Til að byrja með ætlar Play að gefa eitt þús­und frí flug­miða til þeirra sem skrá sig á heima­síðu félags­ins nú, en vefslóð hennar verður www.flyplay.com.

[adspot]Inni á heima­síð­unni verður einnig hægt að sækja um störf hjá félag­inu, og Arnar Már sagði að félagið þurfi að ráða inn „ógrynni“ af fólki á næst­unni. „Við erum íslenskt flug­fé­lag með höf­uð­stöðvar á Íslandi og verðum með íslenska samn­inga við starfs­fólk. Það eru allir vel­komnir til okkar, Íslend­ingar og aðrir.“

Arnar Már vildi ekki svara því hvenær fyrsta flug Play yrði, en að það myndi verða gefið út þegar sala miða myndi hefj­ast í nán­ustu fram­tíð.

Play ætlar að tengja Norður Ameríku við Íslands og Evrópu, en Arnar Már fór ekki yfir nákvæm­lega hverjir áfanga­staðir félags­ins yrðu né í hvaða skrefum þeir myndu koma inn. Í vor er stefnt að því að fjölga vélum félags­ins í sex og hefja þá flug til Norður Ameríku.

Félagið er fjár­magnað til lengri tíma í sam­vinnu við breskan fag­fjár­festa­sjóð og fjár­mála­fyr­ir­tækið Íslensk verð­bréf. Skipt­ingin verður þannig að 80 pró­sent af fjár­magn­inu mun koma erlendis frá en fimmt­ungur frá Íslandi.

Á kynn­ingu sem nú stendur yfir í Perlunni sagði Arnar Már að vinna við að fá flug­rekstr­ar­leyfi væri á loka­metr­unum. Sömu­leiðis væri vinna við að fá inn flug­vélar í verk­efni félags­ins langt komin. Þá er bók­un­ar­vél Play til­búin og heima­síðan félags­ins fer í loftið von braðar. Sala er ekki hafin, þar sem flug­rekstr­ar­leyfið er ekki komið, en til stendur að sala hefj­ist í nóv­em­ber.

Play ætlar að standa fyrir öryggi, sér­stak­lega rekstr­ar­ör­yggi, og stund­vísi. Þá sagði Arnar Már að flug­fé­lagið vilji vera ein­falt. Í því felst meðal ann­ars að vera með ein­faldan flotastrúktúr, þ.e. að fljúga einni gerð véla, Airbus A320. Sú vél er með þeim spar­neytn­ari sem finn­ast og á að henta vel leið­ar­kerfi hins nýja félags.

Play verður lág­far­gjalda­flug­fé­lag sem mun bjóða upp á hag­stæð verð.„Nafnið Play lýsir þessu félagi mjög vel. Við förum til útlanda til þess að leika okkur,“ sagði Arnar Már á frétta­manna­fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár