Flugfreyjufélagið hafnar lokatilboði Icelandair

For­stjóri Icelandair segir það mikil von­brigði að til­boði félags­ins hafi verið hafnað. Nýr kjara­samn­ingur er talin for­senda þess að hægt verði að ná í nýtt hlutafé inn í Icelandair.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot/RÚV

Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ) hefur hafnað loka­til­boði um nýjan kjara­samn­ing frá Icelandair. Viðræður milli deilu­að­ila hafa staðið yfir um nokk­urra vikna skeið enda hefur verið greint frá því að gerð kjara­samn­ings við lyk­il­stéttir sé ein af for­sendum þess að Icelandair geti sótt sér nálægt 30 millj­örðum króna í nýtt hlutafé. Áður höfðu samn­inga­nefndir Icelandair og FFÍ átt í við­ræðum í um 16 mán­uði án þess að nið­ur­staða feng­ist í kjara­mál flug­freyja og flug­þjóna. Icelandair hefur þegar náð samn­ingum við flug­virkja og flug­menn.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir þessa nið­ur­stöðu mikil von­brigði. „Þetta var okkar loka­til­boð og byggir það á sama grunni og þeir samn­ingar sem gerðir hafa verið við stétt­ar­fé­lög flug­manna og flug­virkja. Í til­boð­inu eru fólgnar grunn­launa­hækk­anir, auk­inn sveigj­an­leiki varð­andi vinnu­tíma en á sama tíma tryggir það sam­keppn­is­hæfni og sveigj­an­leika Icelandair. Því miður verður ekki lengra kom­ist í við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og þurfum við nú að skoða aðrar leiðir. Við ætlum okkur að koma félag­inu í gegnum þær krefj­andi aðstæður sem nú ríkja og styrkja rekstur þess til fram­tíðar.”

Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að eftir að FFÍ lagði fram til­lögur sem ræddar hafi verið í morgun ítrek­aði Icelandair loka­til­boð sitt sem tók mið af þeirri umræðu sem fór fram, að því marki sem félagið treysti sér til. Í kjöl­farið hafn­aði samn­inga­nefnd FFÍ til­boði Icelandair. „Að mati Icelandair eru til­lögur FFÍ þess eðlis að samn­ing­ur­inn fari í kjöl­farið langt frá þeim mark­miðum sem sett voru í kjara­við­ræðum félags­ins við stétt­ar­fé­lög flug­stétta, en Icelandair hefur þegar gert lang­tíma­samn­inga við Félag íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) og Flug­virkja­fé­lag Íslands (FVFÍ). Þeir samn­ingar kveða í meg­in­at­riðum á um sveigj­an­leika og við­bót við vinnu­skyldu og styðja þar með við mark­mið Icelandair Group um að auka sam­keppn­is­hæfni félags­ins á alþjóða­mark­aði en á sama tíma verja ráð­stöf­un­ar­tekjur starfs­fólks og tryggja því gott starfs­um­hverfi.“

Icelandair segir að til­boðið sem hafi verið hafnað hafi inni­haldið eft­ir­gjafir frá fyrra til­boði Icelandair sem áttu að koma til móts við þau sjón­ar­mið félags­manna þá. „Tilboðið fól meðal ann­ars í sér hækkun allra grunn­launa, með sér­stakri áherslu á lægstu laun, val um starfs­hlut­fall, að flug­stunda­há­mörk innan mán­aðar væru færð niður, auk þess sem skorður voru settar um hámarks­fjölda laus­ráð­inna flug­freyja og flug­þjóna.“

Icelandair Group til­kynnti í lok síð­asta mán­aðar að félagið ætl­aði að auka hlutafé sitt um 30 þús­und milljón hluti. Útgefið hlutafé í dag er 5.437.660.653 hlut­ir. Núver­andi eign hlut­hafa verður því 15,3 pró­sent af útgefnu hlutafé ef það tekst að selja alla ætl­uðu hluta­fjár­aukn­ing­una.

Fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð, sem verður almennt og fer fram í júní­mán­uði, á að safna rúm­lega 29 millj­örðum króna, eða 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala, í aukið hluta­fé. Miðað við það má ætla að til standi að selja hvern hlut í hluta­fjár­út­boð­inu á rúm­lega eina krónu á hlut.

Tekin verður ákvörðun um hvort að af útboð­inu verði á hlut­hafa­fundi sem hald­inn verður á föstu­dag, 22. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár