Gera kröfu um að Play gangi til kjarasamninga

ASÍ gerir kröfu um að flug­fé­lagið Play gangi til kjara­samn­inga um kjör starfs­manna sinna áður en það hefur sig til flugs.

Vegna áforma um stofnun nýs íslensks flug­fé­lags, Play, hefur Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) sent frá sér til­kynn­ingu um að gerð verði krafa um að flug­fé­lagið gangi til kjara­samn­inga um kjör starfs­manna sinna áður en það hefur sig til flugs.

„ASÍ mun ekki láta það yfir íslenskt launa­fólk ganga að félags­leg und­ir­boð og lög­brot fyr­ir­tækja eins og Primera Air verði end­ur­tekin eða látin átölu­laus af stjórn­völdum,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Ógrynni af fólki ráðið á næstunni

[links]Nýtt íslenskt lág­far­gjalda­flug­fé­lag kynnti vöru­merkið sitt og fyr­ir­hug­aða starf­semi á kynn­ing­ar­fundi í Perlunni í morgun.

Unnið hefur verið að stofnun félags­ins í nokkra mán­uði en lyk­il­fólk í hópnum á bak við stofnun félags­ins eru fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá WOW air. Það var mótað undir vinnu­heit­inu WAB Air en mun heita Play.

Arnar Már Magn­ús­son, nýr for­stjóri flug­fé­lags­ins, vildi ekki svara því hvenær fyrsta flug Play yrði en sagði á kynn­ing­unni að það myndi verða gefið út þegar sala miða hefst síðar í þessum mán­uði. Arnar Már sagði jafn­framt að félagið þyrfti að ráða inn „ógrynni“ af fólki á næst­unni.[adspot]

„Við erum íslenskt flug­fé­lag með höf­uð­stöðvar á Íslandi og verðum með íslenska samn­inga við starfs­fólk. Það eru allir vel­komnir til okk­ar, Íslend­ingar og aðr­ir,“ sagði Arnar Már.

Félagslegt undirboð ekki í boði

Í kjöl­farið sendi ASÍ frá til­kynn­ingu þar sem tekið er fram að ASÍ geri kröfu um að fyr­ir­tækið, líkt og aðrir atvinnu­rek­endur sem starfa hér á landi, gangi til kjara­samn­inga fyrir fyrsta flug.

„ASÍ treystir því að hið nýja fyr­ir­tæki ætli sér ekki að keppa á íslenskum flug- og ferða­mark­aði á grund­velli félags­legra und­ir­boða. ASÍ mun ekki láta það yfir íslenskt launa­fólk ganga að félags­leg und­ir­boð og lög­brot fyr­ir­tækja eins og Primera Air verði end­ur­tekin eða látin átölu­laus af stjórn­völdum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár