Bónusgreiðslur til þrjú þúsund framlínustarfsmanna verða skattskyldar

Stjórn­völd áætla að sér­stakar greiðslur til fram­línu­starfs­manna í heil­brigð­is­geir­anum nái til þrjú þús­und manns. Það þýðir að með­al­greiðsla verður 333 þús­und krónur fyrir skatt.

Ein­skipt­is­greiðslur til þess heil­brigð­is­starfs­fólks sem staðið hefur í fram­lín­unni í bar­átt­unni við COVID-19 sjúk­dóm­inn og veiruna sem veldur honum eru skatt­skyldar.

Það þýðir að um og yfir 35 pró­sent af greiðslu hvers og eins skilar sér aftur til rík­is­sjóðs í tekju­skatt eða sveit­ar­fé­laga vegna útsvars­greiðslna.

Heild­ar­upp­hæð fram­línu­greiðsln­anna er einn millj­arður króna. Því gæti um 350 millj­ónir króna skilað sér aftur í opin­berar hirslur formi skatta og útsvars.

[adspot]Greiðsl­urnar, sem voru kynntar sem hluti af öðrum aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar á blaða­manna­fundi leið­toga stjórn­ar­flokk­anna á þriðju­dag, hafa enn ekki verið útfærðar að öðru leyti en að ákveðið hefur verið að heild­ar­um­fang þeirra verði áður­nefnd upp­hæð, einn millj­arður króna.

Skiptist á þrjú þúsund starfsmenn

Í stöðu­upp­færslu sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra birti á Facebook vegna greiðsln­anna sagði: Ég hef ákveðið að verja um 1,0 millj­arði króna í sér­stakar álags­greiðslur til starfs­fólks sjúkra­húsa og heil­brigð­is­stofn­ana sem starfar undir miklu álagi vegna Covid-19 heims­far­ald­urs­ins.[...]Álags­greiðslur til heil­brigð­is­starfs­fólks verða í formi ein­greiðslna til starfs­fólks í fram­lín­unni á sjúkra­húsum, heil­brigð­is­stofn­unum og í heilsu­gæsl­unni en útfærslan verður á hendi for­stöðu­manna hverrar stofn­unar. Mikið hefur mætt á heil­brigð­is­starfs­fólki á mörgum sviðum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar, þar sem starfs­að­stæður hafa verið óvenju­legar og krefj­andi og hætta á smiti af COVID-19 dag­legur veru­leiki margra.“

Í frum­varpi til fjár­auka­laga sem lagt hefur verið fram til að skapa laga­heim­ild fyrir þeim útgjöldum sem annar aðgerð­ar­pakki stjórn­valda felur í sér kemur fram að áætl­aður fjöldi þess starfs­fólks sem gæti fengið þessar sér­stöku álags­greiðslur sé um þrjú þús­und. Standist sú áætlun verður fram­línu­bónus hvers og eins að með­al­tali 333 þús­und krónur fyrir skatta.

Í gögnum sem Kjarninn hefur séð kom fram að um tíma hafi staðið til að ein­skorða greiðsl­urnar við heil­brigð­is­starfs­fólk sem hefur þurft að klæð­ast hlífð­ar­fatn­aði. Það skil­yrði var hins vegar ekki hluti af þeim aðgerð­ar­pakka sem á end­anum var kynntur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár