Leggja til að fella niður allar launahækkanir þingmanna og ráðherra út kjörtímabilið

Þrír flokkar á Alþingi hyggj­ast leggja fram frum­varp þess efnis að tryggt verði að laun þing­manna og ráð­herra hald­ist óbreytt út kjör­tíma­bilið.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Píratar, Sam­fylk­ingin og Flokkur fólks­ins ætla að leggja fram frum­varp á næstu dögum en ef það verður sam­þykkt þá verður launa­hækkun þing­manna og ráð­herra þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn felld niður og laun þeirra þann 1. maí næst­kom­andi lækkuð til sam­ræmis við þá launa­hækkun sem þeir eiga rétt á frá 1. jan­úar 2020 til 30. apríl 2020.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, en hún stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann. Frum­varpið hefur enn ekki verið lagt fram en von er á að það verði gert sem allra fyrst.

Ef frum­varpið verður sam­þykkt verður tryggt að laun þing­manna og ráð­herra hald­ist óbreytt út kjör­tíma­bilið og þannig verður eins og umrædd 1. jan­úar-hækkun hafi aldrei komið til.

Frystu laun þingmanna, ráðherra og háttsettra embættismanna til áramóta

Fram kom í fjöl­miðlum í lok mars að hækkun launa alþing­is­manna, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og æðstu emb­ætt­is­manna sem hefði átt að koma til fram­kvæmda þann 1. júlí næst­kom­andi yrði frestað til 1. jan­úar 2021.

[links]Í októ­ber 2016 hækk­uðu laun for­­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­­ar­­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­­manna og laun ráð­herra. Sam­­­­­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs þá urðu laun for­­­­­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­­­­­ar­­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­­­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­­ar­­­­­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­­­­­arra ráð­herra að með­­­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­­ar­­­­­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun þing­­­­­­­­manna hækk­­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­­falls­­­­­­­­lega mest við ákvörðun kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­­sent. Þessar launa­hækk­an­ir, sem voru úr öllum takti við almenna launa­þró­un, voru harð­lega gagn­rýnd­ar.

Þegar frum­varp um það sem ætti að taka við af kjara­ráði, sem var lagt niður 2018, var lagt fram þá var gert ráð fyrir því að fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra myndi fá heim­ild til að hækka laun kjör­inna full­­trúa í júlí 2019 umfram þær hækk­­­anir sem hóp­ur­inn hafði þegar feng­ið.

Laun þessa hóps áttu að hækka í fyrra­sumar en því var þá frestað vegna lífs­kjara­samn­ing­anna. Því verður launa­hækkun þessa hóps nú frestað annað árið í röð.

Launin hækkuðu í byrjun árs 2020

Kjarninn greindi enn fremur frá því í byrjun apríl að laun alþing­is­manna, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og ann­arra æðstu emb­ætt­is­manna hefðu hækkað um 6,3 pró­sent frá 1. jan­úar síð­ast­liðn­um.

Laun þing­manna munu við þetta hækka um tæpar 70 þús­und krónur og verða 1.170.569 krónur á mán­uði. Laun for­sæt­is­ráð­herra hækka um 127 þús­und krónur á mán­uði og verða 2.149.200 krónur á mán­uði og laun ráð­herra munu hækka í 1.941.328 krónur á mán­uði, eða um 115.055 krónur á mán­uði. Til stendur að hækk­unin taki gildi þann 1. maí næst­kom­andi.

Þingmaður spurði Bjarna út í launahækkanirnar

Hall­dóra spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í fyrra­dag hvort ekki væri eðli­leg og sjálf­sögð krafa að falla frá launa­hækk­unum þing­manna og ráð­herra eins og staðan væri í dag.

Hann svar­aði og sagði að ekki væri verið að taka neina ákvörðun um launa­hækk­anir þing­manna og ráð­herra núna. „Al­þingi hins vegar tók ákvörðun fyrir bráðum ári síðan að fresta launa­hækkun sem átti að koma til fram­kvæmda um mitt síð­asta sumar til ára­móta. Og í lögum stendur að laun þeirra sem hátt­virtur þing­maður vísar til hafi hækkað 1. jan­ú­ar,“ sagði hann.

Hann end­ur­tók að ekki væri verið að taka ákvörðun um þessi mál núna. „Nema þá að ég lagði til hérna fyrir þingið fyrir nokkru síðan að við myndum fresta hækk­un­inni sem á að koma til fram­kvæmda núna í sumar um sex mán­uði. Það er þá í annað skiptið sem sú til­laga kemur fram á einu ári að við frestum launa­hækk­unum til þing­manna sem hafa engar verið frá árinu 2016.“

Ráðherra leiður á að ræða þetta mál í þing­sal

Bjarni vakti athygli á því að á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hefði verið birt yfir­lit yfir launa­þróun þing­manna, ráð­herra og æðstu emb­ætt­is­manna og hefði hún verið sett í sam­hengi við launa­hækk­anir ann­arra síð­ast­lið­inn rúma ára­tug.

„Það er alveg aug­ljóst af þeim sam­an­burði, sem er sá sam­an­burður sem var lagður til grund­vallar að sam­tali við vinnu­mark­að­inn á sínum tíma, að þing­menn og ráð­herrar eru eft­ir­bátar ann­arra þegar kemur að launa­hækk­unum und­an­farin ára­tug.

En það sem ég er orð­inn leiður á að ræða þetta mál hér í þing­sal. Að menn skuli ekki geta komið sér saman um það, yfir höf­uð, að finna eitt­hvað fyr­ir­komu­lag sem lætur þessa hluti ganga sinn vana­gang yfir árin,“ sagði Bjarn­i.

Hann benti enn fremur að kjara­dómur hefði verið lagður nið­ur, sem og kjara­ráð og að það væri stutt síðan ákveðið hefði verið að festa við­mið í þessum efnum í lög. „En það er ekki einu sinni búið að fram­kvæma eina ein­ustu breyt­ingu á lög­unum síðan þetta var ákveðið áður en menn koma hingað í þing­sal og ætla að slá sig til ridd­ara með því að taka málin upp að nýju.“

„Leið­in­legur þessi orð­heng­ils­hátt­ur“

Hall­dóra svar­aði Bjarna og sagði að hún vildi geta sagt að henni þætti leið­in­legt að hafa pirrað hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra en að henni þætti „það bara ekk­ert leið­in­leg­t.“

„Mér finnst leið­in­legur þessi orð­heng­ils­hátt­ur, að ég noti ekki rétt orð og það á ein­hvern veg­inn að lag­færa það. Þetta snýr ekki að því hvaða orð maður not­ar. Það stendur vissu­lega í lögum að það eigi að vera launa­hækkun þing­manna og ráð­herra 1. jan­ú­ar. Ég veit vel að það hefur átt sér stað. Spurn­ing mín snýr hins vegar ekki að því,“ sagði hún og benti á að þetta væru ekki eðli­legir tím­ar.

Hún sagð­ist enn fremur vita að ráð­herra hefði ekki tekið ákvörðun um þessar launa­hækk­anir en að þau á Alþingi þyrftu samt sem áður að taka ákvörðun um það hvort þau ætl­uðu að vera í sama báti og almenn­ingur eða hvort þau ættu að fá launa­hækk­anir á meðan aðrir fengju skerð­ing­ar.

Svo hún spurði aft­ur: „Hver er afstaða hæst­virts fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til þeirrar kröfu að þing­menn og ráð­herrar hækki ekki í launum á sama tíma og við stefnum bein­ustu leið í djúpa efna­hag­skreppu? Eigum við ekki að vera í sama báti með öllum almenn­ingi í land­in­u?“

Taldi síðan um sann­gjarna spurn­ingu að ræða

Bjarni kom aftur í pontu og sagði að hann vildi að ljóst væri að hann tæki enga ákvörðun um þessi mál og að hann hefði ekk­ert lagt til við þingið annað en það að fresta næstu launa­hækk­un. Hann end­ur­tók að það hefði verði þingið sem hefði tekið þá ákvörðun að hækka launin um síð­ustu ára­mót.

Hann seg­ist aftur á móti telja um sann­gjarna spurn­ingu að ræða hjá Hall­dóru. „Hvað finnst mér um það að æðstu emb­ætt­is­menn rík­is­ins tækju á sig launa­skerð­ingar núna við þessar aðstæður til þess að sýna gott for­dæmi og fylgja öðrum í sam­fé­lag­in­u?“ spurði hann og svar­aði um hæl að honum fynd­ist það vel koma til greina.

„En það nýjasta sem við höfum reyndar gert í þessum efnum er að semja núna síð­ast við hjúkr­un­ar­fræð­inga um launa­hækk­an­ir, þar áður við sjúkra­liða og þar áður við BHM og önnur opin­ber stétt­ar­fé­lög. Á almenna mark­aðnum hefur þessi spurn­ing verið borin upp og af stétt­ar­fé­lög­unum var því hafn­að. Þannig að það er engin slík hreyf­ing í gangi nema hvað snertir þá sem tapa stafi sínu og það er mjög alvar­legt mál og þau mál erum við að ræða hérna í fjöl­mörgum þing­málum í þing­sal. En mér finnst hins vegar vel koma til greina ef það tekst eitt­hvað alvöru sam­tal um það að fara í launa­fryst­ingar eða lækk­anir þá ættu hinir opin­beru emb­ætt­is­menn – þeir sem eru í æðstu stjórn rík­is­ins – að leiða þá breyt­ingu, þá þró­un,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár