Laun þingmanna og ráðherra hækkuðu um 6,3 prósent í byrjun árs 2020

Launa­hækkun sem þing­menn, ráð­herrar og aðrir hátt­settir emb­ætt­is­menn frest­uðu í fyrra í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ing­anna tók gildi 1. jan­úar. Laun ráð­herra hækk­uðu um vel yfir hund­rað þús­und krónur.

Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands fá myndarlega launahækkun.
Ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands fá mynd­ar­lega launa­hækkun. Mynd: Bára Huld Beck

Laun alþing­is­manna, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og ann­arra æðstu emb­ætt­is­manna hækk­uðu um 6,3 pró­sent frá 1. jan­úar síð­ast­liðnum. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Laun þing­manna munu við þetta hækka um tæpar 70 þús­und krónur á mán­uði og verða 1.170.569 krónur á mánuð. Laun for­sæt­is­ráð­herra hækka um 127 þús­und krónur á mán­uði og verða 2.149.200 krónur á mán­uði og laun ráð­herra munu hækka í 1.941.328 krónur á mán­uði, eða um 115.055 krónur á mán­uði.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sendi erindi til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins fyrir skemmstu þar sem hann óskaði eftir því að laun hans myndu ekki hækka í launum í sumar. Laun hans verða því einnig fryst til 2021, en þau eru 2.985.00 krónur á mán­uði.

Tugprósenta launahækkanir

Kjara­ráð ákvað í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­manna og laun ráð­herra. Sam­­­­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­­­­arra ráð­herra að með­­­­­­­­­­­töldu þing­far­­­­­­ar­­­­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun þing­­­­­­­manna hækk­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­falls­­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­sent.

[adspot]Sam­­þykkt var á Alþingi í sum­arið 2018 að leggja kjara­ráð niður. Þess í stað átti að hækka laun í æðstu emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa í takti við þróun launa­vísi­tölu.

Fyrsta hækk­unin átti að taka gildi í fyrra­sumar og taka við af hækkun vísi­töl­unnar árið 2018. Í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ing­anna var ákveðið að fresta þeirri hækkun til 1. jan­úar 2020.

Frestuðu síðari hækkun en ekki þeirri fyrri

Fyrir skemmst var greint frá því að Alþingi hefði sam­þykkt að lög­á­kveðin hækkun sem var áætluð 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. jan­úar 2021. Þetta var gert vegna yfir­stand­andi aðstæðna sem rekja má til útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og þeirra miklu efna­hags­legu afleið­inga sem hún hefur í för með sér.

Hún verður í sam­ræmi við hækkun á launa­vísi­tölu Hag­stof­unnar vegna árs­ins 2019. Sú frestun hefur þó, sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans, engin áhrif á gild­is­töku launa­hækk­un­ar­innar sem frestað var í fyrra.

Atvinnuástand án fordæma

Sem við­bragð við yfir­stand­andi efna­hags­vanda var sam­þykkt á Alþingi frum­varp sem veitir ein­stak­lingum tíma­bundna heim­ild til að semja um lækkað starfs­hlut­fall við atvinnu­rek­anda sinn, og nýti sér það að fá hluta­bætur úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði. Samkvæmt úrræð­inu, sem gildir sem stendur til 1. júní, getur starfs­fólk sem er með allt að 700 þús­und krónur í mán­að­ar­laun fengið allt að 90 pró­sent launa sinna á tíma­bil­inu ann­ars vegar frá vinnu­veit­anda og hins vegar í formi atvinnu­leys­is­bóta. Þeir sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði fá 100 pró­sent launa sinna.

Rúmlega 31 þús­und manns hafa sótt um úrræðið og stór hluti þess hóps nýtur nú skertra launa­kjara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár