Lífeyrissjóður verzlunarmanna lækkar verðtryggðu vextina niður fyrir tvö prósent

Stjórn eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins ákvað að festa vexti á breyti­legum óverð­tryggðum lánum í ágúst í fyrra. Nú munu þeir loks lækka. Hluti sjóðs­fé­laga nýtur hins vegar mun betri kjara og greiðir lægstu vexti á Íslandi.

Lánakjör landsmanna hafa verið að batna hratt á undanförnum misserum.
Lánakjör lands­manna hafa verið að batna hratt á und­an­förnum miss­erum. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hefur ákveðið að lækka vexti á eldri verð­tryggðum lánum úr 2,26 í 1,95 pró­sent. Vextir á lán­unum höfðu staðið í stað frá því í byrjun ágúst í fyrra, en sjóð­ur­inn hætti að lána á breyti­legum verð­tryggðum vöxtum í októ­ber 2019. Þrír aðrir líf­eyr­is­sjóðir bjóða upp á breyti­lega verð­tryggða vexti undir tveimur pró­sentu­stigum: Stapi (1,9 pró­sent og upp að 70 pró­sent af kaup­samn­ingi), Birta (1,74 pró­sent og 65 pró­sent af kaup­verði) og Festa (1,7 pró­sent og 70 pró­sent af kaup­verði). Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er hins vegar eini sjóð­ur­inn af þremur stærstu og fjöl­menn­ustu sjóðum lands­ins (hinir eru Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Gildi) sem bjóða upp á slík kjör. Hjá LSR hafa breyti­legir verð­tryggðir vextir verið fastir í 2,3 pró­sentum frá því í júní í fyrra og hjá Gildi eru þeir nú 2,46 pró­sent.

Í gær greindi hann einnig frá því að stjórn sjóðs­ins hefði sam­þykkt að fara að að bjóða verð­tryggð lán með 2,7 pró­sent föstum vöxtum til fimm ára. Sjóð­ur­inn bauð þegar upp á fasta verð­tryggða vexti út láns­tím­ann sem eru nú 3,2 pró­sent. Auk þess mun hann lækka fasta vexti á óverð­tryggðum sjóðs­fé­lags­lánum til þriggja ára næst­kom­andi föstu­dag úr 5,14 í 4,95 pró­sent.

Breyttu viðmiðum og hækkuðu vexti

Stjórn Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna tók þá ákvörðun 24. maí í fyrra að hækka vexti á breyt­i­­legum verð­­tryggðum hús­næð­is­lánum úr 2,06 pró­­sent í 2,26 pró­­sent frá og með ágúst­­byrjun 2019. Sam­hliða var ákveð­ið að hætta að að láta ávöxt­un­­­­ar­­­­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­­­­­­­flokks stýra því hverjir vext­irnir eru og í stað þess myndi stjórn sjóðs­ins ákveða þá.

[adspot]Þrátt fyrir að stýri­vextir Seðla­banka Íslands hafi lækkað úr 3,75 pró­sent niður í 1,75 pró­sent frá því að ákvörð­unin um að færa vext­ina í 2,26 pró­sent tók gildi þá hafa vext­irnir af þessum lánum ekk­ert breyst, fyrr en núna þegar þeir eru færðir niður í 1,95 pró­sent.

Verð­bólga hefur að mestu hald­ist lág á Íslandi frá árinu 2014 og undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði, ef und­an­skilið er tíma­bil frá miðju ári 2018 og fram til loka árs í fyrra þegar hún fór aðeins yfir það. Verð­bólga mælist nú 2,1 pró­sent.

Hættu að lána breytileg verðtryggð lán

Í októ­ber í fyrra greindi Kjarn­inn frá því að Líf­eyr­is­­sjóð­ur­ verzlunarmanna hefði breytt lána­­reglum sínum þannig að skil­yrði fyrir lán­­töku voru þrengd mjög og hámarks­­­fjár­­­hæð láns var lækkuð um tíu millj­­­ónir króna. Hámarks­­lán er nú 40 millj­­ónir króna. Þá ákvað sjóð­­­ur­inn að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­­­tryggð lán á breyt­i­­­legum vöxt­­­um.

Um var að ræða við­bragð við því að Líf­eyr­is­­­sjóð­ur­ verzlunarmanna var kom­inn út fyrir þol­­­mörk þess sem hann réð við að lána til íbúð­­­ar­­­kaupa. Sjóð­­­ur­inn greindi sam­hliða frá því að eft­ir­­­spurn eftir sjóðs­­­fé­laga­lánum hefði auk­ist mikið frá því að lána­­­reglur voru rýmkaðar í októ­ber 2015. Á þeim tíma voru sjóðs­­­fé­laga­lán um sex pró­­­sent af heild­­­ar­­­eignum sjóðs­ins en í októ­ber í fyrra voru þau um 13 pró­­­sent.

Hluti sjóðsfélaga greiðir lægstu vexti á Íslandi

Hluti lán­tak­enda sjóðs­ins, sem höfðu tekið lán á breyti­legum verð­tryggðum vöxtum, sættu sig ekki við þá breyt­ingu sem gerð var á ákvörðun vaxta þeirra í fyrra og sendu ábend­ingu til Neyt­enda­stofu. Hún komst að þeirri nið­ur­stöðu að sjóð­ur­inn hefði ekki mátt breyta því hvernig verð­­tryggðir breyt­i­­legir vextir hluta hús­næð­is­lána sjóðs­fé­laga þeirra voru reikn­aðir út. Það hafi verið í and­­stöðu við ákvæði eldri laga um neyt­enda­lán. Ákvörð­unin hafði áhrif á öll lán með verð­­tryggða breyt­i­­lega vexti sem gefin voru út frá árs­­byrjun 2001 til apríl 2017 og varðar vaxta­greiðslur frá maí 2019. Um var að ræða átta pró­­sent af öllum sjóðs­­fé­lags­lánum Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna. Sjóð­ur­inn end­ur­greiddi í kjöl­farið ofrukk­uða vexti til þessa hóps.

Auk þess halda vextir á lánum þessa hóps áfram að stýr­ast af ávöxt­un­ar­kröfu áður­nefnds skulda­bréfa­flokks, HFF150434, að við­bættu 0,75 pró­sentu­stiga álag­i. Ávöxt­un­ar­krafa þessa flokks hefur hríð­fallið und­an­farna mán­uði og vextir þess hóps sem er með breyti­leg verð­tryggð lán sem tekin voru fyrir 1. apríl 2017, því sögu­lega lágir. Á greiðslu­seðli mars­mán­aðar voru vext­irnir 1,58 pró­sent, sem eru lang­lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir sem í boði eru á Íslandi.

Allan síð­asta mánuð og framan af þessum var ávöxt­un­ar­krafan oft­ast nær á bil­inu 0,4 til 0,55 pró­sent. Sem stendur er hún 0,41 pró­sent.

Ef sú krafa myndi vera grunnur að vöxtum næsta mán­aðar myndu þeir því vera 1,16 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár