Varaforsetum ASÍ fjölgað í þrjá – Ragnar Þór kemur aftur inn

Vara­for­setum Alþýðu­sam­bands Íslands verður fjölgað úr tveimur í þrjá.

Vara­for­setum Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) verður fjölgað úr tveimur í þrjá, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá sam­band­inu í dag. Þetta var sam­þykkt á 44. þingi ASÍ sem haldið var í 300 manna fjar­fundi í dag.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, var einn í fram­boði fyrir nýja emb­ættið og var hann því sjálf­kjör­inn. Hann var áður í mið­stjórn ASÍ en sagði sig úr henni fyrr á þessu ári.

Ekki bár­ust nein mót­fram­boð um emb­ætti for­seta ASÍ, 1. vara­for­seta né 2. vara­for­seta og eru Drífa Snædal, Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son og Sólveig Anna Jóns­dóttir því sjálf­kjörin í þau emb­ætti. Þá voru 11 ein­stak­lingar sem kjör­nefnd gerði til­lögu um, sjálf­kjörnir sem aðal­menn í mið­stjórn þar sem engin mót­fram­boð bár­ust, sam­kvæmt til­kynn­ingu ASÍ.

[adspot]

Mið­stjórn ASÍ 2020-2022 verður því þannig skipuð:

  • Drífa Snædal, for­seti ASÍ
  • Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, Félag Raf­einda­virkja, 1. vara­for­seti
  • Sólveig Anna Jóns­dóttir, Efling stétt­ar­fé­lag, 2. vara­for­seti
  • Ragnar Þór Ing­ólfs­son, VR, 3. vara­for­seti
  • Hjördís Þóra Sig­þórs­dóttir, AFL – starfs­greina­fé­lag
  • Hörður Guð­brands­son, Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur
  • Val­mundur Val­mund­ar­son, Sjó­manna­fé­lagið Jötun
  • Guð­mundur Helgi Þór­ar­ins­son, Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna
  • Björn Snæ­björns­son, Eining – Iðja
  • Eiður Stef­áns­son, Félag versl­unar og skrif­stofu­fólks Akureyri
  • Finnbogi Svein­björns­son, Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga
  • Halldóra Sveins­dóttir, Báran - stétt­ar­fé­lag
  • Hilmar Harð­ar­son, Félag iðn- og tækni­greina
  • Harpa Sæv­ars­dóttir, VR
  • Helga Ing­ólfs­dóttir, VR

Lofar að berjast fyrir hagsmunum verka- og láglaunafólks

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, óskar Drífu Snædal til ham­ingju með end­ur­kjörið á Facebook í dag.

„Einnig óska ég Krist­jáni Þórði og Ragnari Þór til ham­ingju með að hafa verið kjörnir í emb­ætti 1. og 3. vara­for­seta ASÍ, sem og öllum með­limum í nýrri mið­stjórn. Og ég þakka inni­lega traustið sem mér er sýnt til að halda áfram að starfa sem 2. vara­for­seti ASÍ. Ég lofa að gera allt sem í mínu valdi stendur til að berj­ast fyrir hags­munum verka og lág­launa­fólks á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár