Hjálmar ætlar að hætta sem formaður Blaðamannafélags Íslands

„Tímabært að ný kyn­slóð taki við,“ sagði Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins, á aðal­fundi hans í kvöld. Hann mun ekki vera í fram­boði á næsta aðal­fundi sem fram fer á næsta ári.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands. Mynd: BÍ

Hjálmar Jónsson, sem verið hefur for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands frá árinu 2010, mun ekki bjóða sig fram á ný í emb­ættið á næsta aðal­fundi, sem fram fer á næsta ári. Frá þessu greindi hann á aðal­fundi félags­ins sem fer nú fram á Grand hótel í Reykja­vík.

Aðal­fund­ur­inn átti upp­haf­lega að fara fram í apríl en var frestað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Hjálmar var einn í fram­boði til for­manns á fund­inum í kvöld og því sjálf­kjör­inn, en kosið er um for­mennsku í Blaða­manna­fé­lag­inu á hverjum aðal­fundi. Áður en að Hjálmar tók við sem for­maður félags­ins á miklum átaka­fundi árið 2010 hafði hann verið fram­kvæmda­stjóri þess í nokkur ár. Í kjöl­far þess var starf fram­kvæmd­ar­stjóra og for­manns sam­einað í eitt.

Í ræðu sinni í kvöld sagði Hjálmar að það væri „tíma­bært að ný kyn­slóð tæki við“.

Hörðustu aðgerðir í 41 ár

Blaða­manna­fé­lagið boð­aði til verk­fallsá­taka í lok síð­asta árs. Það var í fyrsta sinn í 41 ár sem að félagið boð­aði til verk­falls­að­gerða. Í til­efni af þessu sagði Hjálmar að komið væri að ögur­stundu fyrir blaða­mann og sagði í við­tali í aðdrag­anda verk­falls­að­gerð­anna að kjör blaða­manna væru „hörmu­leg“.

[adspot]Ráðist var í verk­falls­að­gerðir en þeim hluta þeirra sem áttu að bíta fast­ast, verk­fall á prent­miðlun í aðdrag­anda hins svo­kall­aða „Black Friday“ í lok nóv­em­ber, var frestað í sam­starfi við Samtök atvinnu­lífs­ins.

Í lok nóv­em­ber voru greidd atkvæði um kjara­samn­ing­inn sem Samtök atvinnu­lífs­ins lögðu fram og hann kol­felldur.

Í kjöl­farið voru boð­aðar verk­falls­að­gerðir kláraðar og þær síð­ustu fóru fram 6. des­em­ber.

Nýir kjara­samn­ingar voru loks und­ir­rit­aðir í mars 2020, en félags­menn í Blaða­manna­fé­lag­inu höfðu þá verið samn­ings­lausir í tæp­lega 15 mán­uði. Sá samn­ingur var sam­þykktur af félags­mönnum skömmu síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár