Dómsmálaráðherra leggur fram frumvarp til að binda enda á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar

Samstaða er í rík­is­stjórn­inni um að leggja fram frum­varp um lög til að binda enda á verk­fall flug­virkja hjá Land­helg­is­gæslu Íslands.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um lög til að binda enda á verk­fall flug­virkja hjá Land­helg­is­gæslu Íslands. Vísir greinir frá.

Hún segir í sam­tali við Vísi að frum­varpið feli í sér að flug­virkjar fái frelsi til þess að klára samn­inga fyrir 4. jan­úar, ann­ars fari deilan fyrir gerð­ar­dóm. Hún segir fulla sam­stöðu hafa verið um þessar aðgerðir í rík­is­stjórn.

Flug­virkjar Land­helg­is­gæsl­unnar hafa verið í verk­falli frá 5. nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Samn­inga­nefndir flug­virkja og rík­is­ins fund­uðu hjá rík­is­sátta­semj­ara í gær en sá fundur skil­aði ekki árangri, að því er fram kemur í frétt RÚV.

„Kjara­deila flug­virkja varðar almanna­hags­muni og almanna­ör­yggi og þess vegna er þessi leið óhjá­kvæmi­leg í ljósi alvar­legrar stöðu hjá Land­helg­is­gæsl­unni,“ skrifar dóms­mála­ráð­herra á Twitter. 

Ekkert lofthæft flugfar í augnablikinu

Georg Lárusson, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar, sagði í sam­tali við RÚV í morgun að staðan væri afar slæm. „Við höfum ekk­ert loft­hæft flug­far í augna­blik­inu, þessi eina þyrla sem við höfum verið að nota er stopp og nú ríður á að fá menn til vinnu til að ljúka skoðun á henni sem tekur tvo sól­ar­hringa.“

Hann sagði jafn­framt að ekki hefðu allir þeir flug­virkjar sem Land­helg­is­gæslan teldi að ættu að vera við vinnu mætt til að sinna við­haldi, að und­an­skildun einum þyrlu­vakt­ar­manni. „Að öðru leyti hafa þeir ekk­ert látið sjá sig. Engar skýr­ingar þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir, skrif­legar og munn­legar. Enginn látið sjá sig.“

Taldi Landhelgisgæsluna brjóta lög um vinnudeilur

Í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni fyrr í mán­uð­inum kom fram að ítrek­uðum und­an­þágu­beiðnum frá verk­falli vegna við­halds­skipu­lagn­ingar hefði verið hafnað af Flug­virkja­fé­lagi Íslands. Guðmund­ur Úlfar Jóns­son, for­maður flug­virkja­fé­lags Íslands, sagði í sam­tali við mbl.is þann 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Land­helg­is­gæsl­una bryti lög um vinnu­deil­ur með því að láta hluta flug­virkja fé­lags­ins starfa áfram þrátt fyr­ir verk­fall. Þá væru þeir sem áfram starfi látn­ir ganga í störf þeirra sem væru í verk­falli.

Fram kom hjá mbl.is að af 18 flug­virkj­um sem starfa hjá gæsl­unni væru aðeins sex í verk­falli. Af þeim væru átta sem eru svo­kall­aðir spil­menn og ganga þeir út­kallsvakt­ir á þyrlu gæsl­unn­ar. Guðmund­ur sagði að eng­inn ágrein­ing­ur væri uppi um að þeir aðilar væru ekki í verk­falli þar sem þeir væru við­bragðs­að­ilar og því gilti um þá lög sem við­bragðs­að­ila.

Stjórnvöld yrðu að höggva á hnútinn

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ræddi málið undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni. Hann sagði gera yrði þá ský­lausu kröfu til stjórn­valda að þau hyggju á þennan hnút.

„Við erum til taks. Þetta er kjör­orð Land­helg­is­gæsl­unnar og blasir við á skjánum þegar farið er inn á heima­síðu hennar — nema í dag og á morgun, verður að bæta við frá og með mið­nætti í kvöld. Þá verður drepið á síð­ustu þyrl­unni og engin slík til taks næstu tvo sól­ar­hring­ana. Ætli þetta sé ekki eini neyð­ar­sím­inn í heim­inum, hjá þeim sem sjá um leit og björgun á fólki í lífs­háska, þar sem svarið verður: Nei, því miður, það er lokað vegna vinnu­deilna?

Það stendur á endum, það verður lokað rétt í þann mund sem óveður gengur yfir landið. Svo dæmi sé tekið þá gæti þyrla verið eina far­ar­tækið til bjargar manns­lífum í mínum heimabæ, ef svo bæri undir strax í nótt, að ekki sé talað um öryggi sjó­manna á hafi úti. En eftir níu klukku­tíma tekur við svarið: Nei, því miður, það er lokað, engin þyrla til taks. Þyrlur Gæsl­unnar fara að með­al­tali í 21 útkall á mán­uði. Þar af eru sjö til tíu á hafi úti eða upp á hálendið þar sem öðrum björgum verður ekki við komið. Að nákvæm­lega þessi þjón­usta, leit og björgun, skuli leggj­ast af vegna vinnu­deilna er auð­vitað algjör­lega óásætt­an­legt,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Hann sagði enn fremur að gera yrði þá ský­lausu kröfu til stjórn­valda að þau hyggju á þennan hnút, ef ekki með samn­ingum þá með laga­setn­ingu. „Mannslíf geta verið í húfi og ábyrgð þeirra sem komið hafa málum í þessa stöðu er mikil.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár