„Látum Amazon borga“

Starfs­menn Amazon munu á svörtum föstu­degi efna til mót­mæla og jafn­vel verk­falla á starfs­stöðvum Amazon víða um heim. Alþýðu­sam­band Íslands er orðið þátt­tak­andi í alþjóð­legri her­ferð undir yfir­skrift­inni „Látum Amazon borga“.

Alþýðu­sam­band Íslands er þátt­tak­andi í alþjóð­legri her­ferð undir yfir­skrift­inni Make Amazon Pay eða Látum Amazon borga. Tilefnið er óásætt­an­leg fram­koma risa­fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart starfs­fólki sínu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ASÍ í dag.

Efnt verður til aðgerða þann 27. nóv­em­ber næst­kom­andi, á svörtum föstu­degi eða Black Friday eins og dag­ur­inn kall­ast á enskri tungu, sem er einn stærsti versl­un­ar­dagur Banda­ríkja­manna og hefur jafn­framt fest sig í sessi sem útsölu­dagur hér á landi og víðar.

Í til­kynn­ing­unni segir að starfs­menn Amazon muni efna til mót­mæla og jafn­vel verk­falla á starfs­stöðvum Amazon víða um heim og í kjöl­farið muni þing­menn í fjöl­mörgum löndum ljá átak­inu rödd sína og sam­ein­ast um til­lögur til laga­breyt­inga sem myndu tryggja rétt­indi og kjör starfs­fólks.

[adspot]

Þetta eru kröf­urnar sem lagðar eru fram:

  • Kjör og rétt­indi starfs­fólks: þ.e. sann­gjörn laun, hlé á vinnu­tíma, öryggi á vinnu­stað og veik­inda­réttur.
  • Starfs­ör­yggi: m.a. með því að hætta laus­ráðn­ingum og gervi­verk­töku og tryggja gagn­sæja ferla fyrir kvart­anir.
  • Virðing fyrir rétt­indum launa­fólks: m.a. með því að hætta skipu­lögðu nið­ur­broti stétt­ar­fé­laga, við­ur­kenna samn­ings­rétt launa­fólks og tryggja sam­ráð við full­trúa launa­fólks.
  • Sjálf­bærni í rekstri: m.a. með því að stefna að kolefn­is­hlut­leysi fyrir 2030, inn­leiða rétt­lát umskipti og hætta að styðja við mál­stað þeirra sem afneita lofts­lags­breyt­ingum.
  • Greiða til sam­fé­lags­ins: m.a. með því að greiða skatta í þeim löndum sem Amazon starfar í, hætta að nota skatta­skjól og draga úr ein­okun.

Meðal þeirra sem hafa stað­fest þátt­töku sínu í átak­inu eru ITUC, Public Services International og Amazon Workers International. Þátttaka ASÍ var sam­þykkt á fundi mið­stjórnar 4. nóv­em­ber 2020, að því er fram kemur hjá sam­band­inu.

Starfsfólkið lætur í sér heyra

„Amazon er eitt valda­mesta stór­fyr­ir­tæki í heimi með vinnu­stöðvar í fjórtán löndum en starf­semin teygir sig um allan heim, þ. á m. til Íslands. For­stjóri Amazon er rík­asti maður heims og hefur COVID-far­ald­ur­inn aukið mjög á auð­æfi hans vegna auk­inna heim­send­inga. Samhliða hefur verið dregið fram í dags­ljósið hversu illa búið er að starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins. Heilsu þess og öryggi er ítrekað stefnt í hættu. Sem dæmi má nefna að einn starfs­maður á að skanna þrjá­tíu send­ingar á færi­bandi á einni mín­útu, undir raf­rænu eft­ir­liti, og fær aðeins tvær fimmtán mín­útna pásur á dag. Inni­falið í henni er að koma sér til og frá mat­ar­að­stöðu starfs­manna sem getur tekið allt að því allan tím­ann. Slysa­tíðni er há.

Starfs­fólk Amazon víða um heim hefur látið meira í sér heyra og sent frá sér ákall um bætt starfs­um­hverfi. Með átaki Progressive International er mark­miðið að taka undir með kröfum þeirra og þrýsta á breyt­ingar. Íslend­ingar eru not­endur Amazon og mik­il­vægt að upp­lýsa okkar félaga og íslenska neyt­endur um aðbúnað og aðstöðu launa­fólks hjá fyr­ir­tæk­inu,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár