„Firra“ að lausnin á kreppunni sé að skerða kjör láglaunafólks

Efling mót­mælir orðum fram­kvæmda­stjóra SA harð­lega og segir að honum sé nær að biðla til stétt­bræðra sinna um að fjár­festa meira í atvinnu­þróun eða auka neyslu í stað þess „að vega að verka­fólki með laun undir opin­berum fram­færslu­við­miðum“.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

„Enn og aftur bera Samtök atvinnu­lífs­ins á borð þá firru að lausnin á kór­óna­veiru­krepp­unni sé að skerða kjör lág­launa­fólks.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Eflingu í dag.

Tilefni til­kynn­ing­ar­innar eru orð Halldórs Benja­míns Þor­bergs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA), í umræðu­þætt­inum Víglínan síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Þar tal­aði hann meðal ann­ars um núgild­andi kjara­samn­inga og „óheilla­þróun“ á vinnu­mark­aði en hann telur þær launa­hækk­anir sem framundan eru ekki heilla­væn­legar.

Halldór Benjamín sagði að SA hefði í tvígang reynt að fá verka­lýðs­hreyf­ing­una til að gera breyt­ingar á kjara­samn­ingi til þess að tryggja það að við sæjum ekki „þessar skelfi­legu atvinnu­leysis­tölur sem við höfum séð. Ég hef fall­ist á það að við látum þessar launa­hækk­anir koma til fram­kvæmda en ég segi hér og mun segja víðar: Ég mun halda til haga hverjar afleið­ingar þess­arar ákvörð­unar eru. Þetta er röng ákvörðun að mínu mati en ég tel að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að afstýra því stór­slysi sem er framundan á íslenskum vinnu­mark­aði.“

Í til­kynn­ingu Eflingar vill stétt­ar­fé­lagið koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

  • Lág­marks­taxtar kjara­samn­inga stjórna ekki launa­myndun í land­inu. Minni­hluti launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði, sá lægst laun­aði, tekur kjör sín eftir þeim. Meiri­hlut­inn er á mark­aðs­launum sem samið er um á ein­stak­lings­grund­velli. Atvinnu­rek­endum er heim­ilt að end­ur­semja við sitt starfs­fólk um mark­aðs­laun umfram lág­marks­taxta, að virtum fyr­ir­vara.
  • Kjara­samn­ings­bundin taxta­laun, lág­marks­laun hinna verst laun­uðu, eru einu launin á almennum vinnu­mark­aði sem ekki er hægt að end­ur­semja um á þennan hátt. Þetta eru þau laun sem fram­kvæmda­stjóri SA krefst nú sér­stakra árása á og kennir um að séu valdur að atvinnu­leysi. Það er mjög vill­andi kenn­ing.
  • Hæstu lág­marks­laun í kjara­samn­ingi Eflingar og SA eru nú 341.680 krónur á mán­uði en það eru grunn­laun í dag­vinnu fyrir hóp­bif­reiða­stjóra með 5 ára starfs­aldur. Þau laun munu hækka um 24 þús­und þann 1. jan­úar 2021, fyrir skatt, og nemur hækk­unin um 7 pró­sent. Margir hóp­ferða­bíl­stjórar eru nú atvinnu­lausir. Þeir fá ekki vinnu þó launa­taxti þeirra verði frystur, heldur með end­ur­komu ferða­fólks til lands­ins.
  • Langstærstur meiri­hluta íslenskra fyr­ir­tækja er í blóm­legum rekstri, og þau sem eru í vanda hafa notið ríf­legrar aðstoðar úr rík­is­kass­anum einmitt til að geta staðið undir launa­greiðslum. Sum fyr­ir­tæki tengd ferða­þjón­ustu eru vissu­lega í alvar­legum vanda og hafa jafn­vel hætt rekstri, en gjald­þrota fyr­ir­tæki ráða þó ekki fólk í vinnu.
  • Í sínu eigin kynn­ing­ar­efni hafa Samtök atvinnu­lífs­ins bent á að sparn­aður heim­ila hafi auk­ist á síð­ustu mán­uðum. SA halda því fram að þetta sé til marks um „tak­mörkuð tæki­færi til neyslu“ en í þeim orðum birt­ist algjör veru­leikafirr­ing SA gagn­vart lífs­kjörum lág­launa­fólks. Fólk með 341.680 krónur í grunn­laun á mán­uði sparar ekki; það eyðir hverri krónu í nauð­synjar sama þótt þau laun hækki um 7 pró­sent milli ára. Sú hækkun mun í til­viki lág­launa­fólks leiða beint til auk­innar neyslu, ekki sparn­aðar, og verða inn­an­lands­hag­kerf­inu dýr­mæt örvun. Þetta hefur Efling hefur marg­ít­rekað bent á, sjá t.d. nýlega skýrslu „Leið Eflingar út úr krepp­unni.“
  • Þeir sem fylla nú banka­reikn­inga sína af sparn­aði er stór­eigna- og hálauna­fólk af þeirri sömu stétt for­rétt­inda­fólks og fer með völd í SA. Fram­kvæmda­stjóra SA væri nær að biðla til þess­ara stétt­bræðra sinna um að fjár­festa meira í atvinnu­þróun eða auka neyslu í stað þess að vega að verka­fólki með laun undir opin­berum fram­færslu­við­miðum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár