Launaþjófnaður sívaxandi vandamál – „Þessu verður að linna“

Efling þrýstir nú á að launa­þjófn­aður atvinnu­rek­enda gagn­vart launa­fólki verði gerður refsi­verður á Íslandi – og hvetur félagið stjórn­völd til að standa við gefin fyr­ir­heit.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Efling hefur hrundið af stað her­ferð til að þrýsta á um að launa­þjófn­aður atvinnu­rek­enda gagn­vart launa­fólki verði gerður refsi­verður á Íslandi. Í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu segir að launa­þjófn­aður sé sívax­andi vanda­mál á íslenskum vinnu­mark­aði og að hann komi harð­ast niður á lág­launa­fólki.

Þol­in­mæði Eflingar er á þrotum, að því er fram kemur í stöðu­upp­færslu félags­ins á Facebook. „Stjórn­völd verða að standa við gefin fyr­ir­heit um að gera launa­þjófnað refsi­verðan. Þegar fólk á yfir höfði sér fang­els­is­dóm fyrir að stela sam­loku fyrir innan við 1.000 krónur og til stendur að sekta fólk um sex­tíu­falda upp­hæð far­gjalds fyrir að borga ekki í strætó er ekki nema sann­gjarnt að beita fjár­sektum til að koma í veg fyrir mörg hund­ruð milljón króna árlegan launa­þjófnað atvinnu­rek­enda gagn­vart lægst laun­aða fólk­inu í land­inu. Þessu verður að linna!“

Heild­ar­kröfur Eflingar vegna van­gold­inna launa Efl­ing­ar­fé­laga námu ríf­lega millj­arði á síð­ustu fimm árum. Í til­kynn­ingu félags­ins segir að launa­þjófn­aður sé mun viða­meira vanda­mál heldur en þessar tölur gefi til kynna „enda fleiri stétt­ar­fé­lög sem taka við erindum félags­manna um van­goldin laun. Auk þess leitar ekki nándar nærri allt launa­fólk réttar síns gagn­vart atvinnu­rek­endum af ótta við að missa vinn­una.“

Kröfum fjölgað úr 200 í 700 á fimm árum

Sífellt fleira launa­fólk leitar eftir aðstoð stétt­ar­fé­laga við að krefja atvinnu­rek­endur um van­goldin laun, sam­kvæmt Eflingu. Þannig hafi kröfum Kjara­mála­sviðs Eflingar fyrir hönd félags­manna fjölgað úr 200 á ári upp í 700 á síð­ustu fimm árum. Að sama skapi hafi heild­ar­upp­hæð krafna farið stig­hækk­andi og numið 345 millj­ónum króna á síð­asta ári. „Kröfur stétt­ar­fé­lags­ins fyrir hönd ein­stakra félags­manna nema oft­ast á bil­inu 380 til 490 þús­und krónur og langan tíma getur tekið að inn­heimta hverja kröfu fyrir sig. Á meðan situr launa­mað­ur­inn uppi með skað­ann af því að geta ekki séð sér fyrir nauð­þurftum og staðið skil á skuld­bind­ingum eins og leigu,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Engin sekt eða bóta­upp­hæð bæt­ist ofan á launa­kröfur og því hafi atvinnu­rek­endur engan hvata til að leið­rétta van­goldin laun hjá öðrum en þeim sem leita réttar síns. Eina leiðin til að setja þrýst­ing í þessum til­vikum sé að fara í mál gagn­vart atvinnu­rek­anda fyrir dóm­stólum og nema bætur þá oft­ast aðeins máls­kostn­aði og drátt­ar­vöxtum. Efling krefst þess að refs­ing vegna launa­þjófn­aðar nemi minnst 100 pró­sent af launa­kröfu vegna stol­inna launa. Lægri sekt styðji aðeins við ábata atvinnu­rek­enda af þjófn­aði úr vösum verka­fólks.

Stjórnvöld lofuðu að viðurlög yrðu sett inn í íslenska löggjöf

Enn fremur kemur fram hjá Eflingu að hvorki launa­þjófn­aður né önnur brot gagn­vart lág­marks­kjörum verka­fólks séu refsi­verð í íslenskri lög­gjöf enda þótt dæmi séu um slík við­ur­lög í kjara­samn­ingum. Heimilt sé að sekta útgerðir um hátt í 600.000 krónur vegna launaund­anskots í kjara­samn­ingi Sjó­manna­sam­bands Íslands. Efling fór fram á að við­ur­lög af þessu tagi yrðu sett inn í kjara­samn­ing sinn við Samtök atvinnu­lífs­ins vet­ur­inn 2018 til 2019. Í fram­haldi af því gáfu stjórn­völd lof­orð um að slík við­ur­lög yrðu sett inn í íslenska lög­gjöf í yfir­lýs­ingu undir yfir­skrift­inni „Stuðn­ingur stjórn­valda við lífs­kjara­samn­ing­ana“. Ekkert bóli þó á efndum þrátt fyrir ítrek­aðar áminn­ingar þar um.

„Á sama tíma hafa þó stjórn­völd fært inn í íslenska lög­gjöf ýmis konar sekt­ar­á­kvæði og er í því sam­bandi nær­tæk­ast að nefna að til stendur að sekta strætófar­þega um sex­tíu­falda upp­hæð far­gjalds fyrir að greiða ekki fyrir staka ferð.

Efling krefst þess að stjórn­völd standi við orð sín og komi í veg fyrir að atvinnu­rek­endur haldi áfram að seil­ast í laun lægst laun­aða fólks­ins á íslenskum vinnu­mark­aði,“ segir að lokum í til­kynn­ingu Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár