Sérhagsmunaöflin „stökkva á tækifærið“ til að hafa afkomuöryggið af fólki

Forseti Alþýðu­sam­bands Íslands setti 44. þing sam­bands­ins í dag. Hún sagði í ávarpi við þing­setn­ingu að hættan þegar harðnar á dalnum væri sú að rétt­indi yrðu gefin eftir og ójöfn­uður ykist.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Aðsend mynd

„Það hefur ekki farið fram hjá neinum að atvinnu­rek­endur hafa þrýst á um launa­lækk­anir eða kjara­skerð­ingar með vísan til ástands­ins. Þetta sjón­ar­mið hefur fengið hljóm­grunn í fjöl­miðlum og stjórn­málum og víðar í sam­fé­lag­inu undir þeim for­merkjum að þegar þrengi að þá verði allir að gefa eitt­hvað eftir.“

Þetta sagði Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), í ávarpi sínu við þing­setn­ingu 44. þings ASÍ í dag.

Hún sagði að við þessu væri tvennt að segja. „Annars vegar það að launa­fólk hefur þegar tekið gríð­ar­legan skell í þess­ari kreppu í gegnum atvinnu­leysi og kjara­skerð­ingar og hins vegar það að aðhalds­stefna er ekki aðeins gagns­laus á kreppu­tímum, hún er bein­línis skað­leg. Það er ekk­ert sem rennir stoðum undir þá kenn­ingu að ískaldar launa­fryst­ingar þvert á lín­una séu rétta leiðin út úr krepp­unni, þvert á móti.“

Drífa sagði enn fremur að ef not­ast væri við sömu hag­fræði og hefði verið alls ráð­andi síð­ustu ára­tugi – og sem sumir segðu að byggði á „jafn­vís­inda­legum grunni og sjálft þyngd­ar­lög­málið“ – þá myndum við rata á hættu­lega braut. „Meira að segja Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur nú stigið fram og ráð­lagt ríkjum að ráð­ast ekki í aðhalds­að­gerðir en að gera fremur allt til að tryggja afkomu fólks á erf­iðum tímum. Því þau ríki sem völdu nið­ur­skurð út úr fjár­málakrepp­unni fyrir rúmum ára­tug síðan hafa komið hrylli­lega illa út úr því, bæði heilsu­fars­lega og efna­hags­lega.“

Þegar íhalds­söm­ustu stofn­anir heims eins og OECD og Alþjóða­bank­inn væru farin að leita lausna í afkomu­trygg­ingu fyrir alla og meira að segja hin árlega Davos-sam­koma hinna ríku og ráð­andi kall­aði eftir auknum jöfn­uði þá ætti síð­asta vígið að vera fallið. „Við heyrum hins vegar enn raddir hér á landi sem vilja fara í blóð­ugan nið­ur­skurð. Þetta eru oft sömu radd­irnar og segja okkur að við séum öll á sama báti. Við erum það ekki og höfum aldrei verið. Fólk sem vinnur á stríp­uðum töxtum eða hefur misst lífs­við­ur­værið er ekki á sama báti og fjár­mála­ráð­herra eða for­stjórar. Bara engan veg­inn.“

Hún sagði sér­hags­muna­öflin alltaf vera til­búin til að stökkva á tæki­færið til að hafa afkomu­ör­yggið af fólki. „Í þessu landi eru bein­línis öfl sem vilja losna við lág­marks­vernd launa­fólks, sem telja atvinnu­leys­is­trygg­ingar ýta undir leti og að fólki sé fullur sómi sýndur með því að ætla því innan við 300 þús­und krónur til mán­aða­legrar fram­færslu. Og þetta er einmitt hættan þegar harðnar á dalnum, að rétt­indi verði gefin eftir og ójöfn­uður auk­ist. Það eru margir sem vilja nýta ferð­ina og kreppur hafa í áranna rás aukið mis­rétti.

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum þegar for­sendur kjara­samn­ing­anna voru undir þá voru það ekki við sem sköp­uðum óvissu og ófrið. Það voru atvinnu­rek­endur sem ætl­uðu að nýta ferð­ina til að knýja á um launa­lækk­anir eða skerð­ingar. Við bárum gæfu til þess að standa saman gegn þrýst­ingi og atvinnu­rek­endur urðu upp­vísir að ótrú­legum vinnu­brögðum í ein­hvers­konar störu­keppni sem stóð þar til stjórn­völd stigu inn og skáru atvinnu­rek­endur úr snöru sem þeir hengdu sjálfir,“ sagði hún.

Munu ekki líða það að skútunni sé siglt eftir úreltum hugmyndum

Þá telur Drífa að kreppan verði ekki til að auka ójöfnuð. „Við munum ekki líða það að skút­unni sé siglt eftir úreltum hug­myndum sem hafa skaðað vinn­andi fólk um heim allan og mulið undir fjár­mála­öflin. Við bjóðum lausnir sem fel­ast í að tryggja afkomu og lífs­gæði allra en ekki fárra. Við vinnum okkur ekki út úr þess­ari kreppu með nið­ur­skurði í vel­ferð­ar­kerf­unum okkar eða stór­felldum kjara­skerð­ingum. Við vinnum okkur út úr þessu með því að sækja fram, verja kjörin og verja vel­ferð­ina. Við krefj­umst þess að rík­is­fjár­málum sé beitt af fullum þunga til að lág­marka skað­ann af krepp­unni. Við krefj­umst þess að þeir sem eru aflögu­færir leggi meira af mörkum til sam­fé­lags­ins; þar get ég nefnt stór­fjár­magns­eig­endur og kvóta­eig­endur, ef kallað er eftir dæmum,“ sagði hún.

Aldrei væri meiri þörf á sterkri verka­lýðs­hreyf­ingu heldur en þegar völd atvinnu­rek­enda ykjust á kostnað launa­fólks. „Við erum í þannig stöðu núna að óprút­tnir atvinnu­rek­endur geta boðið örvænt­inga­fullu fólki laun og aðstæður sem telj­ast ekki boð­legar. Þá kemur það til okkar kasta að heyja bar­átt­una gegn félags­legum und­ir­boðum og fyrir því að samn­ingar séu virtir. Það þarf að vera refsi­vert og ekki áhætt­unnar virði að svína á launa­fólki. Við eigum enn tölu­vert í land þar og sú bar­átta stendur yfir.

Þó að hart sé í ári núna þá munu koma betri tímar og það veltur á okkur hvernig fram­tíðin lítur út. Verk­efnin til skamms tíma eru áfram­hald­andi bar­átta fyrir hækkun atvinnu­leys­is­bóta, að kerfin sem launa­fólk á undan okkur barð­ist fyrir virki sem skildi þegar virki­lega reynir á. Við verðum að verja þau heim­ili sem hafa fengið harðan skell á þessu ári og við verðum að styðja okkar félags­menn í vörnum gegn veirunni.“

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár