Tíu staðreyndir um íslenska ferðaþjónustu

Meira en 2 millj­ónir ferða­manna sóttu Ísland heim á síð­asta ári og höfðu þá aldrei verið svo margir. Blikur eru á lofti í starfs­um­hverfi grein­ar­innar, það hægist á fjölgun ferða­manna og efna­hags­um­hverfið gerir henni erf­ið­ara fyrir.

Meira en 2 millj­ónir ferða­manna sóttu Ísland heim á síð­asta ári og höfðu þá aldrei verið svo margir. Flestir ferða­menn koma til lands­ins á sumrin sem er mik­il­væg­asti tím­inn fyrir grein­ina sem hefur verið lyk­ill­inn í við­snún­ingi í efna­hags­lífi þjóð­ar­innar frá hruni. Blikur eru á lofti í starfs­um­hverfi grein­ar­innar, það hægist á fjölgun ferða­manna og efna­hags­um­hverfið gerir henni erf­ið­ara fyrir. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um íslenska ferða­þjón­ustu.

1.

Árið 2017 komu 2,2 millj­ónir ferða­manna til lands­ins. Lang­flestir koma í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl eða 98,7 pró­sent. Um 22 þús­und komu með Norrænu um Seyð­is­fjörð eða 1 pró­sent af heild og um sjö þús­und með flugi um Reykja­víkur-, Akur­eyrar- eða Egils­staða­flug­völl eða um 0,3 pró­sent af heild.

2.

Á tíma­bil­inu 2012-2016 útskýrði vöxtur í ferð­þjón­ustu að með­al­tali tæp­lega 50 pró­sent af hag­vexti þess­ara ára. Á árinu 2012 var hægt að rekja um 55 pró­sent af hag­vexti árs­ins til atvinnu­greina í ferða­þjón­ustu. Lengi vel var vægi ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu 3-4 pró­sent en frá árinu 2010 hefur vægi hennar hækkað úr 3,5 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í tæp­lega 9 pró­sent.

3.

Heild­ar­neysla ferða­manna á inn­lendri ferða­þjón­ustu, og þar er allt undir, gist­ing, ferðir, veit­ingar, sam­göngur og svo fram­vegis, var á árinu 2017 um 551 millj­arður króna sam­kvæmt útreikn­ingi Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Um 70 pró­sent þess­arar neyslu af vegna erlendra ferða­manna. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar hækk­aði neysla erlendra ferða­manna á inn­lendri ferða­þjón­ustu um 12 pró­sent í fyrra frá því árinu áður.

4.

Á árunum 2016 og 2017 áætla Samtök ferða­þjón­ust­unnar að fjár­fest­ing í ferða­þjón­ustu hafi verið á milli 90-100 millj­arðar kr. hvort ár um sig, í hótel- og gisti­heim­ilum, bílum, flug­rekstri, flug­völlum og öðrum flutn­ings­tækjum. Gert er ráð fyrir að fjár­fest­ing í hót­el­bygg­ingum verði hæg­ari á þessu ári en haldi þó áfram að vera mikil og er það ekki síst vegna fram­kvæmda við Marriott hót­elið við Hörpu í Reykja­vík, þar sem verið er að byggja 250 her­bergi. Hlutfall útlána bank­anna til ferða­þjón­ustu hefur verið í kringum 15 pró­sent af heild­ar­út­lánum við­skipta­bank­anna síð­ustu tvö árin til atvinnu­fyr­ir­tækja. Það er svipað og útlán til sjáv­ar­út­vegs­ins.

5.

Hag­stofan áætlar að um 13 til 14 pró­sent af heild­ar­fjölda starf­andi ein­stak­linga á íslenskum vinnu­mark­aði starfi í ferða­þjón­ustu eða um 25 til 26 þús­und manns. Samkvæmt vinnu­mark­aðs­könnun stofn­un­ar­innar frá árinu 2012 var það um 10 pró­sent af heild­ar­fjölda starf­andi, eða um 17.500 manns.

6.

Í fyrra var Ísland í 25. sæti af 135 löndum yfir sam­keppn­is­hæf­ustu ferða­manna­lönd heims sam­kvæmt Alþjóða­efna­hags­ráð­inu. Á árinu 2015 var það í 18. sæti. Styrkur Íslands á þennan mæli­kvarða er góður þegar kemur að friði og öryggi en það er nátt­úra lands­ins sem er sér­staðan á alþjóð­legum mark­aði.

7.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs nam fjöldi erlendra ferða­manna 481 þús­und borið saman við 452 þús­und á sama tíma­bili í fyrra. Aukn­ingin nemur 6,3 pró­sentum milli ára. Fara þarf aftur fyrir upp­haf upp­sveifl­unnar í ferða­þjón­ustu til að finna minni vöxt, en á þriðja árs­fjórð­ungi 2010 fækk­aði ferða­mönnum um 1,3 pró­sent borið saman við sama fjórð­ung árið áður.

8.

Um 84 pró­sent Íslend­inga ferð­uð­ust inn­an­lands á árinu 2017 sam­kvæmt könnun Ferða­mála­stofu. Suð­ur­land og Norð­ur­land voru þeir lands­hlutar sem flestir heim­sóttu og þar var einnig um helm­ingur allra gistin­átta. Íslenskir ferða­langar greiddu fyrir tæpan helm­ing gistinótta sinna en ann­ars gistu flestir í sum­ar­húsi í einka­eign eða hjá vinum og ætt­ingjum. Sund­laugar og söfn voru líkt og verið hefur sú afþrey­ing sem algeng­ast var að fólk greiddi fyrir en um þriðj­ungur greiddi ekki fyrir afþr­ey­ingu á ferða­lagi sínu.

9.

Aldrei fóru fleiri Íslend­ingar til útlanda en tæp 80 pró­sent svar­enda Ferða­mála­stofu ferð­uð­ust utan á síð­asta ári. Bret­landseyjar voru vin­sæl­asti áfanga­stað­ur­inn en Spánn (þ.m.t. Kanarí­eyjar) og Portúgal komu þar á eftir. Um níu svar­endur af hverjum tíu áforma ferða­lög á yfir­stand­andi ári og eru ferða­á­form fjöl­breytt sem fyrr. Um helm­ingur nefndi sum­ar­bú­staða­ferð og borg­ar­ferð erlendis, litlu færri heim­sókn til vina og ætt­ingja og 37 pró­sent stefna á sól­ar­landa­ferð.

10.

Ferða­menn sem sóttu Ísland heim síð­asta sumar voru óánægð­ari með ferð­ina þá miðað við sum­arið á undan. Ferða­mannapúls Gallup, sem mælir heildará­nægju og heild­ar­upp­lifun ferða­manna á heim­sókn þeirra til Íslands, lækk­aði mark­tækt á milli sumra. Ferða­mannapúls­inn var 2,5 stigum lægri fyrir sum­arið 2017 heldur en sum­arið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár