Hvað er að hrjá hlutabréfamarkaðinn?

FJallað er um stöðu mála á hluta­bréfa­mark­aði í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, sem send var áskrif­endum í dag.

Íslenskur hluta­bréfa­mark­aður hefur ein­kennst af tölu­verðum sveiflum að und­an­förnu, ekki síst eftir að rík­is­stjórnin féll og ákveðið var að boða til kosn­inga. Vísitala íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins hefur lækkað um 3,4 pró­sent það sem af er ári, sam­kvæmt vef Keld­unnar.

Staðan á hluta­bréfa­mark­aði er til umfjöll­unar í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, þar sem Eggert Þór Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Virðingu, fjallar um stöð­una. „Inn­lendur hluta­bréfa­mark­aður hefur átt undir högg að sækja á síð­ustu vikum og mán­uðum eftir góða spretti framan af ári. Síð­ast­lið­inn ágúst­mán­uður var lík­lega sá versti sem sést hefur eftir end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­að­ar­ins en þá lækk­uðu helstu vísi­tölur mark­að­ar­ins um 6%. Óstöð­ug­leiki í geng­is­málum, breyt­ingar í sam­keppn­isum­hverfi fyr­ir­tækja og nú síð­ast póli­tísk óvissa hafa átt sinn þátt í því að mark­aðs­verð­mæti margra skráðra félaga hefur lækkað skarpt á síð­ustu vikum. Einnig má halda því fram að ákveðið flæð­is­vanda­mál hafi mynd­ast eftir afnám gjald­eyr­is­hafta. Meiri fjár­munir hafa streymt út af mark­aðnum en hafa komið inn. Líf­eyr­is­sjóðir, sem hafa verið afar áber­andi kaup­endur að inn­lendum hluta­bréfum á síð­ustu árum, hafa haldið að sér höndum og aðrir inn­lendir fjár­festar horfa í vax­andi mæli út fyrir lands­stein­ana. Á sama tíma eru erlendir sjóðir orðnir meira áber­andi en nokkurn tíma áður,“ segir í grein­inni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi af Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár