VÍS sendir frá sér afkomuviðvörun vegna þróunar á markaði

VÍS skilar 1,1 millj­arða króna lægri afkomu á öðrum árs­fjórð­ungi en áður var spáð, en félagið segir ástæð­una vera bruna­tjón í Perlunni og Mið­hrauni á tíma­bil­inu auk óhag­stæðrar þró­unar á hluta­bréfa­mark­aði.

Höfuðstöðvar VÍS
Höf­uð­stöðvar VÍS Mynd: VÍS

Vátrygg­inga­fé­lag Íslands gerði grein fyrir í dag að afkoma félags­ins á öðrum árs­fjórð­ungi sé um 1,1 millj­arði lægri en afkomu­spá hafði gert ráð fyrir. Þetta kom fram í til­kynn­ingu félags­ins sem birt­ist á vef Kaup­hall­ar­innar þann 20. júní auk ann­arar til­kynn­ing­ar­innar á vef Kaup­hall­ar­innar fyrr í dag.

Í til­kynn­ingu VÍS þann 20. júní var reiknað með að hagn­aður félags­ins yrði 92 millj­ónir króna fyrir skatta á öðrum árs­fjórð­ungi, í stað 792 millj­óna króna sem áður var spáð. Ástæða lækk­un­ar­innar voru tvö bruna­tjón sem áttu sér stað á tíma­bil­inu, ann­ars vegar í Perlunni og hins vegar í Mið­hrauni.

Samkvæmt VÍS er afar óvenju­legt að tvö tjón af slíkri stærð­argráðu eigi sér stað á sama árs­fjórð­ungi. Bæði tjónin séu af umfangi sem ekki hefur sést hjá VÍS síðan í óveðr­inu í mars 2015 og brun­anum í Skeif­unni sum­arið 2014.

Í til­kynn­ingu Kaup­hall­ar­innar fyrr í dag var svo gert ráð fyrir frek­ari lækkun afkomu um aðrar 392 millj­ónir íslenskra króna, en sam­kvæmt félag­inu er aðal­á­stæða þeirrar lækk­unar óhag­stæð þróun á verð­bréfa­mörk­uðum síð­ustu daga í júní. Því skil­aði vátrygg­inga­fé­lagið 300 millj­óna tapi á öðrum árs­fjórð­ungi.

Afkomu­við­vörun VÍS kemur tveimur dögum eftir við­vörun ann­ars stórs félags í Kaup­höll­inni, en Kjarninn greindi frá lækkun afkomu­spár Icelandair um nær 30% á sunnu­dag­inn. Í kjöl­farið lækk­aði verð á hluta­bréfum flug­fé­lags­ins um fjórð­ung.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár