TM með þriðju afkomuviðvörunina í Kauphöllinni

TM gerir ráð fyrir 200 millj­óna króna tapi á öðrum árs­fjórð­ungi 2018, en það er 700 millj­ónum króna lægri spá en áður var talið. Afkomu­við­vörun félags­ins er sú þriðja í Kaup­höll­inni í vik­unni.

Höfuðstöðvar TM í Síðumúla
Höf­uð­stöðvar TM í Síðumúla Mynd: Aðsend

Trygg­inga­mið­stöðin hf. sendi frá sér afkomu­við­vörun fyrir annan árs­fjórð­ung 2018 fyrr í dag, en þar voru tekjur fyr­ir­tæk­is­ins lækk­aðar um 700 millj­ónir króna. Þetta er þriðja afkomu­við­vörun í Kaup­höll­inni í vik­unni, en tvær þeirra hafa verið frá trygg­inga­fyr­ir­tækjum.

Fyrst Icelandair, svo VÍS og TM

Á sunnu­dag­inn birt­ist afkomu­við­vörun Icelandair fyrir annan árs­fjórð­ung, en afkomu­spá flug­fé­lags­ins lækk­aði um 30%. Samkvæmt félag­inu vógu verð­hækk­anir á olíu án hækk­unar á flug­far­gjöldum þyngst auk minnk­andi sam­keppn­is­hæfni Íslands vegna sterk­ari krónu. Í kjöl­far við­vör­un­innar lækk­uðu hluta­bréf í félag­inu um tæpan fjórð­ung á einum degi og OMX vísi­talan sömu­leiðis um 3,7%.

[links]Tveimur dögum sinna birt­ist svo afkomu­við­vörun VÍS, en vátrygg­inga­fé­lagið nefndi nei­kvæða þróun á hluta­bréfa­mark­aði auk stór­tjóna á tíma­bil­inu sem helstu ástæðu lækk­un­ar­innar. Vegna áður­nefndra ástæðna verður afkoma VÍS á öðrum árs­fjórð­ungi um 1,1 millj­arði lægri en áður var talið.

Loks birti TM nýja afkomu­við­vörun í morgun, en sam­kvæmt félag­inu eru helstu ástæður lækk­unar afkom­un­ar­innar einnig óhag­stæð þróun á verð­bréfa­mörk­uðum ásamt aukn­ingu í tjóna­kostn­aði. Félagið hafði áður gert ráð fyrir um 500 millj­óna króna hagn­aði fyrir skatta, en hefur nú lækkað spá sína niður í 200 millj­óna króna tap. [adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár