Leggja til að Dælan verði seld

N1 leggur til að vöru­merkið Dælan verði selt til þess að bregð­ast við áhyggjum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins af því að kaup N1 á Festi muni raska alvar­lega sam­keppni á elds­neyt­is­mark­aði.

Til þess að bregð­ast við áhyggjum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins af því að kaup N1 á Festi muni raska alvar­lega sam­keppni á elds­neyt­is­mark­aði hefur olíu­fé­lagið lagt til að sam­einað félag selji frá sér vöru­merkið Dæluna, sem N1 kynnti fyrst til sög­unnar sum­arið 2016, og þrjár elds­neyt­is­stöðvar. Þetta kemur fram í Fétta­blað­inu í morgun.

Segir jafn­framt að til við­bótar hafi for­svars­menn N1 boð­ist til þess að skuld­binda olíu­fé­lagið til þess að selja þeim sem vilja elds­neyti í heild­sölu á við­skipta­legum grunni og auka jafn­framt aðgengi að birgða­rými hjá Olíu­dreif­ingu, sem félagið á 60 pró­senta hlut í.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið kall­aði í gær eftir sjón­ar­miðum almenn­ings um sátta­til­lögur N1. „Eft­ir­litið hefur þegar látið í ljós það álit sitt að kaup N1, sem er stærsta elds­neyt­is­fé­lag lands­ins, á Festi, næst­stærsta smá­sölu­fé­lagi lands­ins en það rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Krón­unnar og Elko, muni að öðru óbreyttu hafa í för með sér „skað­leg“ áhrif á sam­keppni sem leitt geti til tjóns fyrir bæði keppi­nauta félag­anna og neyt­endur. Ef eft­ir­litið fellst ekki á til­lögur N1 mun það ógilda kaupin,“ segir í frétt­inni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið óskar eftir því að sjón­ar­mið ber­ist eigi síðar en 4. júlí næst­kom­andi og er aðilum gef­inn kostur á að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi.

[adspot]

Kjarninn sagði frá því í októ­ber síð­ast­liðnum að N1 ehf., sem rekur elds­­neyt­is­­stöðvar út um allt land og er skráð í Kaup­höll Íslands, hefði gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Festi, móð­ur­fé­lagi Krón­unn­ar, Elko, Kjar­val og Kr auk þess sem félagið rekur Bakk­ann vöru­hót­el. Festi á auk þess 18 fast­eignir sem eru annað hvort í leigu til versl­ana félags­ins eða til þriðja aðila og er heild­ar­stærð fast­eign­anna um 71.500 fer­metr­ar.

Frétta­blaðið greinir frá að hluta­bréf í olíu­fé­lag­inu hafi fallið um 5,1 pró­sent í verði í 330 millj­óna króna við­skiptum í Kauphöll Íslands í gær, dag­inn eftir að félagið greindi frá því að end­an­leg nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins myndi ekki liggja fyrir í þessum mán­uði, líkt og vonir stóðu til. Félagið hafi þess í stað sagt „ófyr­ir­séð“ hvenær rann­sókn eft­ir­lits­ins lyki og hafi auk þess bent á að vegna tíma­fresta í kaup­samn­ingi N1 og Festar kynni að þurfa að koma til breyt­inga á samn­ingnum.

„Í upp­haf­legu sam­komu­lagi félag­anna, sem þau skrif­uðu undir í júlí í fyrra, er heild­ar­virði Festar, það er virði hluta­fjár og skulda, 37,9 millj­arðar króna en end­an­legt kaup­verð mun meðal ann­ars ráð­ast af afkomu smá­sölu­fé­lags­ins,“ segir í frétt­inni.

Hægt er að lesa frekar um málið í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár