N1 samþykkir að kaupa allt hlutafé í Festi

N1 hefur skrifað undir kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í Festi sem meðal ann­ars á og rekur Krónuna. Kaup­verðið liggur ekki end­an­lega fyrir og við­skiptin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

N1 ehf., sem rekur elds­neyt­is­stöðvar út um allt land og er skráð í Kaup­höll Íslands, hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Festi, móð­ur­fé­lagi Krón­unnar, Elko, Kjarval og Kr auk þess sem félagið rekur Bakkann vöru­hótel. Festi á auk þess 18 fast­eignir sem eru annað hvort í leigu til versl­ana félags­ins eða til þriðja aðila og er heild­ar­stærð fast­eign­anna um 71.500 fer­metrar. Heild­ar­velta Festi var rúmir 39 millj­arðar króna á rekstr­ar­ár­inu sem lauk 28. febr­úar 2017.

End­an­legt kaup­verð mun ráð­ast af skulda­stöðu Festis við lok yfir­stand­andi fjár­hags­árs 28. febr­úar 2018. Áætluð sam­legð­ar­á­hrif af sam­ein­ingu N1 og Festi eru á bil­inu 500 til 600 millj­ónum króna. Við­skiptin eru meðal ann­ars háð skil­yrðum um að hlut­hafa­fundir beggja aðila sam­þykki kaupin og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Gangi við­skiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki á 2. árs­fjórð­ungi 2018. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands.

Tilkynnt var um það í júní að N1 hefði náð sam­komu­lagi um kaup á öllu útgefnu hlutafé í Festi, sem sér­hæfir sig í rekstri versl­un­ar­fyr­ir­tækja. Alls rekur Festi 28 versl­anir undir merkjum Krón­unn­ar, ELKO, Nóa­túns og Kjar­vals. en félagið á auk þess vöru­húsið Bakk­ann og 17 fast­eign­ir. Heild­ar­velta Festis var 39 millj­arðar króna á síð­asta ári og heild­ar­virði félags­ins er metið á 37,9 millj­arða króna í við­skipt­un­um. Kaup­verðið átti að greið­ast með hlutafé í N1 og yfir­töku skulda. Virði þeirra hluta­bréfa sem greidd verða eru 8.750 millj­ónir króna auk þess sem betri afkoma Festis getur leitt af sér við­bót­ar­greiðslu.

Í byrjun sept­em­ber var greint frá því að N1 færi fram á að greiða lægra verð fyrir allt hlutafé Festar. Þar skipti mestu máli að afkom­a Krón­unnar á und­an­förnum mán­uð­u­m hefði verið nokkuð und­ir­ ­á­ætl­un­um. Þar skipti inn­koma Costco á íslenskan markað miklu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár