Feður muni í auknum mæli nýta rétt til fæðingarorlofs

Stjórn­völd hafa birt drög að nýju frum­varpi um leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs. Kostn­aður mun nema 4,9 millj­örðum króna á næstu þremur árum.

Feður muni í auknum mæli nýta rétt til fæðingarorlofs
Meðganga Búist er við auk­inni nýt­ingu feðra á fæð­ing­ar­or­lofi í fyrsta áfanga. Mynd: Shutterstock

Drög að frum­varpi um leng­ingu á fæð­ing­ar­or­lofi úr 9 mán­uðum í 12 hefur verið birt í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Leng­ingin mun koma til fram­kvæmda í tveimur áföngum, ann­ars vegar vegna barna sem fæð­ast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur á árinu 2020 og hins vegar vegna barna sem fæð­ast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur 1. jan­úar 2021 eða síðar.

Áætlað er að heild­ar­kostn­aður við leng­ingu um einn mánuð árið 2020 nemi um 1,7 millj­örðum króna. Lenging orlofs­ins um tvo mán­uði vegna barna á árinu 2021 mun kosta 3,2 millarða króna sam­kvæmt áætlun. Samtals mun kostn­aður á tíma­bil­inu 2020 til 2022 nema 4,9 millj­örðum króna.

Gert var ráð fyrir leng­ing­unni í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Einnig skuld­bundu stjórn­völd sig til að lengja sam­an­lagðan rétt for­eldra til orlofs í tengslum við kjara­samn­inga í vor. Kostn­að­ur­inn var áætl­aður í fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda fyrir árin 2020 til 2024.

Í frum­varp­inu segir að sam­kvæmt gögnum Vinnu­mála­stofn­unar hafi mæður nýtt sér sam­eig­in­legan rétt for­eldra til orlofs í rík­ari mæli en feður. Ekki er því gert ráð fyrir að fyrri áfangi leng­ing­ar­innar muni hafa áhrif á nýt­ingu mæðra. „Er þannig gert ráð fyrir að mæður muni að jafn­aði áfram nýta sex mán­uði af sam­an­lögðum rétti for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs líkt og verið hefur,“ segir í frum­varp­inu. „Hins vegar er gert ráð fyrir að fæð­ing­ar­or­lof feðra verði lengra en verið hefur fram til þessa við gild­is­töku þessa fyrsta áfanga við leng­ingu á sam­an­lögðum rétti for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs og er miðað við 33% fjölgun daga hjá feðrum í því sam­bandi. Er þannig gert ráð fyrir að fyrsti áfang­inn við leng­ingu á sam­an­lögðum rétti for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs muni hafa meiri áhrif á lengd fæð­ing­ar­or­lofs feðra en mæðra.“

Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar var rætt við sex manns sem lentu á milli skips og bryggju hjá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði vegna óhefð­bund­inna aðstæðna þeirra. Þær geta valdið því að for­eldri fái mun lægri greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði en búist var við eða missi jafn­vel rétt­indi sín alfarið. Verk­takar, starfs­menn nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og fólk í eigin rekstri eru meðal þeirra sem geta lent í þeirri stöðu. For­eldr­arnir lýstu því hvernig reglur sjóðs­ins hefðu valdið þeim áhyggjum ofan á allt annað sem fylgir barn­eignum.

Samkvæmt stefnu rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks munu hámarks­greiðslur í orlofi einnig verða hækk­aðar, en þær eru nú 600 þús­und krónur á mán­uði. Aðrar breyt­ingar bíða þess að nýr starfs­hópur um heild­ar­end­ur­skoðun lag­anna skili nið­ur­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár