Féllu milli skips og bryggju hjá Fæðingarorlofssjóði

Foreldrar segja Fæðingar­orlofssjóð ekki taka tillit til þess hvernig ungt fólk vinnur nú til dags. Kerfið olli þeim áhyggjum og niður­staðan leiddi í sumum tilfellum til tekju­missis eða minni samveru með nýfæddu barni. Forstöðu­maður Fæðingar­orlofssjóðs segir umræðuna villandi.

Óhefðbundnar aðstæður geta valdið því að foreldri fái mun lægri greiðslur úr Fæðingar­orlofssjóði en búist var við eða missi jafnvel réttindi sín alfarið. Í samtölum við Stundina lýsa foreldrar því hvernig reglur sjóðsins hafi valdið þeim áhyggjum ofan á allt annað sem fylgi barn­eignum. Forstöðu­maður Fæðingar­orlofssjóðs segir það hins vegar erfið­leikum háð að hanna kerfi sem nái fram bestu mögulegu niður­stöðu fyrir alla.

Nokkur umræða hefur verið um það undan­farið að sjálfstætt starfandi einstaklingar reki sig á vandamál við að sýna fram á samfelldar tekjur í aðdrag­anda þess að verða foreldrar. Margrét Erla Maack listakona vakti athygli á stöðu sinni opinber­lega, en hún hópfjármagnaði orlof sitt á Karolina fund, þar sem hún sá fram á að greiðslurnar frá Fæðingar­orlofssjóði yrðu takmarkaðar. Margir hafa stigið fram í kjölfarið og lýst reynslu sinni af samskiptum við sjóðinn.

Samkvæmt reglum sjóðsins þarf foreldri að sýna fram á atvinnu­þátttöku síðustu 6 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár